Réttur - 01.01.1983, Blaðsíða 59
ERLEND
VÍÐSJÁ
Róbótar eru víða orðnir vandamál
Það er eðlilegt að verkalýðsfélög fari
að líta í kringum sig á tímum þegar
Efnahags og þróunarstofnunin (OECD)
spáir því að í Japan einu saman munu
róbótar (vélmenni) riðja verkafólki úr
200.000 til 500.000 störfum á næstu tveim-
ur árum. Aðalástæðan er fólgin í því að
verkafólk þarf sjálft að taka þátt í að
stjórna því með hvaða hætti róbótar koma
inn á vinnumarkaðinn. Reynslan hefur
þó sýnt að á tímum alheimskreppu og
vaxandi krafna um hagvöxt verður hlut-
skipti verkafólks harðla lítið í pólitískri
ann Sþ. fyrir að vinna að „nýjum alheims-
sósíalisma“ og „að deila á ný auðæfum
heimsins".
í vörn sinni fyrir fjölþjóðaauðmagnið
réðst hún á það sem hún kallar „vonda
hugmyndafræði“ á vegum Sþ: „Auði er
ekki safnað með þjófnaði. Auður mynd-
ast af góðum hugmyndum, fjárfestingum
og gróðavon (-fíkn). Fátækt verður ekki
til vegna rányrkju fjölþjóðaauðhringa.“
Kirkpatrick minntist aðeins einu sinni
á það í ræðu sinni að réttmætt gæti talist
að gagnrýna fjölþjóðaauðhringana með
þessum orðum þó: „Vafalaust þarfnast
neytendur í fjarlægum þriðjaheimsríkjum
verndar gegn fjölþjóðaauðhringum, en ég
bæti því við að hér er átt við vernd sem
ekki bannar hagvöxt“.
stefnumótun hér að lútandi. Þetta hefur
þó ekki hamlað því að hvítflibbar á
skrifstofum verkalýðsfélaga sjái sína sæng
út breidda þegar félögum í hreyfingu
þeirra fækkar og heildartekjur af félags-
gjöldum dragast saman. í Japan þar sem
tæknivæðing stendur framarlega í iðnaði,
hafa forystumenn verkalýðsfélaganna séð
það eitt ráð til að sporna gegn tekjumissi,
að fara fram á að bundið verði í lög að
róbótar greiði félagsgjöld til verkalýðsfé-
laganna.
Fjárfesting í nýjum verksmiðjum
minnkar í Bandaríkjunum
Þegar ríkisstjórn Ronalds Reagans í
Bandartkjunum réttlætti stórfelldar
skattaívilnanir í þágu fjölþjóðaauðhringa,
með því að slíkt stuðlaði að aukinni
fjárfestingu og sköpun nýrra starfa fyrir
almenning, voru að vonum margir sem
efuðust um ráðstöfun þessa. Enda hefur
nú komið á daginn að fjárfesting á árinu
1982 dróst saman um 4,8%. Þá er því spáð
að fjárfesting muni enn dragast saman á
þessu ári, og er það í fyrsta skipti frá
lokum heimsstyrjaldarinnar síðari að slík-
ur samdráttur á sér stað tvö ár í röð þar
í landi. Tilfinnanlegast í þessu sambandi
hefur verið samdráttur í fjárfestingum til
nýrra verksmiðja.
Nú er það svo að fjölþjóðaauðhringar
hafa á undanförnum árum flúð Bandarík-
in til landa sem ráða yfir gnótt auðlinda
59