Fréttablaðið - 14.03.2009, Blaðsíða 67
LAUGARDAGUR 14. mars 2009 35
2010 VIÐURINN Starfsmenn Ásgarðs höggva sjálfir viðinn sem þeir smíða úr. Þessi viður var höggvinn í
fyrra og hefur legið úti í vetur. Í vor verður hann tekinn inn og grófþurrkaður áður en hann endar á lofti
verkstæðisins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
2009 VIÐURINN Þessi viður er á lokaskeiði þurrkunar og verða hagleiksmennirnir í Ásgarði, ef að líkum
lætur, búnir að umbreyta honum öllum í fallega muni fyrir næstu jól. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LISTASMÍÐ Þar sem áður var ölstofan
Álafoss föt bezt er nú kaffistofa starfs-
manna í Ásgarði, samkomusalur og
verslun, allt á einum stað. Þar er gólfið
farið að gefa sig og verður Samfélags-
verðlaunafénu meðal annars varið í
endurnýjun þess. Með fram veggjum
getur að líta gripina sem eru til sölu.
HUGMYNDAFRÆÐIN
Starfsemi Ásgarðs byggir á hug-
myndafræði sem ættuð er frá
Austurríkismanninum Rudolf Steiner
(1861-1925).
Fræði sín nefndi hann mannspeki
og eitt svið hennar tekur til uppeldis
þroskaskertra.
Í Ásgarði er ekki litið á fötlun sem
vandamál heldur sem möguleika
og gengið er út frá því að í hverri
manneskju sé heilbrigður kjarni
sem unnið er með. Þannig er reynt
að aðstoða fatlaðan einstakling
við að vinna með sína fötlun, til að
hæfileikar hans njóti sín sem best.
Í Ásgarði er lagður metnaður í að
þroska manneskjulegan þátt vinn-
unnar. Þannig er framleiðslan löguð
að getu hvers og eins fremur en að
laga starfsmennina að framleiðsl-
unni.
Meiri upplýsingar um Ásgarð er að
finna að heimasíðunni asgardur.is.
➜ ÁSGARÐUR
Handverkstæðið Ásgarður var
stofnað árið 1993 og hefur starfs-
leyfi frá félagsmálaráðuneytinu
sem verndaður vinnustaður. Þar
starfa nú 30 manns með þroska-
skerðingu í 21,5 stöðugildi og 9
aðstoðarmenn. Á verkstæðinu eru
framleidd leikföng og húsbúnaður,
allt úr tré. Einnig er nokkuð um
sérsmíði.
Frá upphafi hefur verið lögð
áhersla á að hanna og þróa ein-
föld, sterk og skemmtileg leikföng
sem eiga sér samsvörun í íslensk-
um þjóðháttum.
Mikil áhersla er lögð á að virkja
sköpunarkraft starfsmanna og að
örva þá til að stíga feti framar en
fötlun þeirra gefur tilefni til.
Starfsmenn fylgja hugmynd um
leikfang frá teikniborði, í fram-
leiðslu og svo áfram í markaðsetn-
ingu og sölu.