Fréttablaðið - 14.03.2009, Page 62

Fréttablaðið - 14.03.2009, Page 62
6 matur Flestir krakkar, ekki síður en við fullorðna fólkið, vilja gjarn- an sama morgun- mat dag eftir dag og hann ræðst oft af þeim tak- markaða tíma sem flestir hafa á morgnana. Því má segja að hafra- grauturinn eða morgunkorn- ið standi alveg fyrir sínu. Hins vegar er bæði gott og skemmti- legt að venja börnin á meiri og fjölbreyttari morgunmat þá daga sem tími gefst til að verja lengri tíma saman við matarborðið, eins og um helgar og í fríum,“ segir Anna Sigríður Ólafsdóttir nær- ingarfræðingur en hún gefur les- endum uppskrift að grófu brauði og einföldu fiskiáleggi. „Fiskiáleggið er vinsælt á mínu heimili og litla stelpan er svo sólg- in í það að hún skóflar því helst upp í sig með skeið,“ segir Anna Sigríður og bætir því við að nauð- synlegt sé að auka fiskneyslu barna og unglinga. Einnig megi auka gróft korn, ávexti og græn- meti í daglegum matarskammti krakkanna en hún segir mat- vendni barna oft afleiðingu ein- hæfs fæðis. „Oft erum við fullorðna fólkið of fljót að afgreiða matinn út af borðinu ef hann gengur ekki vel í barnið í fyrstu tilraun, en börn þurfa að bragða á sama matnum oft til að venjast bragðinu. Það þarf bæði þjálfun, hrós og hvatn- ingu til að auka fjölbreytni í fæðu matvöndustu barnanna. Þá getur verið sniðugt að búa til umbunar- kerfi og gera smökkunina að skemmtilegum leik.“ - rat Morgunverður barnanna Gróft brauð með maukuðu fiskiáleggi ásamt ávöxtum og grænmeti er hollur og góður morgunmatur. Anna Sigríður Ólafsdóttir segir að auka þurfi fiskneyslu barna og unglinga. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Einfalt er að mauka egg, fisk og rjóma- ost í matvinnsluvél ofan á brauð. HOLLUR MORGUNVERÐUR FYRIR KRAKKANA FISKIÁLEGG 100-150 g af reykt- um silungi eða reykt- um laxi (má líka nota afganga af soðnum fiski í staðinn) 2 harðsoðin egg 1 kúfuð matskeið rjómaostur Öllu hrært saman í mat- vinnsluvél eða með töfrasprota og maukað, þó ekki of lengi. Mjúkt maukið er síðan tilbúið beint á brauðið. Gott er að setja nýmal- aðan pipar ofan á fyrir þá sem vilja meira bragð. Berið fram með fersku grænmeti eða ávöxtum að eigin vali. Appelsínur og epli geta verið vinsæl, eins brokkólí og gulræt- ur. Þurrkaðir ávextir, t.d. apríkósur, eru líka góðir með. HNETUBRAUÐ ALFONSAR 2 dl gróft hveiti (eða gróft spelt) 2 dl haframjöl 4 dl brauðhveiti 3 dl maltöl ½-1 dl hnetur að eigin vali, t.d. valhnetur 4 msk. sólblómafræ eða önnur fræ 2 tsk. þurrger 2 tsk. salt 1 msk. olía ½ msk. púðursykur Setjið olíu, salt og púður- sykur í skál. Hitið síðan maltölið í um það bil mínútu í örbylgjuofni og bætið svo út í skálina. Hinum innihaldsefnunum er svo bætt út í skálina. Hnoðið í hrærivél í 5 mín- útur þar til deigið er slétt og losnar frá skálinni. Getur þurft að bæta við 1-2 msk. hveiti. Smyrjið form og slétt- ið deigið í formið. Látið standa í 1-2 klst. á hlýjum stað, eða þar til deig- ið hefur tvöfaldast að stærð. Bakið í 25 mín. við 200° C. Hollt og gott! S Hafragrauturinn í morgunmat stendur alltaf fyrir sínu. Það getur þó verið skemmtilegt og hollt að breyta til, sérstaklega fyrir krakkana. Á köldum og dimmum vetri er nauðsynlegt að fá bæði fallegan lit í tilveruna og yl í kroppinn með því að hjúfra sig inni í hlýjunni yfir heitri súpu eða pastarétti frá Knorr. Alltaf einfalt, litríkt og gott með Knorr! Ljúffengar, tilbúnar súpur úr úrvals hráefni sem bara þarf að hita. Góðar jafnt sem forréttur eða aðalréttur fyrir tvo. Bara að hita og njóta! Hlýtt í vetur F í t o n / S Í A F I 0 2 4 6 5 5

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.