Réttur - 01.07.1983, Page 41
„Mammons
ríki
Ameríku“
(MATT. JOCH.
UM BANDARÍKIN)
Þjód Bandaríkjanna er 5% jarð-
arbúa. Hún tekur til sín 25%
heimsframleiðslunnar. 1% af íbúum
Bandaríkjanna á 30% allra eigna
þar. 4 auðsamsteypur (Morgan,
Rockfeller, Dupont og Mellon)
réðu Iöngum 60% efnahagslífsins.
Kockcfcllcr-ccntcr í New York, löngum miðpunkt-
ur fjármálaheimsins.
Auðhringar Bandaríkjanna mergsjúga þróunarlöndin. Gróði þeirra jókst frá
1970 til 1977 úr 2,3 miljörðum dollara í 5,5 miljarða. — Gróðinn, sem þeir fluttu
út og heim til sín frá Mexico og Brasilíu var 1960 um 190 miljónir dollara (bæði
löndin), en 1975 var hann orðinn 1.896 miljónir frá Mexico og 1.695 miljónir frá
Brasilíu. í Nígeríu hefur útpíndur gróði á sama tíma vaxið úr 12 miljónum í 286
miljónir dollara. (Er að undra þó efnahagskerfi auðvaldsheimsins sé að hrynja
vegna skuldasöfnunar fátæku landanna og erfitt sé fyrir Nígeríu að kaupa
skreið.)
Til að halda þessum „nýlenduríkjum“ um allan heim í skefjum hafa Bandarík-
in 2500 herstöðvar (fyrir njósnir, her og flota) í allt að 100 löndum, alls 550 þús-
und manns.
169