Réttur - 01.10.1976, Side 1
lettur
59. árgangur
1 976—4. hefti
Hin fáráða, gráðuga burgeisastétt er þyngsta byrði landsins. Viðskipta-
braskararnir, forusta hennar, hafa hlaðið á þjóðina skuldabagga, sem er
að sliga hana. Orsökin er fyrst og fremst skefjalaus innflutningur, af því
ekki má hefta frelsi heildsala til brasks, — og óforsjál fjárfesting, af því
ekki er komið á áætlunarbúskap. island er því komið undir stöðugt eftirlit
erlendra bankadrottna, sem óskilaaðili væri. Og samt skal enn ráðist í
gífurlegar erlendar lántökur vegna stóriðju, sem ofurseld er söluvaldi er-
lendra auðfélaga og hverfulleik kreppumarkaða.
Braskarastétt þessi hefur áður í blindri undirgefni sinni undir erlent stór-
veldi gert landið að skotspæni í hugsanlegu stórveldastríði, er útrýmt gæti
þjóðinni.
Þessir skammsýnu braskarar ofurseldu ensk-þýska auðvaldinu fiskimið
íslendinga utan 12 mílna með óuppsegjanlegum samningi 1961, — sem
meirihluti þings og þjóðar rifti 1971 og vann með einarðri baráttu atfylgi
erlendra þjóða til fylgis við 200 mílurnar svo að afturhaldsflokkarnir íslensku
dröttuðust til að framfylgja ákvörðunum vinstri meirihluta Alþingis um 200
mílurnar, — en bíða nú tækifæris til að svíkja í samningum við EB, en hafa
ekki þorað það enn, — af ótta við fólkið
Það virðist ekkert það ódæði til, sem þessir herrar væru ekki reiðubúnir að
fremja gagnvart íslenskri þjóð, — ef þeir bara þyrðu vegna alþýðu landsins.