Réttur


Réttur - 01.01.1976, Síða 60

Réttur - 01.01.1976, Síða 60
Chou-En-lai í hópi námsmanna í Þýskalandi árið 1922. X er yfir Chou. ásamt Mao og Chou aðalleiðtogi — og einn besti hershöfðingi — kínverska flokksins. 1923 mun Chou hafa haldið heim á leið um Moskvu, átt þar tal við Bucharin og Sinovjef og kemur 1924 til Kína. Upp frá því er saga hans í hálfa öld samrunnin sögu kínverska flokksins: aldarfjórðungur hættu- legustu byltingarbaráttu (1924—49), þar sem líf hans sífellt hangir á veikum þræði, — aldarfjórðungur æðstu valda stærstu þjóð- ar heims, þar sem hann ásamt Mao mótar sögu hennar og heimsins. Skal nú aðeins minnst á örfáa atburði: Það er Chou, sem er sendur inn í Shang- hai 1927 áður en Suður-her Chang-Kai-Sheks kemur. Chou skipuleggur allsherjarverkfall hundruð þúsunda verkamanna í Shanghai 21. mars og verkamenn taka svo borgina á vald sitt. I apríl svíkur svo Chang kommúnistana í tryggðum, lætur myrða þá þúsundum sam- an í Shanghai. Chou er og hnepptur í fang- elsi og bíður dauðans, er skólabróðir hans í hernum hjálpar honum til að flýja. Chang-Kai-Shek setur 80.000 dollara til höfuðs Chou-En-lai! I „göngunni löngu" — 12 þúsund kíló- metra herferð um fjöll og firnindi— frá september 1934 til október 1935 — tekur Mao við forustu flokksins og hin ævilanga samvinna þessara tveggja ólíku leiðtoga, Mao’s og Chou’s, sem bæta hvorn annan svo vel upp, hefst og rofnar aldrei. — I saman- burði við gönguna löngu var herferð Hanni- bals yfir Alpana skemmtiganga ein, segir Edgar Snow. — Frá Yenan, hellnaborg kommúnista, er nú hafin hin djarfa, víð- feðma þjóðfylkingarstefna kínverskra komm- únista gegn japanska innrásarhernum. Þegar þjóðhollur hershöfðingi úr her Chang-Kai-Sheks tekur hann höndum í des- ember 19.36 og hótar að drepa hann, þá er það Chou-En-lai, sem bjargar lífi jx:ssa fas- istaleiðtoga og kommúnistaböðuls: fær Chang til að fallast á samstarf gegn innrásarhernum og sannfærir uppreisnarmennina um að sleppa honum Þegar þeir Mao og Chou leggja til atlögu við Chang-Kai-Shek gegn ráðum Stalíns, — sem vildi láta þá semja við þennan banda- mann amerísks auðvalds, — og leiða bylting- una til sigurs 1949, verður Chou forsætis- og utanríkisráðherra Kínaveldis, er mótar hina sjálfstæðu stefnu þess: bandalagið við Sovét- ríkin, friðarsamninga í Kóreu 1953 og sér- staklega samstarf Kína við nýfrjálsu ríkin á Bandungráðstefnunni 1955. Chou-En-lai á höfuðþátt í samningnum um stríðslok Frakka í Víetnam 1957 á fund- inum í Genf. Þar mættust kínversk kurteisi og amerískur hroki á táknrænan hátt, er hinn siðfágaði fulltrúi hámenningar heims, Chou- En-lai, réttir ameríska utanríkisráðherranum hönd sína til að heilsa honum og hinn menn- 60

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.