Fréttablaðið - 14.03.2009, Page 75

Fréttablaðið - 14.03.2009, Page 75
LAUGARDAGUR 14. mars 2009 43 „Þetta er nafn afa míns, sem var frá Höfðahúsum í Fáskrúðs- fjarðarhreppi og var fæddur 1903,“ segir Guðmundur Berg- kvist Jónsson, eða Beggi eins og hann er alltaf kallaður. Beggi er kvikmyndagerðar- maður hjá Ríkissjónvarpinu og á ekki marga nafna. „For- eldrar mínir ákváðu að skíra mig í höfuðið á báðum öfum mínum, en ég hef alltaf verið kallaður Beggi eins og afi var kallaður. Ég á frænda sem heitir Bergkvist Ómar og býr hann á Fáskrúðsfirði. Við erum sem sagt þrír sem höfum borið þetta nafn frá upphafi og allir frá Fáskrúðsfirði. Ekki beint tískunafn þótt fallegt sé. Afi dó árið 1986 og erum við því tveir á lífi,“ segir hann. „Einu skýringarnar sem ég hef fengið á nafninu mínu eru að afi minn hafi á sínum tíma verið skírður í höfuðið á nátt- úrunni, nafnið hafi verið dregið af kjarri sem stóð á bergi fyrir ofan bæinn,“ segir Beggi. Sam- kvæmt nafnabók hefur nafn- ið enga þýðingu, það er sett saman af forliðnum Berg- og nafnorðinu kvistur. „Ég skrifa hins vegar nafnið yfirleitt eins og eftirnafn eða ættarnafn þótt ég noti alltaf Beggi í talmáli. Skrifa Guð- mundur Bergkvist og sleppi ávallt Jónsson. Hef svona verið að gæla við að sækja um að taka þetta upp sem eftirnafn.“ Aðspurður segir hann nafnið ekki vera til trafala, síður en svo. „Ég lendi reyndar oft í því að fólk skrifi nafnið með q-i og einnig er ég iðulega spurð- ur að því hvort ég sé ættaður frá Svíðþjóð,“ segir hann hlæj- andi að lokum, sáttur við nafn- ið sitt. NAFNIÐ MITT: GUÐMUNDUR BERGKVIST JÓNSSON Nafnið dregið af umhverfinu BERGKVIST ekki ennþá orðið að tískunafni þótt fallegt sé. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Nýtt ættleiðingafélag, Al- þjóðleg ættleiðing, hefur verið stofnað. Markmið fé- lagsins er að fjölga þeim löndum sem kemur til greina að ættleiða börn frá þannig að biðlistar hér á landi stytt- ist og ættleiðingar gangi hraðar fyrir sig. Birna Ósk Einarsdóttir, formaður Alþjóðlegrar ætt- leiðingar, segir að félagið sé í samstarfi við dómsmála- ráðuneytið að vinna að því að fá löggildingu til að geta starfað sem ættleiðingafé- lag. Löggildingin fáist ekki nema búið sé að gera samn- ing við annað land og nú sé verið að skoða möguleikana á að gera slíka samninga við Kenýa og Pólland. „Ættleiðingar hafa dregist saman hér á landi á síðustu árum, jafnvel meira en á al- þjóðavísu. Nú er erfiðara en áður að ættleiða frá Kína og biðlistinn langur,“ segir hún og nefnir sem dæmi að sum pör hafi nú beðið vel á fjórða ár. Átjándi hópurinn bíði eftir barni en hún og hennar maður séu í hópi 26 og þau hafi þegar beðið í tvö ár. „Við viljum hafa áhrif á þróunina þannig að ættleið- ingum haldi ekki áfram að fækka. Á Íslandi er bara eitt félag sem hefur unnið snilld- arstarf í gegnum tíðina en það hefur ekki marga samn- inga. Ef lönd lokast og engir samningar koma í staðinn þá fækkar ættleiðingum hratt og biðin lengist.“ Mörg lönd eru til skoðun- ar. „Afríkuríki eru til dæmis farin að taka meiri þátt í al- þjóðlegum ættleiðingum þannig að það er kannski mögulegt að stofna til sam- banda þar. Tækifærin eru víða og geta breyst mjög hratt. Við viljum bæta við það góða starf sem þegar er unnið hjá Íslenskri ættleið- ingu fjölskyldum og börnum til hagsbóta,“ segir hún. TÆKIFÆRI VÍÐA „Tækifærin eru víða,“ segir Birna Ósk Einars- dóttir, formaður Alþjóðlegrar ættleiðingar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Félagið vill fleiri lönd Sími: 525 9930 hotelsaga@hotelsaga.is www.hotelsaga.is Hótel Saga annast erfidr ykkjur af virðingu og alúð. Fágað umhverfi, góðar veitingar og styrk þjónusta. Erfidrykkjur af alúð Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, Laufeyjar Torfadóttur Hjaltabakka 16, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á K-1 á Landakoti og Hjúkrunardeildar Grundar, L-1 á Landakoti fyrir góða umönnun og hlýlegt viðmót. Guðrún G. Bergmann Guðni Guðjónsson Hrafnhildur Steingrímsdóttir Hermann Guðjónsson Guðný Ólafsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát elskulegrar Ingibjargar Þorsteinsdóttur frá Hrauni, Tálknafirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunar- heimilinu Garðvangi, Garði. Birgir Aðalsteinsson María Jónsdóttir Þorsteinn Aðalsteinsson Svandís Jeremíasdóttir Guðrún Aðalsteinsdóttir Ástráður Ö. Gunnarsson Ingibergur Aðalsteinsson Stella Aðalsteinsdóttir Örn Þórisson ömmubörn og langömmubörn. Elskuleg móðir okkar, Björg Svava Gunnlaugsdóttir kaupmaður, frá Flatey á Breiðafirði, fædd 18. september 1927, er látin. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Aðstandendur þakka séra Sigfinni Þorleifssyni fyrir aðstoð hans og umhyggju, Útfararþjónustu Rúnars Gunnarssonar fyrir auðsýnda samúð og vinar- hug, og starfsfólki Landspítala Háskólasjúkrahúss fyrir umhyggju og hlýhug þeirra í garð móður okkar. Sigrún Gallagher Kevin Gallagher Jóhann Páll Símonarson Viktoría Hólm Gunnarsdóttir Gunnlaugur Marteinn Símonarson Borghildur Símonardóttir Þorgeir Daníelsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengda- móðir og amma, Lilja Margrét Karlesdóttir Fjallalind 10, Kópavogi, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut, sunnudag- inn 8. mars. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 19. mars kl. 13.00. Þeim sem vilja minn- ast Lilju Margrétar er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Aðalgeir G. Finnsson Erla Hrönn Aðalgeirsdóttir Stefán Héðinn Stefánsson Arnar Aðalgeirsson Sigríður Gísladóttir Freyr Aðalgeirsson Pálína S. Sigurðardóttir Davíð, Daníel, Rakel, Sara, Valgerður Lilja, Óðinn Arnar, Stefán Aðalgeir, Garðar, Baldur og Hugrún Helga. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurfinnur Arason úrsmíðameistari, til heimilis að Hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík, lést aðfaranótt föstudagsins 13. mars að Sóltúni. Jarðarförin verður auglýst síðar. Guðlaug A. Sigurfinnsdóttir Yngvi Þ. Kristinsson Jón Kjartan Sigurfinnsson Bryndís Þorgeirsdóttir Rúnar Sigurfinnsson Sandra S. Ragnarsson Ari Sigurfinnsson Dóra Þórhallsdóttir Logi Sigurfinnsson Jónína Ágústsdóttir Guðrún Sigurfinnsdóttir Gústav Gústavsson afabörn og langafabörn. Við sendum innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför dóttur okkar og systur, Sóleyjar Kötlu Kristinsdóttur. Sérstakar þakkir til starfsfólks fæðingardeildar Landspítalans og séra Braga Skúlasonar. Kristinn I. Pálsson Dóra Hrund Bragadóttir Svanhildur Lóa Kristinsdóttir Ástkær konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Birna Hervarsdóttir Hamraborg 18, Kópavogi, lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 8. mars. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 16. mars kl. 13.00. Guðmundur Maríasson Hafsteinn Gunnar Jakobsson Þórunn Sif Björnsdóttir Svanhvít Jakobsdóttir Stefán Jens Hjaltalín Jón Þorkell Jakobsson Júlíana Harðardóttir Sóley Jakobsdóttir Bjarni Sigurbjörnsson Guðmunda Jakobsdóttir Hannes Ingi Jónasson og barnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, Helgi Hersveinsson Sólvangi, áður Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi, laugar- daginn 7. mars, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn 16. mars kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeir sem vildu minnast hans eru beðnir að láta líknarfélög njóta þess. M. Hera Helgadóttir Reimar Georgsson Kristján A. Helgason Jóna S. Marvinsdóttir Helgi Hrafn Reimarsson Arnar Marvin Kristjánsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Jónfríður Gunnarsdóttir Sóltúni 2, áður til heimilis að Ferjubakka 4, lést fimmtudaginn 12. mars. Ólöf Björg Einarsdóttir Grétar Hartmannsson Gunnur Inga Einarsdóttir Helgi Einarsson barnabörn og barnabarnabörn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.