Réttur - 01.10.1976, Page 42
flokkurinn miðstöðinni til alla nauðsynlega
aðstöðu. Miðstöðin hefur fastan starfsmann
í hluta úr starfi eða fullu starfi eftir því sem
þurfa þykir hverju sinni.
4. gr. Stjórn:
Stjórn fræðslumiðstöðvarinnar er skipuð 5
mönnum sem skulu kosnir til eins árs í senn
á landsfundi eða flokksráðsfundi Alþýðu-
bandalagsins. Þeir skipta sjálfir með sér verk-
um. Stjórnin mótar miðstöðinni stefnu og
stýrir veigamestu málum, en starfsmaður sér
um daglega stjórn og rekstur miðstöðvarinn-
ar.
5. gr. Fjáröflun:
Auk tekna sem fræðslumiðstöðin fær frá
flokknum samkvæmt fjárhagsáætlun hans
tekur hún gjöld fyrir þau námsgögn sem hún
útbýr og útvegar.
Greinargerð
Flokksráðsfundur 1975 samþykkti að
kjósa 5 manna nefnd til að vinna að undir-
búningi stofnunar fræðslumiðstöðvar. I
nefndina voru kjörnir: Auður Styrkársdóttir,
Guðrún Bjarnadóttir, Olafur R. Einarsson,
Sigurður Magnússon og Þorsteinn Vilhjálms-
son. Nefndin hélt nokkra fundi s.l. vetur
og vikulega fundi frá því í september. Sig-
urður Magnússon tók ekki þátt í störfum
nefndarinnar. Með nefndinni starfaði Stef-
anía Traustadóttir þjóðfélagsfræðinemni er
vann ákveðna úttekt á fræðsluritum fyrir
nefndina.
Fyrsta verkefni nefndarinnar var að láta
útbúa námsvísi að stefnuskrá Alþýðubanda-
lagsins þannig að félagsdeildir og einstakling-
ar gæm hafið sjálfstætt námsstarf á grund-
velli þess rits. Hjalti Kristgeirsson aðstoðaði
nefndina við að útbúa námsvísinn. Einstaka
félagsdeildir hafa haft námshópa starfandi í
stefnuskránni.
I fyrstu ræddi nefndin, hvort æskilegt væri
að miðstýra fræðslustarfi flokksins frá einni
miðstöð. Það var samdóma niðurstaða nefnd-
innar að fræðslumiðstöð ætti fyrst og fremst
að vera þjónustuaðili er auðveldaði flokks-
deildum að hefja fræðslustarf. Fræðsluefni
bæri að tilreiða þannig að félagsmenn gætu
sjálfstætt myndað námshópa eða félags-
deildir kvatt til leshringahalds, en námsefnið
sem frá fræðslumiðstöð kæmi væri þannig
í stakk búið að auðvelt væri að nota það án
leiðbeinenda. Að dómi nefndarinnar er til
mikið fræðsluefni, ef félagar hafa vakandi á-
huga á að auka þekkingu sína á þjóðfélags-
málum, spurningin er fyrst og fremst sú,
hvort pólitískur vilji sé fyrir hendi til að efla
þetta fræðslustarf. Það fræðslustarf sem verið
hefur bendir til að áhuginn sé ekki mjög
mikill og félagsdeildir leggi ekki mikið upp
úr öflugu fræðslustarfi. En það er skylda
sósíalísks flokks við félaga sína að hafa til
reiðu námsefni og miðla því til þeirra er á-
huga hafa. Utgáfustarf Alþýðubandalgsins á
þessu sviði hefur verið í algeru lágmarki og
nefndin telur að stofnun fræðslumiðstöðvar
ætti að geta stuðlað að vaxandi fræðslustarfi
í flokknum. En til þess þarf flokkurinn að
taka þá ákvörðun að verja vissum hluta tekna
sinna til þessa starfs og fræðslumiðstöð verð-
ur því aðeins áð gagni að til hennar sé ráðinn
starfsmaður er sinni sérstaklega þessu verk-
efni.
Miðstjórn Alþýðubandalagsins kaus í des-
ember eftirtalda félaga í stjórn Fræðslumið-
stöðvarinnar:
Hjalta Kristgeirsson, Stefaníu Trausta-
dóttur, Orn Þorleifsson, Tryggva Þór Aðal-
steinsson og Guðrúnu Bjarnadóttur.
242