Fréttablaðið - 14.03.2009, Side 12
12 14. mars 2009 LAUGARDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 29 Velta: 156 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
221 +1,11% 571 +1,44%
MESTA HÆKKUN
CENTURY ALUMIN. 12,39%
ÖSSUR 3,43%
FØROYA BANKI 0,97%
MESTA LÆKKUN
BAKKAVÖR 0,69%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 2,80 +0,00% ... Atlantic
Airways 171,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 235,00 +0,00% ...
Bakkavör 1,44 -0,69% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
0,75 +0,00% ... Føroya Banki 104,00 +0,97% ... Icelandair Group
11,20 +0,00% ... Marel Food Systems 49,30 +0,61% ... SPRON 1,90
+0,00% ... Össur 75,30 +3,43%
Stjórnvöld í Austurríki, Lúxemborg og Sviss
létu undan alþjóðlegum þrýstingi í gær og
afnámu hina helgu bankaleynd að hluta í því
augnamiði að svipta hulunni af skattsvik-
urum.
Ákvörðunin var tekin í kjölfar viðræðna
við Efnahags- og framfarastofnun (OECD)
um aukið gagnsæi á fjármálamörkuðum.
Ríkisstjórnir landanna feta í fótspor smá-
ríkjanna Andorra og Liechtenstein, sem
afléttu bankaleynd að hluta á fimmtudag.
Bandaríska dagblaðið New York Times
segir líklegt að fleiri ríki fylgi fordæminu.
Bankaleynd var harðlega gagnrýnd fyrir
ári þegar þýska leyniþjónustan komst yfir
upplýsingar um að bankar í Liechtensten
hefðu hjálpað hundruðum auðmanna að
komast hjá skattgreiðslum með því að milli-
færa fé í skattaskjól.
Líklegt þykir að hertari reglur um milli-
færslur og undanskot með þessum hætti
verði samþykktar á leiðtogafundi tuttugu
stærstu iðnríkja heims í Lundúnum um
næstu mánaðamót. - jab
SKATTASKJÓL Yfirvöld í Liechtenstein hafa sam-
þykkt að svipta hulunni af þeim sem hafa svikið
undan skatti í skjóli bankaleyndar. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Aflétta bankaleynd
Hver ræður för?
Málþing Sjónarhóls um félagslega stöðu barna með sérþarfi r
fi mmtudaginn 19. mars kl. 12.30 – 17.00 á Grand Hótel, Sigtúni 38.
Á málþinginu verður fjallað um félagslega stöðu barna með sérþarfi r,
um reynslu þeirra og upplifun.
Fagfólk, foreldrar, systkini, afar og ömmur og allir þeir sem láta sig
málefni barna með sérþarfi r varða eru hvattir til að mæta.
Skráning fer fram á heimasíðu Sjónarhóls
www.sjonarholl.net
„Þetta eru mikil von-
brigði,“ segir Ragnar Z.
Guðjónsson, sparisjóðs-
stjóri Byrs, um afkom-
una á síðasta ári. Hún
hefur aldrei verið verri.
Byr tapaði 28,8 millj-
örðum króna í fyrra,
sem er umtalsverður
viðsnúningur frá í hitt-
iðfyrra þegar hagnað-
urinn nam rúmum 7,9
milljörðum.
Mest munar um varúðarniður-
færslu á útlánum upp á 25 millj-
arða króna og niðurfærslu á við-
skiptavild (óefnislegum eignum)
upp á um fjóra milljarða. Á sama
tíma í fyrra nam virðisrýrnun
sparisjóðsins tæpum 817 millj-
ónum. Við bætist tap af fjáreign-
um og hlutdeildarfélögum upp á
rúma tíu milljarða króna.
Ragnar segir niður-
stöðuna lýsandi dæmi
um það áfall sem dunið
hafi á landsmenn frá í
fyrrahaust. Við fall bank-
anna hafi farið af stað
atburðarás sem enn sjái
ekki fyrir endann á, að
sögn Ragnars. „Það hafa
tapast óheyrileg verð-
mæti á stuttum tíma.
Við erum að verða fyrir
því nú en erum þó ánægð
að standa enn eftir þennan brot-
sjó.“ Eiginfjárhlutfall Byrs fór úr
40,2 prósentum í hittiðfyrra í 8,3
prósent á síðasta ári. Eiginfjár-
hlutfallið má ekki fara undir 8,0
prósent, samkvæmt reglum um
fjármálafyrirtæki.
Stjórnendur Byrs hafa gripið til
ýmissa aðgerða í hagræðingar-
skyni, svo sem dregið úr eigna-
stýringu og fjárfestingarstarf-
semi. Þá ætlar Byr að sækja um
framlag frá stjórnvöldum vegna
sérstakra aðstæðna á fjármála-
markaði, erindið verður sent fjár-
málaráðherra í næstu viku.
Lög þessa efnis heimila ríkis-
sjóði að leggja sparisjóðum til
fjárhæð sem nemur allt að fimmt-
ungi af bókfærðu eigin fé í árslok
2007, gegn stofnfjárbréfum í við-
komandi sparisjóði, sem endur-
gjald í samræmi við framlagið.
Ragnar segir ekki liggja fyrir
hvenær kallinu verði svarað. Einn
sparisjóður hafi sótt um framlag
frá ríkinu í janúar en hann ekki
fengið lausn sinna mála enn. „Við
vitum ekki hvenær svar berst,“
segir hann. Þrýst hafi verið á
stjórnvöld að setja tímaramma
fyrir umsóknarferli sem þetta.
jonab@markadurinn.is
Byr tapaði 29 milljörðum
Síðasta ár var það erfiðasta sem stjórnendur Byrs hafa staðið frammi fyrir.
Lýsandi dæmi um áfallið sem dundi á landsmönnum, segir sparisjóðsstjórinn.
Finnska fjármálafyrirtækið
Sampo jók við hlut sinn í Nordea,
umsvifamesta banka Norðurland-
anna, í hlutafjáraukningu bankans
á miðvikudag og situr nú á fimm-
tán prósentum bréfa í bankanum.
Sampo er næststærsti hluthafi
Nordea á eftir sænska ríkinu með
fimmtán prósenta hlut. Exista
var stærsti hluthafi bankans en
seldi hann allan í október.
Jarmo Salonen, talsmaður
Sampo, segir í samtali við
Reuters, að stjórnendur
fjármálafyrirtækisins hafi aldrei
farið í felur með þá ætlun sína að
auka við hlut sinn í bankanum.
Ekki standi þó til að leggja fram
yfirtökutilboð í hann. - jab
Sampo keypti
meira í Nordea
RAGNAR Z.
GUÐJÓNSSON