Réttur - 01.10.1976, Page 31
þusund ára ríki yfirstétta á islandi." Þar er hið
ágæta samsafn: „Neistar uppreisnar úr þúsund ára
ríki alþýðukúgunar á Islandi," úrval úr kvæðum,
sögum, annálum og öðru til að sýna stéttakúgunina
og hvernig risið var gegn henni. Skáldin og gögnin
frá öllum öldum Islandsbyggðar voru sjálf látin
tala. Við Aðalbjörn Pétursson höfðum mest unnið
að því að taka þetta saman og tókst það vel. Hins-
vegar var sagnfræðin, sem til grundvallar lá, ekki
eins góð. Við lögðum höfuðáhersluna á að sanna
að yfirstéttardrottnunin hefði alltaf verið hér eins
og annarsstaðar, sanna að hinar almennu stétta-
kúgunarhugmyndir marxismans ættu og við hér. —
Það var ekki fyrr en miklu seinna að mér varð Ijóst
hið sérkennilega við þróun þjóðveldisins, skyld-
leiki þess, einkum fyrstu tvær aldirnar, við ætta-
samfélagið og tók þá að skilgreina það út frá sjón-
armiði marxismans3), einmitt með sérkenni islensku
mannfélagsþróunarinnar hér fyrir augum.
Við höfðum ekki beðið nein núlifandi skáld um
leyfi til að birta jafnvel heil kvæði þeirra, sem
okkur fannst viðeigandi að setja í þetta vígreifa
ádeilusafn. Því vænna þótti mér um, er ég upp-
götvaði það síðar að eitt skáldið, sem við birtum
allmikið eftir, Orn Arnarson, lét sér það vel lika að
vera þarna með. Hann segir sem sé í bréfi til
kunningja sins, dags. 8. jan. 1934:
„Siðast en ekki sist má geta þess, að kommún-
istar dubbuðu mig upp sem einn sinn stærri spá-
mann og settu mig í alþingishátiðarútgáfu Réttar.
Ég þykist vita að þér og öðrum íhaldssálum hafi
verið það litið gleðiefni, en ég er kommum þakk-
látur fyrir.'Þ
SKÁLD TIL LIÐVEISLU
En það var ekki aðeins að við „rændum" þannig
skáldum til liðs við okkur í „Rétt" — og þau létu
sér vel lika. Það komu og á þessum tima stór-
skáldin af fúsum vilja hvert á fætur öðru, þau, sem
áttu eftir að setja mark sitt á öldina, lita bókmenntir
Islendinga rauðar um meir en aldarfjórðungs skeið:
Halldór Laxness birtir fyrstu greinar sínar í Rétti
1930 og er ekki mildur i máli í garð kaupmanna-
valds og prangara, er hræsna með kristni. Það eru:
„Alþýðuverslanir," ræða, sem hann hélt i Verka-
mannafélaginu Dagsbrún, og „Þeir koma til yðar
í sauðarklæðum," grein er rituð var fyrir bæjar-
stjórnarkosningar i Reykjavik og er harðvitug á-
deila á það afturhald, sem „rekur mannhaturs
pólitík sína" ,,i nafni Jesú Krists". Þessar greinar
hafa aðeins birtst í Rétti, en tvær greinar, er hann
reit i Rétt 1931 og 1933 munu hafa birst ann-
arsstaðar siðar. Svo stórvirkur var Halldór siðar
í Rétti að 1936—7 t.d. reit hann þar níu greinar.
Halldór Stefánsson, snillingur smásagnanna, lét
„Rétt" fá fjölda smásagna sinna, auðvitað alltaf
endurgjaldslaust, og var sú fyrsta þeirra „Réttur"
1931, en siðar rak hver smásagan aðra, kvæði og
greinar líka. Á Réttur honum mikið upp að unna.
I árgöngunum 1936—7 voru það hvorki meira né
minna en níu smásögur, sem hann gaf „Rétti".
Jóhannes úr Kötlum birtir 1933 fyrsta kvæðið,
sem „Réttur" fær frá honum. Það var hið volduga
kvæði „Brúna höndin,“ ádeilan magnþrungna á
nasismann, er áhrif hans tóku að gera vart við sig
hér. En Jóhannes átti eftir að gera mikið fyrir Rétt
síðar meir raunar allt til æviloka.
Steinn Steinarr birtir og tvö af fyrstu kvæðum
sínum í Rétti 1933: „Hin hljóðu tár“ og „Verka-
maðurinn," — tvö kvæði, sem eiga upptök sín í
kvöl og baráttu verkamanna 1932. Fyrsta Ijóðabók
Steins kemur siðan út 1934: „Rauður loginn
brann."
„Rétt" munaði nú um að til liðs við hann og
flokkinn var kominn Kristinn E. Andrésson, sem
vann vel með mér að Rétti þessi ár, en fyrsta stærri
grein hans var um Einar Benediktsson 1933, en
stutta grein hafði Kristinn skrifað i „Rétt" árinu
áður um Sovétrikin. I árgöngunum 1933—34 rekur
svo hver greinin aðra frá honum.
En þótt mestur fengur væri að þessum öllum,
sem urðu stórmenni „Rauðra penna" siðar, þá
skal það og munað að margir létu „Rétti" i té á
þessum árim frumsamdar og þýddar sögur og
kvæði. Á eitt skáld af mörgum slíkum skal minnst,
því alltof lítið hefur heyrst til þess skálds síðan,
svo vel sem af stað var farið, en það skáld var
ung sveitastúlka, sem skrifaði vel gerða, róttæka
smásögu „Sveitasæla" í „Rétt" 1935: Kristin
Geirsdóttirr,) i Hringveri í Suður-Þingeyjarsýslu.
ÁRÓÐURSSÓKN OG EINVÍGI
Pólitisku ádeiluskrifin i „Rétti" magnast nú með
hverju árinu sem liður og stundum eru vissar grein
ar gefnar út sérprentaðar til dreifingar eins og t.d.
hin harða ádeila é sveitaflutningana: „Vér ákærum
þrælahaldið á Islandi 1932".
Kommúnistaflokkurinn hafði sýnt það strax á
231