Réttur - 01.01.1983, Síða 63
Novubardaginn 1934
50 ár voru liðin frá Novubardaganum á Akureyri 14. mars sl., ein-
hverjum harðasta slag, sem norðlenskur verkalýður hefur háð við aftur-
haldsöfl atvinnurekenda og klofningstilraunir kratabrodda — og farið
sigursæll út úr þeirri orustu, eins og Krossanesverkfallinu 1930 og Detti-
fossslagnum 1934.
Allir voru þessir bardagar háðir til að
hindra kauplækkanir og knýja fram taxta
verkalýðsfélaga, þrátt fyrir klofning
sprengifélaga Alþýðuflokksins og undir-
boð þeirra sem verkfallsbrjóta.
Hetjuskapur verkalýðsins á Akureyri í
Novu-bardaganum mun lengi í minnum
hafður, því heifa mátti að allur hinn
róttæki verkalýður, jafnt konur sem karl-
ar væru reiðubúinn til enn harðari átaka
ef á þyrfti að halda.
Skýrt hefur verið nákvæmlega frá öllum
gangi þessara átaka, einna hinna hörðustu
á kreppuárunum í eftirfarandi ritum m.a.:
„Rétti“, 1973, „Novubardaginn“, bls.
89-94 ásamt öllum þeim myndum, sem til
eru af átökunum og helstu forustumönn-
um þeirra.
Jón Rafnsson: Vor í verum, 1957, bls.
158-180.
Steingrímur Aðalsteinsson: Novudeil-
an á Akureyri (Vinnan, 1946, bls. 226-
230).
Tryggvi Emilsson: Baráttan um brauð-
ið. 1977. (Kaflinn: Verkfall í atvinnu-
leysi). Bls. 269-288.
Mannfjöldinn á Torfunefs-
bryggju, er bæjarfógetinn les
upp konungsbréf og skipar
fólkinu að dreifa sér
— sem ei var hlýtt!
63