Réttur - 01.10.1976, Síða 51
arnar eyðilögðu ávinninginn — en tryggja
samt örugga þróun lífskjara almennings.
Virðist hin nýja forusta leggja höfuðáherslu
á eflingu framleiðslunnar.
JAPAN
I Japan fóru fram almennar þingkosning-
ar 5. des. sl. Stjórnarflokkurinn „frjálslyndi
lýðræðisflokkurinn”, (LDP) sem er aftur-
haldssinnaður og bandarískur í afstöðu sinni,
tapaði miklu fylgi (úr 46,8% í 41,7%), ekki
síst vegna mútuþægni (Lockheed), en hékk
þó í stjórn með nýjum formanni. Kommún-
istaflokkur Japans, sem er mjög sjálfstæður
og framsækinn flokkur, naut þó ekki vaxandi
andstöðu gegn afturhaldinu, því öðrum
stjórnarandstöðuflokkum tókst að uppskera
ávöxtinn af óánægju almennings. Kommún-
istar fengu rúmar 6 miljónir atkvæða eða
10,66%, en höfðu áður 10,88%, misstu hins-
vegar allmikið af þingmönnum, sem unnist
höfðu á naumum atkvæðamun síðast: hafa
nú 19 þingsæti af 511, en áður 40 af 491.
SPÁNN
Santiago Carillo, leiðtogi spánska komm-
únistaflokksins var nýlega handtekinn á
Spáni. Hann hefur oft dvalist þar á laun
undanfarin ár, — en hann er nú búinn að
vera útlægur í 38 ár. Þegar hann var tekinn
nú, hafði hann farið huldu höfði í 10 mán-
uði. Er spanska stjórnin í vandræðum hvað
gera skuli, því mótmæli jafnt borgaralegra
afla sem verkalýðshreyfinga Vestur-Evrópu
dynja nú yfir stjórnina. Standa öll fögur lof-
orð hennar um lýðræði afhjúpuð sem blekk-
ing ein meðan hún þorir ekki að leyfa starf-
sem Kommúnistaflokksins. Hefur hún nú
látið undan mótmælunum og sleppt Carillo
úr haldi.
CHILE
Baráttan fyrir frelsi Luiz Corvalan, for-
manns Kommúnistaflokks Chile, hefur
harðnað um heim allan. Og fasistastjórn
Chile hefur verið að reyna að hressa upp
á harðstjórnarfés sitt með því að sleppa
nokkrum pólitískum föngum. Hún þarf að
„sla' miljónalán í auðvaldslöndunum og
reynir með þessu að L'ðka til. Þannig sleppti
hún 300 pólitískum föngum í nóvember og
höfðu nokkrir þeirra setið í þrjú ár í dýfliss-
um fasistanna án þess að koma fyrir rétt. Lét
Pinochet þá þau boð út ganga að aðeins 18
væru eftir í fangelsi af pólitískum föngum.
Er það hræsni ein og haugalygi. Helmut
Frenz, lúterskur biskup, sem stjórnin vísaði
úr landi vegna baráttu hans fyrir frelsi fanga,
segir að yfir 3000 pólitískir fangar séu enn
í dýflissunum: 700 þar af þegar dæmdir af
herdómstólum, 450 ákærðir, en enn þá ekki
dæmdir og 1800, sem leynilögreglan LINA
hefur fyrir löngu handtekið, en ríkisstjórnin
þykist ekkert vita um. (Sjá þýska ritið
„Spiegel" 22. nóv. 1976).
Krafan um frelsi Corvalan ( — um hann
var grein í síðasta hefti „Réttar") hefur farið
svo vaxandi víða um lönd, að þegar einn af
forustumönnum Amnesty International stakk
upp á því nýlega að höfð yrði skipti á hon-
um og rússneska andófsmanninum Bukovsky,
þá lét Chile-stjórn undan til að reyna að bæta
álit sitt, — Sovétstjórnin notaði auðvitað
tækifærið til að frelsa ágætan kommúnista-
foringja úr helgreipum fasista. Minnast má
þess að 1940 tókst sovétstjórninni að fá ung-
verska kommúnistan Rakosi lausan í skiptum
fyrir gamla ungverska herfána úr rússnesk-
um söfnum, en Rakosi hafði þá setið 16 ár
í fangelsi fasistanna, dæmdur í lífstíðar fang-
elsi.
Var tekið á móti Corvalan og konu hans
251