Fréttablaðið - 14.03.2009, Side 68
36 14. mars 2009 LAUGARDAGUR
Eigi leyna augun
Fréttablaðinu þótti það forvitnileg stúdía að vita hvað álitsgjafar nokkrir þóttust geta lesið í augu þjóðþekktra Íslendinga án þess
að hafa hugmynd um hverjum augun tilheyrðu. Júlía Margrét Alexandersdóttir fékk að vita hvað almannatenglarnir Ómar R.
Valdimarsson og Andrés Jónsson sem og Gurrí Haraldsdóttir blaðamaður lásu í linsurnar.
ÓMAR R. VALDIMARSSONGUÐRÍÐUR HARALDSDÓTTIR ANDRÉS JÓNSSON
Ómar: Þessi augu virka á mig eins og augun
í Matlock. Svona týpa sem er ótrúlega
réttsýn og leitar að því góða í öllum. Þessi
manneskja er búin að lifa tímana tvenna og
veit til dæmis muninn á kreppu og því að
geta ekki endilega keypt sér nýjan flatskjá á
morgun. Þessi einstaklingur býr í skuldlausu
húsnæði og fussar þegar hann heyrir minnst
á myntkörfulán.
Gurrí: Þessi manneskja hefur marga fjöruna
sopið … Hann hefur sérkennilega sýn á lífið,
jafnvel kaldranalega. Hann er góðmenni …
með svartan húmor og er stundum hugsun-
arlaus sem fólk misskilur sem tillitsleysi.
Andrés: Lífskúnstner fram í fingurgóma.
Sjónin aðeins farin að daprast. En það kemur
ekki að sök. Hann er enn hinn sprækasti og
hleypir reglulega upp kokkteilboðum, vítt
og breitt um miðbæinn, með analystískum
anekdótum sínum um lífið og tilveruna.
Kemur hann þá jafnan flatt upp á menn.
Hann er meira hrifinn af Honey Corn Flakes
en þessu gamla þarna venjulega. Fátt veitir
honum eins mikinn unað og hunangið – en
hann segir engum frá þessari nautn. Ekki
viðhlæjendum sínum í kokkteilboðunum
allavega.
Ómar: Þessi augu eru mjög falleg, en þó
dálítið stjörf, hugsanlega eftir að hafa sökkt
sér ofan í lestur stórtíðinda í boði perezhilt-
on.com og people.com. Það kæmi mér ekki
á óvart ef líf þessarar manneskju hefði verið
mun skemmtilegra árið 2007 heldur en í
dag.
Gurrí: Augun eru svolítið dapurleg og bera
vott um viðkvæmni. Þessi kona hleypir ekki
hverjum sem er að sér þótt hún virðist opin.
Hún hefur lært af lífinu að ekki er öllum
treystandi.
Andrés: Hér er komin hörð kona – nagli.
Rannsakandi augu hennar sjá í gegnum
slægustu lygalaupa og skilja þá eftir vopn-
lausa. Hún er eins og tvær manneskjur, eftir
því hvort hún er heima hjá sér eða í vinn-
unni. Er mjög prívat manneskja sem nýtur
þess að vera í faðmi fjölskyldunnar. Hún
á páfagauk sem heitir Jens og er nefndur
eftir mjög skemmtilegum félaga hennar og
mannsins hennar, sem þau fara árlega með
í gönguskíðaferð um túndrur Lapplands.
Af páfagauknum er það að segja að hann
er orðinn fjörgamall og þjáist af þunglyndi.
Deilt er um það á heimilinu hvort endurtekin
flug hans á eldhúsgluggann séu raunveruleg-
ar sjálfsvígstilraunir.
Augun tilheyra: Thor Vilhjálmssyni
rithöfundi
Augun tilheyra: Rannveigu Rist forstjóra
Ómar: Þessi augu gætu tilheyrt einhverjum í
stjórnmálum, í Fjármálaeftirlitinu eða einni af
skilanefndum bankanna. Líklega er viðkom-
andi orðinn pínu þreyttur og búinn að fá sig
pakksaddan af bankamönnum, ofurlaunum,
kaupréttum og bónusum. Gallinn er bara
sá að út af djobbinu kæmi það manni ekki
á óvart að þessi manneskja þurfi að garfa í
þessari ruslatunnu næstu tíu árin eða svo.
Gurrí: Þessi manneskja sér á einhvern hátt
lengra en nef hennar nær. Í augum hennar
má greina visku og lærdóm. Hún er þreytt
eða undir álagi.
Andrés: Þessi lítur flest fólk og félagasamtök
hornauga. Honum er illa við Lions-klúbba
og þolir ekki Rotary. Þá vill hann frekar fá
að horfa á sitt sjónvarp og tala upphátt við
sjálfan sig um auglýsingarnar sem eru í sjón-
varpinu. Hann er mikið fyrir útivist og er með
öll örnefni á hringveginum á hreinu. Hann
þverskallast jafnan við ef honum er boðið til
útlanda. Honum finnst lítið þangað að sækja.
Hann leggur mikla áherslu á að opna augu
annarra fyrir því mikla vandamáli sem er
dræm þátttaka í kröfugöngum.
Ómar: Glimrandi sjarmerandi augu sem
tilheyra einhverri manneskju sem þarf ekki
annað en að blikka mann til þess að heilla
mann upp úr skónum. Eitt ofurlítið bros
og svo blikk og hvaða karlmaður sem er
yfirgefur fjölskylduna sína og býðst til þess
að fremja landráð. Sem betur fer bera þessi
augu þó það með sér að kæra sig ekkert um
slíka karlpunga.
Gurrí: Mikill húmor og lífsgleði ríkir hjá þess-
ari manneskju, útlitið skiptir hana máli, en
alls ekki öllu. Hún kann að meta það góða í
lífinu og veltir sér ekki upp úr smámunum.
Andrés: Þetta er fín frú. Svona yfirstéttar-
kona með öllu; pels, Range Rover, hús á
Flórída þar sem hún iðkar golfíþróttina af
miklum krafti. Ekki ólíklegt að maðurinn
hennar sé stæltur stælgæi með fortíð í
íþróttaheiminum. Hún vill stóra og stæðilega
menn sem opna dyrnar fyrir henni þegar
hún stígur út úr Range Rovernum og inn á
frumsýningar í Óperunni eða Þjóðleikhúsinu.
Fáir vita, að neðarlega á öðrum kálfanum má
sjá móta fyrir lítilli rós með gaddavír í kring.
Húðflúrið er nær alveg horfið – bernskubrek
frá því í útskriftarferð með MS til Rimini.
Ómar: Þessi augu tilheyra pottþétt mann-
eskju sem auðvelt er að kunna vel við.
Ljúf, brún augu sem gefa frá sér hlýju og
vingjarnleika. Þau gætu til að mynda tilheyrt
einhverjum sem er að passa börn eða vinnur
við umönnunarstörf. Ég myndi treysta henni
til þess að passa annaðhvort dóttur mína
eða mömmu og pabba, þegar þau komast
á aldur.
Gurrí: Falleg augu, þrungin visku og galdri en
jafnframt svolítilli þreytu. Hún fer sínar eigin
leiðir og þolir illa að láta segja sér fyrir verk-
um. Fólk veit ekki alltaf hvar það hefur hana.
Andrés: Þetta líkar mér. Smekklegar
broshrukkur kæta viðmælendur þessarar
hógværu og hæglátu konu. Hún hefur lifað
margar gæðastundir, ein með góða bók. Hún
býr í Vesturbænum í kjallaraíbúð, en fer alltaf
einu sinni ári í sumarfrí til Laugavatns og
dvelur þá á Hótel Eddu og stundar gufubaðið
grimmt. Einu sinni fór hún nakin í gufubaðið
með nokkrum þýskum landfræðingum af
báðum kynjum og þegar hún rifjar það upp
þá verða augun svona dreymin eins og sést
hér. Hefur mikinn áhuga á garðrækt og er
þekkt fyrir einstakt lag á túlípönum.
Ómar: Biddu fyrir þér, Denni dæmalausi
er mættur á svæðið! Það er einhver pínu
góðlátleg stríðni í þessum augum. Ekkert
vont eða neitt í þá áttina, heldur kannski
frekar manneskja sem myndi hlæja að þér
ef þú rynnir á rassgatið í hálkunni – eftir að
hún væri búin að ganga úr skugga um að þú
hefðir ekki meitt þig.
Gurrí: Þetta er frekar varkár manneskja sem
getur verið hinn mesti stríðnipúki gagnvart
þeim sem hún þekkir vel. Hefur kalda sýn á
lífið sem hlýnar ekki með hækkandi aldri.
Andrés: Þessi kattaraugu tilheyra viðkvæmri
listaspíru sem breytist í djammdrottningu
um helgar. Þú finnur þessi augu skimandi
yfir svæðið frá hornborðinu innst á Kaffibarn-
um seint um kvöld. Er oft spurð af útlend-
ingum hvort hún sé með bláar linsur, því blá
augun lýsa svo skært í bjarta sumarnóttina.
Kýs Vinstri græna og ekki er ólíklegt að
hún hafi átt náið samband við Caterpillar-
vinnuvél, eitt sumarið sem leið. Þekkir allt
fólkið sem vinnur á veitingastaðnum Maður
lifandi og man eftir afmælisdögunum þeirra.
Föndrar þá fyrir þau lítil kreppappírshjörtu
skreyttum glimmeri og litlum gullkornum
um lífið og tilveruna. Það er alltaf verið að
segja henni að opna feisbúkk-síðu og selja
hjörtun þar til almennings. Þetta er svo krútt-
legt hjá henni nefnilega.
Ómar: Þetta er hörkutól og glamúrgæi.
Hann kallar ekki allt ömmu sína og hikar
aldrei, þegar hann þarf að taka ákvörð-
un. Hann segir líklega hlutina algjörlega
umbúðalaust og nennir ekki að velta því of
mikið fyrir sér hvort einhverjir fari að væla
undan honum – það bara skiptir ekki máli.
Hann elskar mömmu sína út af lífinu og
pabbi hans er hans helsta fyrirmynd.
Gurrí: Þessi augu segja mikið en halda samt
svo mörgu leyndu. Viðkvæmni býr í þeim
en jafnframt ótti við að opinbera hana fyrir
öðrum. Vill ekki sýna „veikleikamerki“.
Andrés: Annað augað stærra en hitt benda
til að þessi maður sé slóttugur og undir-
förull. Gæti hafa starfað í stjórn einhvers
lífeyrissjóðs. Keyrir um á dýrum slyddujeppa
sem er farinn að síga í veskið með gengis-
ruglinu öllu, sem hann getur þó ekki kennt
neinum um nema sjálfum sér og starfs-
systkinum sínum í fjármálageiranum. Bræðir
öll kvensmannshjörtu og dáleiðir þær með
„bad-boy“ lúkki. Er mættur í ræktina á þeim
tímum þar sem hann á von á að hitta flesta
nýríku kunningjana sína. Er búinn að vera
með VIP-kort í Laugum frá því áður en stöðin
var opnuð.
Ómar: Þessi náungi er hokinn af reynslu lífs-
ins. Honum finnst fáránlegt að ekki sé hægt
að senda krakka út á vinnumarkaðinn þegar
þeir eru orðnir 12 ára og skilur ekkert í því að
börn séu ekki enn þá send í sveit á sumrin.
Hann sótti sjóinn á sínum unglingsárum og
gerir sér fyllilega grein fyrir því að verðmæti
verða ekki til með pappírsgjörningum. Hann
er rosalega stoltur af börnunum sínum – sér-
staklega því sem vann sem sumarafleysinga-
manneskja í álverinu í Straumsvík.
Gurrí: Þessi manneskja hefur marga fjöruna
sopið … Hann hefur sérkennilega sýn á
lífið, jafnvel kaldranalega. Hann er góð-
menni … með svartan húmor og er stundum
hugsunarlaus sem fólk misskilur sem
tillitsleysi.
Andrés: Þessi er refur, þótt hann sé vissu-
lega réttsýnn. Augnaráðið er ískalt og spyrj-
andi. Hann hefur séð tímana tvenna. Veit
að það er ekki allt sem sýnist í heimi hér. Ef
hann sér eitthvert óréttlæti þá skjóta augun
gneistum og menn hrökklast frá af augna-
ráðinu einu saman. Hann nennir aldrei að
gefa útlenskum ferðamönnum leiðbeiningar,
heldur þusar eitthvað og stikar hratt í burtu.
Gæti hafa leikið nasistaforingja, já eða bresk-
an njósnara á sviði eða í bíómynd. Nei, nú sé
ég hver þetta er. Þetta er framkvæmdastjóri
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Augun tilheyra: Eiríki Jónssyni ritstjóraAugun tilheyra: Margréti Láru Viðarsdóttur
íþróttamanni
Augun tilheyra: Svövu Johansen
verslunarkonu
(Augun tilheyra: Steingrími J. Sigfússyni
fjármálaráðherra)
(Augun tilheyra: Svandísi Svavarsdóttur
stjórnmálamanni)
Augun tilheyra: Loga Geirssyni íþrótta-
manni
Álitsgjafar Fréttablaðsins voru: