Fréttablaðið - 14.03.2009, Qupperneq 44
Grænni skógar er heitið á nám-
skeiðaröð á vegum Landbúnað-
arháskóla Íslands í samstarfi við
Skógrækt ríkisins, Landgræðslu
ríkisins og fleiri. Námskeiðin eru
hugsuð fyrir áhugafólk um skóg-
rækt á Íslandi. „Þessi námskeið
eru sérstök fyrir þær sakir að
þetta er námskeiðaröð sem stend-
ur yfir í þrjú ár og fólk er með
alveg frá byrjun öll árin,“ útskýr-
ir Björgvin Eggertsson verkefn-
isstjóri Grænna skóga. Þátttak-
endur fá að meðaltali tvö til þrjú
námskeið á önn sem taka tvo daga
í kennslu.
„Þetta þjappar skógræktendum
saman. Þarna hittist fólk með sama
áhugamál og getur borið saman
bækur sínar í kaffispjallinu. Eftir
að hafa verið saman í þetta lang-
an tíma á námskeiði er fólk farið
að þekkjast vel og umræðan verð-
ur bæði markvissari og skemmti-
legri.“
Björgvin segir kostinn við að
dreifa námskeiðstímanum á fleiri
ár vera að þátttakendur fái þá
tækifæri til að prófa og uppgötva
hluti í ræktuninni hjá sér í millitíð-
inni. Námskeiðin eru í fyrirlestr-
arformi en einnig er lögð áhersla
á verklega kennslu tengdri hverri
árstíð og farið í vettvangsferðir.
Námskeiðin hafa verið haldin í
hverjum landsfjórðungi fyrir sig
undanfarin átta ár og nú þegar er
í gangi námskeið á Norðurlandi.
Þessa dagana er verið að taka við
skráningu á tvö ný námskeið, á
Suðurlandi annars vegar og Vest-
urlandi hins vegar.
Björgvin segir árangurinn af
námskeiðunum ótvíræðan en um
200 manns hafa farið í gegnum
prógrammið. „Námskeiðaröð-
in skiptir miklu máli fyrir skóg-
ræktarverkefni um allt land til að
ná meiri árangri með sínum skóg-
ræktarbændum,“ segir Björgvin.
„Fyrir nokkrum árum gróðursettu
menn bara og afföll voru mikil á
gróðursettum plöntum. Nú er
vitneskja þeirra sem eru að rækta
á allt öðru stigi en bara fyrir tíu
árum og afföll miklu minni.“
Með haustinu er svo í bígerð
að kynna framhaldsnámskeið,
Grænni skógar 2 fyrir þá sem
hafa tekið fyrri námskeiðin og
segir Björgvin það starf í mótun.
Það er því kraftur í ræktun skóga
á Íslandi í dag. „Menn eru ekkert
að hætta að rækta skóg á Íslandi.
Það er mikill hugur í mönnum að
halda áfram. Þá er fræðslustarfið
svo mikilvægur hluti.“
Hægt er a skrá sig á námskeið-
in sem hefjast í vor á www.sudur-
skogur.is og www.vesturskogar.is
fyrir 20. mars. Einnig má senda
fyrirspurnir á www.bjorgvin@
lbhi.is heida@frettabaldid.is
Grænni skógar landsins
Sagan segir að eitt sinn hafi Ísland verið skógi vaxið milli fjalls og fjöru. Námskeiðið Grænni skógar mið-
ar að því að ræktendur skóga á Íslandi ná sem bestum árangri í gróðursetningu og umhirðu plantna.
Vaskur hópur í vettvangsferð á námkeiðinu Grænni skógar. MYND/ÚR EINKASAFNI
ENDURMENNTUN Háskóla Íslands verður með kynningu klukkan 14 í
dag á þeim tólf námsbrautum sem verða í boði á haustmisseri 2009 í húsi
Endurmenntunar að Dunhaga. Í fyrsta sinn verður boðið upp á námsbrautir á
meistarastigi.
Þura Stefánsdóttir býður upp á
förðunarnámskeið fyrir konur
sem vilja ná góðum tökum á því
að farða sig sjálfar.
Förðunar- og snyrtifræðimeistar-
inn Þura Stefánsdóttir hjá makeup-
time4u býður upp á förðunarnám-
skeið fyrir hópa og einstaklinga.
Námskeiðið hentar til að mynda
vinkonum, saumaklúbbum og
vinnustöðum og er bæði hægt að
læra létta dagsförðun og íburðar-
meiri kvöldförðun.
Yfirleitt er boðið upp á opin nám-
skeið fyrir blandaða hópa á þriðju-
dögum en hópum og einstakling-
um er síðan frjálst að panta þann
tíma sem hentar.
Hagstæður fjöldi á námskeið er
4-8 konur í hóp en þannig er reynt
að tryggja einstaklingsmiðaða og
árangursríka kennslu. Þátttakend-
ur koma með eigin förðunarvörur
og læra að nota þær. Verð á mann
er 6.900 krónur en innifalin eru
kennslugögn, snyrtibudda og gloss.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.makeuptime4u.is. - ve
Læra að nota eigin
förðunarvörur
Á námskeiðunum er hægt að læra létta dagsförðun og íburðarmeiri kvöldförðun.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
www.tskoli.is
Styrktu stöðu þína
Nánari upplýsingar og skráning er á vefsíðu Tækniskólans
www.tskoli.is, á ave@tskoli.is og í síma 514 9601.
Tölvur
og upplýsingatækni
Þrívíddarvinnsla
Farið verður í grunnatriði þrívíddarvinnslu.
Tími: 5. - 19. maí.
Námskeiðsgjald: 23.000 kr.
Umhverf i og útivist
GPS tæki og rötun
Almennt námskeið fyrir byrjendur og þá sem
vilja uppriun í notkun á staðsetningartækjum.
Tími: 5., 7. og 9. maí.
Námskeiðsgjald: 12.500 kr.
Grjóthleðslur – náttúrugrjót
Námskeið fyrir þá sem vinna við eða hafa
áhuga á grjóthleðslum úr náttúrugrjóti.
Fjögur laus pláss.
Tími: 25. - 27. mars eða 4. og 18. apríl.
Málmur og tré
Málmsuða - byrjendur
Námskeið fyrir þá sem eru að fást við málm-
suðu og langar að læra meira.
Tími: 28. - 30. apríl.
Námskeiðsgjald: 21.500 kr.
Hönnun og handverk
Íslensk vistvæn hönnun
Vinnustofa undir handleiðslu Karls Aspelund
fatahönnuðar.
Tími: 18. mars, kl. 19:00 - 22:00.
Námskeiðsgjald: 3.500 kr.
Rekstur og stjórnun
Nýsköpun og stofnun
fyrirtækja
Hagnýtt námskeið er miðar að þróun
viðskiptahugmyndar yfir í viðskiptatækifæri
og gerð fullbúinnar viðskiptaáætlunar.
Tími: 30. mars - 16. maí. Lotuarnám.
Námskeiðsgjald: 50.000 kr.
Rekstur f lugfélaga
Farið verður í helstu form flugrekstrar,
rekstrarumhverfi flugfélaga og hvernig það
er frábrugðið öðrum rekstri.
Tími: 30. mars - 16. maí. Lotuarnám.
Námskeiðsgjald: 50.000 kr.
Undirbúningsnám-
skeið fyrir sveinspróf
Undirbúningsnámskeið fyrir
sveinspróf í rafvirkjun
Kennt er á kvöldin og um helgar.
Tími: Hefst 11. maí.
Námskeiðsgjald: 40.000 kr.
Skip- og vélstjórn
Undirbúningsnámskeið fyrir
skemmtibátapróf
Kennd verða bókleg atriði, sem krafist er skv.
námskrá til skemmtibátaprófs, í siglingafræði,
siglingareglum og stöðugleika.
Tími: 21. - 26. mars og arnám frá 5. apríl.
Námskeiðsgjald: 28.500 kr.
Smáskipanámskeið (12 m)
Smáskipanám kemur í stað þess sem áður
var nefnt 30rl réttindanám (pungapróf).
Tími: Námskeiðið hefst 15. apríl og í
lotufjarnámi 4. apríl.
Námskeiðsgjald: 105.000 kr.
Skip- og vélstjórnarréttindi
Ætlað þeim sem vilja endurnýja réttindin og
kynna sér nýjungar í atvinnugreinunum.
Tími: Skipstjórn 1. - 3. apríl.
Vélstjórn 4. - 6. maí.
Námskeiðsgjald: 72.000 kr.
Hásetafræðsla
- aðstoðarmenn í brú
Verkleg þjálfun skv. staðli STCW-A, II/4.
Tími: 11. og 12. maí.
Námskeiðsgjald: 65.000 kr.
ARPA ratsjárnámskeið
Grunn- og endurnýjunarnámskeið sem uppfylla
kröfur Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar um
notkun ratsjár og ARPA. Tvö laus pláss.
Tími: 19. - 20. mars (endurnýjun).
14. - 17. apríl (grunn- og endurnýjun).
Grunnnámskeið: 72.000 kr.
Endurnýjunarnámskeið: 33.000 kr.
Smáskipavélavörður 750kW
Námskeið fyrir smáskipavélaverði skv.
reglugerð nr. 175/2008.
Tími: 4. - 15. maí.
Námskeiðsgjald: 96.000 kr.
IMDG
Grunn- og endurnýjunarnámskeið um meðferð
og flutning á hættulegum varningi um borð í
þurrlestarskipum. Námskeiðið uppfyllir kröfur
Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO).
Tími: 4 - 7. maí.
Grunnnámskeið: 55.000 kr.
Endurnýjunarnámskeið: 17.000 kr.
GMDSS GOC-ROC
Alþjóða neyðar- og öryggisarskiptakerfið.
Námskeiðið er tvískipt. ROC hentar þeim sem
ætla að ná sér í 65 BT réttindi. Tvö laus pláss.
Tími: Hefst 16. mars.
GOC: 125.000 kr.
ROC: 65.000 kr.