Réttur - 01.10.1976, Síða 36
LEIKHUS ALÞYÐU
Fjórða og yngsta atvinnuleikhús á íslandi,
Alþýðuleikhúsið, er stofnað á Akureyri þann
4ða Júlí 1975. Að því stendur hópur ungs
fólks og hafði kjarni hans starfað í Leikfélagi
Akureyri um lengri eða skemmri tíma.
Þótt Alþýðuleikhúsið eigi heimili á Akur-
eyri, er það skipulagt sem ferðaleikhús og
vettvangur þess því landið allt. Sýningar þess
eru þannig sniðnar að þeim aðstæðum, sem
vera kunna á hverjum stað, og svo úr garði
búnar að þær megi sýna næstum hvar sem
vera vill: í vinnusal, skólastofu, á litlu leik-
sviði, stóru leiksviði eða engu leiksviði, innan
dyra sem utan, — hvar þar, sem áhorfendur
er að finna.
Þessi aðferð Alþýðuleikhússins er að vísu
ekki algjör nýjung í íslensku leikhúsi, en
stefna þess og markmið boða aftur á móti
gleðileg þáttaskil. I „Leiksýn” málgagni Al-
þýðuleikhússins (1. tbl. 1. árg.), segir svo:
„Hlutverk þessa nýja leikhúss er að ferðast
um landið og sýna leikhúsverk af annari gerð
en fólk á að venjast í hinum hefðbundnu
leikhúsum.
Alþýðuleikhúsið mun einbeita sér að verk-
efnum sem eru félagslegs eðlis og það stefnir
að því að sýningar þess verði til að vekja fólk
til umhugsunar um hin ýmsu félagslegu
vandamál sem við er að glíma í samfélaginu.
En er það nokkuð nýtt? — kannt þú að
spyrja, — gera ekki öll leikhús og leikfélög
það?
Því miður er ekki svo að okkar dómi. Við
teljum að leikhúsin í landinu taki ekki virk-
an þátt í eðlilegri félagslegri umræðu og
mótun samfélagsins. Við erum þeirrar skoð-
unar, að þess háttar leikhús þurfi að vera til,
vegna þeirra miklu möguleika sem leik-
listin býður uppá í túlkun og verkefnavali.
Okkur finnst að slíkt leikhús sé nauðsyn-
legt fyrir launafólk í landinu, og við telj-
um að það hafi þýðingarmiklu hlutverki að
gegna í barátm launastéttanna fyrir auknu
jafnrétti og betra þjóðfélagi. — —"
Alþýðuleikhúsið er því pólitískt leikhús,
hið fyrsta sinnar gerðar á Islandi. Og það
hefur ekki látið sitja við orðin tóm, heldur
frumsýnt nú á einu misseri tvö stórverkefni
til að fylgja þeim eftir.
Fyrra verkefnið, „Krummagull", var
frumsýnt í Neskaupstað 28. mars s.l. og var
sýnt fram í júní, alls 53 sýningar á nokkru
færri stöðum; það hefur nú verið sýnt um
nær allt land, m.a. í Reykjavík, og hlotið
góða dóma. „Krummagull" fjallar um „þann
vanda, sem þjösnaskapur mannsins við um-
hverfi sitt hefur valdið og á eftir að valda,
ef fer sem nú horfir," eins og segir í leik-
skrá.
Um annað verkefni Alþýðuleikhússins,
„Skollaleik" segir í leikskrá, að hann fjalli
„einnig um mál, sem ofarlega eru í hugum
fólks og birtast okkur í ýmsum myndum dag
hvern, jafnt á Islandi sem annars staðar, þ.e.
sambúð manns við mann, ótta hans og yfir-
gang við skoðanir annara, undirferli hans og
misbeitingu þeirra valda, sem hann hefur
tekið sér."
Efniviður „skollaleiks" er galdraofsóknir
hér á landi á lódu öld og 17du öld og er allt
236