Fréttablaðið - 14.03.2009, Page 32
I BLS. 2 + Bókaðu á www.icelandair.is
Flug til Bergen gefur 2.500–8.000 Vildarpunkta.
Vildarklúbbur
BERGEN
MÍN Helga Jóhannsdóttir, rafmagnsverkfræðingur
MIÐBÆRINN OG BRYGGEN
Þegar sólin skín streyma Bergenbúar niður í
miðbæ, göturnar fyllast af fólki og lifnar yfir öllu.
Þá er bara að setja regnhlífina inn í fatahengi,
finna kaffihús eða bar við Bryggen eða
Zakkariasbryggen og fá sér kaldan bjór. Útsýnið
er yfir höfnina sem er full af skemmtibátum,
stórum og smáum.
Elstu húsin á Bryggen eru sjaldgæfur fjársjóður
og virkilega þess virði að gefa sér tíma til að
skoða þau og kynna sér sögu þeirra. Þarna eru
söfn, verslanir, sem selja skandinavíska hönn-
unarvöru, matsölustaðir og barir, allt í gamla
stílnum.
STÆRSTA SEGLSKIP
NORÐMANNA
Í Bergen er heimahöfn stærsta seglskips
Norðmanna, Statsraad Lehmkuhl, sem var
smíðað árið 1914. Tignarlegt skip. Þegar skipið
er í höfn er hægt er að kaupa sér ferð með því
að kvöldi til og sigla um skerjagarðinn fyrir utan
Bergen. Spiluð er lifandi músík.
SÖFN OG TÓNLIST
Það er mikið af söfnum í Bergen og menningin
lifir góðu lífi. Mest er um að vera í byrjun
sumars. Þá eru tvær hátíðir sem vert er að mæla
með: Festspillene, 20. maí–3. júní (fib.no) og
Nattjazz 20.–30. maí (nattjazz.no).
Í STRIGASKÓM
MEÐ KVIKK-SÚKKULAÐI
Gönguferðir kosta ekkert og í Bergen er um
margar gönguleiðir að velja. Farið í strigaskóna,
pakkið niður Kvikk-súkkulaði og vatni og skellið
ykkur út í náttúruna. Þeir sem eru í sæmilegu
formi ættu að ganga upp Stoltzekleiven. Þetta
er brattur stígur í göngufjarlægð frá miðbænum.
Þeir sem eru lofthræddir þurfa ekki að hafa
neinar áhyggjur og útsýnið er stórkostlegt.
Þegar upp er komið er hægt að fara sömu leið
niður eða ganga áfram, t.d. yfir til Fløyen og
þaðan niður í miðbæ. Gefið ykkur góðan tíma á
leiðinni niður Fløyen meðan þið nálgist
miðbæinn. Hér er mikið af gömlum timburhúsum
sem standa við þröngar, brattar götur. Afskap-
lega sjarmerandi. Fyrir þá sem eru fótlúnir eða
hafa minni tíma er bara að taka Fløybanen upp
á Fløyen og ganga svo niður.
SÆDÝRASAFNIÐ NORDNESBAKKEN 4
Ef börn eru með í för hafið þið góða afsökun
til að heimsækja Sædýrasafnið (Akvariet).
Þar finnið þið m.a. krókódílinn Samson, selinn
Linus og mörgæsina Pingrid Alexöndru.
Stórskemmtilegt fyrir fólk á öllum aldri.
VERSLANIR
Í miðbænum eru verslunarmiðstöðvar eins og
Galleriet, Xhibition og Kløverhuset. Ef þið viljið
sjá eða kaupa fallega norska fatahönnun, mæli
ég með búðinni Oleana, Strandkaien 2. Til að
finna eitthvað sem er „öðruvísi“ þarf maður að
fara út fyrir Torgallmenningen og leita í
hliðargötunum.
ESCALON VETRLIDSALLMENNINGEN 21
Uppáhaldsmatsölustaðurinn minn. Lítill tapas-
staður í kjallara rétt við Fløybanen. Munið að
panta borð. Matsölustaðir með þessu nafni eru
á fleiri stöðum í Bergen en mér finnst þessi
notalegastur.
HOLBERGSTUEN TORGALLMENNINGEN 6
BRYGGELOFTET & STUENE BRYGGEN 6
Ég mæli með þessum veitingastöðunum þegar
sannir Íslendingar ætla að sinna þeirri sjálf-
sögðu skyldu að kynna sér björgvinska matar-
menningu. Hún er ekki sérlega „elegant“ en
matarmikil og „back to basics“. Prófið lapskaus,
persetorsk eða fimmtudagsmatinn raspeballer.
Pinnekjøtt og lutefisk er því miður bara hægt að
fá í kringum jólin.
POTETKJELLEREN KONG
OSCARSGATE 1A
Góður en dýr matsölustaður í enn einni
kjallaraholunni, eins og nafnið gefur til kynna.
Sjarmerandi staður og frábær matur.
PYGMALION
NEDRE KORSKIRKEALLMENNINGEN 4
CAFÉ OPERA ENGEN 18
Ágætismatur á ágætisverði.
TO GLASS VINBAR
VETRLIDSALLMENNINGEN 19
Ég mæli með þessum bar. Þar er gott að sötra
ljúffengt rauðvín og panta jafnvel ólívur og
serrano-skinku með sem snakk.
Flug og gisting í 2 nætur
frá 57.900 kr.
á mann í tvíbýli á Thon Hotel
Sandviken Brygge ***
Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar,
gisting og morgunverður.
Reykjavík – Bergen
frá 14.900 kr.
Flug aðra leiðina með flugvallarsköttum.
Flogið er 2 sinnum í viku.Veitingastaðir
BOCCA ØVRE OLE BULLPLASS 3
Bar á góðum stað, miðsvæðis í bænum og í
næsta nágrenni við leikhús, matsölustaði og
næturklúbba.
COLONIALEN ENGEN 8
Þið verðið að prófa þennan „gourmet-stað“ þar
sem hægt er að fá brauð með girnilegu kjöt-
áleggi og ostum sem eru hver öðrum betri.
Ég mæli með öllu á matseðlinum og verðið er
sanngjarnt miðað við magn og gæði. Líka er
hægt að kaupa gómsætar samlokur og taka
með. Fyrir matnautnafólk er þetta veitingastaður
á kvöldin (í kjallaranum að sjálfsögðu) og þar
fáið þið með betri mat sem hægt er að fá í
Bergen. Það kostar sitt og verður að panta
borð, helst með góðum fyrirvara.
GODT BRØD VESTRE TORGGATE
Ef ég fæ ekki borð á Colonialen rölti ég yfir á
Godt brød. Þarna eru smurðar samlokur sem
fólk velur sjálft áleggið á, og allt er lífrænt, þ.e.
hollt og gott. Staðurinn er víðar í Bergen. Prófið
líka Café Aura, Marken 9, sem stendur við
sjarmerandi göngugötu og býður góðar
veitingar á góðu verði, og Vågen Fetevare,
Kong Oskarsgate sem er kaffihús með sál og
góðar veitingar.
Amsterdam . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Bergen . . . . . . . . . . . . . . . . frá 14.900 kr.
Barcelona . . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Berlín . . . . . . . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Boston. . . . . . . . . . . . . . . . . frá 29.720 kr.
Düsseldorf . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Frankfurt . . . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Glasgow . . . . . . . . . . . . . . . frá 14.900 kr.
Halifax . . . . . . . . . . . . . . . . frá 25.400 kr.
Helsinki . . . . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Kaupmannahöfn . . . . . . . frá 14.900 kr.
London . . . . . . . . . . . . . . . . frá 14.900 kr.
Madrid . . . . . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Manchester . . . . . . . . . . . . frá 14.900 kr.
Milano . . . . . . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Minneapolis . . . . . . . . . . . frá 29.720 kr.
München . . . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
New York . . . . . . . . . . . . . . frá 29.720 kr.
Orlando . . . . . . . . . . . . . . . frá 31.220 kr.
Osló . . . . . . . . . . . . . . . . . . frá 14.900 kr.
París . . . . . . . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Stavanger . . . . . . . . . . . . . frá 14.900 kr.
Stokkhólmur . . . . . . . . . . . frá 14.900 kr.
Toronto . . . . . . . . . . . . . . . . frá 25.400 kr.
*Verð aðra leiðina með sköttum og gjöldum.
Besta verðið okkar*
+ Bókaðu á www.icelandair.is
Öll verð miðast við lægstu verð í verðskrá
og geta á einhverjum tímapunkti verið uppseld.