Réttur - 01.01.1976, Blaðsíða 57
og ma. leitt til þess að gerðar voru tilraunir með
slika hópa á hundruðum vinnustaða í Svíþjóð. En
reynslan hefur dæmt þetta úr leik, segir hann.
Miklar vonir voru við þessa hópa bundnar, og í
Noregi tók vinnumálarannsóknarstofnun ríkisins
sérstaklega að sér 4 vinnustaði þar sem vinnan
skyldi skipulögð með nýjum hætti þannig að verka-
maðurinn og forstjórinn yrðu jafnir. Einn af þessum
vinnustöðum var 120 manna deild I verksmiðjum
Norsk Hydro í Eidanger. (Alls vinna hjá fyrirtækinu
i Eidanger um 5 þúsund manns, en rétt þótti að
þyrja smátt). Og nú heimsækir Aftonbladet þennan
vinnustað.
Norsk Hydro var að sögn komið i nokkurn vanda
um miðjan siðasta áratug. Arðsemin hríðminnkaði
og innan tiðar kom að því að fyrirtækið sýndi
þókhaldstap enda þótt það væri i fremstu röð í
heiminum í framleiðslu tilbúins áburðar. Samtímis
kom upp æ illvigari vandamál i sambúð yfir- og
undirmanna í fyrirtækinu. Mikið var möglað yfir
óhreyfanlegum kauptöxtum og ..ólögleg" verkföll
urðu æ tiðari. Fjarlægðin á milli yfirstjórnar og
vinnusalanna var orðin of mikil, boð bárust seint
og illa innan fyrirtækisins, sögðu sérfræðingar I
rekstrarhagræðingu. Hvað átti þá að gera?
Greinarhöfundur leiðir rök að því að forráða-
menn Norsk Hydro hafi þóst hafa himin höndum
tekið þegar hugmyndin um „sjálfstjórnarhópana"
kom fram. Fyrirtækið hafi notfært sér umrótið til
breytinga og tilfærslna en aldrei gengið af heilum
hug til liðs við grundvöll hugmyndarinnar. Vitnað
er til formanns vérkalýðsfélagsins i Eidanger: Það
þýðir ekki að aðskilja tilraunir með fyrirtækjalýð-
ræði frá efnahagslegum raunveruleika. „Sjálf-
stjórnarhóparnir" voru viðleitni til að brjóta niður
piramídalagað ákvörðunarkerfi. En verksmiðju-
stjórnin tók einhliða ákvörðun um starfsmat og
neitaði að fallast á nýtt fyrirkomulag um kaupauka
byggðan á framleiðni. Þannig var grafið undan til-
rauninni.
Talað er við einn af verkamönnunum sem tók
á sinum tíma mjög virkan þátt i starfi „sjálfstjórn-
arhópanna". Hann segir að aldrei hafi verið nógu
rækilega rætt um málin meðal karlanna í vinnusaln-
um. Orfáir menn gengu framfyrir fylkingar og þeir
tóku siðan skriðið uppávið einsog halastjörnur.
Formaður starfsmannadeildarinnar varð félagsmála-
ráðherra í næstu rikisstjórn, ýmsir aðrir fengu
stöður þótt af öðru tagi væri. En allur fjöldinn er
í sömu aðstöðu og áður.
Námuverkamaður frá Kiruna i Norður-Sviþjóð að
ræða málin eftir önn dagsins..
Enginn úr stjórn Norsk Hydro fékkst til viðtals
um „sjálfstjórnarhópana", hnignun þeirra og hrun.
Félagsmálaráðherrann veitti að vísu áheyrn, en
stutta. Hann brosti við þegar hann minntist veru
sinnar hjá Norsk Hydro en var það efst í huga
að æ færri hæfir menn yrðu nú eftir i skitverk-
unum á slíkum vinnustöðum. „Sjálfstjórnarhóparn-
ir"? Þeir yrðu aldrei framar stofnaðir innan fyrir-
tækja í Noregi, að minnsta kosti ekki undir því
heiti. Svo mikil hefðu vonbrigðin verið með þá.
57