Fréttablaðið - 14.03.2009, Page 85
LAUGARDAGUR 14. mars 2009 53
Rokksveitinni Reykjavík! er gef-
inn gaumur í dálki á heimasíðu
hins virta tímarits Rolling Stone.
Dálkurinn nefnist Hype Monit-
or þar sem fjallað er um nýjar og
spennandi hljómsveitir sem eru
mest í umræðunni á netinu.
„Þetta íslenska band segir
harðkjarnanum stríð á hend-
ur með grimmilegum og prakk-
aralegum lögum sem sýna enga
miskunn,“ segir á síðunni. Titil-
lag plötunnar The Blood er nefnt
sem besta lag plötunnar. Ein-
kennist það af „kraftmiklum
trommuleik, öflugu „feedbakki“
og æðislegum gítarstefjum í
anda hljómsveitarinnar Birthday
Party.“
Reykjavík! í
Rolling Stone
REYKJAVÍK! Hljómsveitin Reykjavík! fær
góða dóma á heimasíðu bandaríska
tímaritsins Rolling Stone.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Bono, söngvari U2, er ósáttur
við tónlistaraðdáendur sem hala
tónlist niður ólöglega. Hann stað-
hæfir að lög gegn niðurhali verði
hert þegar kvikmyndaver fara að
tapa peningum. Bono telur að það
verði ekki fyrr en stóru fyrirtæk-
in í Hollywood fara að finna fyrir
niðurhalinu að yfirvöld fái þau
tæki og tól sem þarf til að vinna
baráttuna.
„Það er ekki rétt að ríkar rokk-
stjörnur biðji um meiri peninga
en einhver verður að berjast
fyrir aðra listamenn því þetta er
orðin alger geðveiki,“ segir Bono.
„Tónlist er orðin eins og krana-
vatn og ég er hálf móðgaður,“
segir söngvarinn sem býst við
því að þetta breytist á næstunni.
„Þegar skráarskipti á sjónvarps-
þáttum og bíómyndum verða eins
auðveld og á lögum þá breytist
þetta. Einhver mun hringja í
lögguna.“
Bono mót-
mælir niður-
hali á tónlist
ÓSÁTTUR Bono, söngvari U2, býst við
því að viðurlög við niðurhali verði hert á
næstunni. NORDICPHOTOS/GETTY
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
44
54
60
0
3/
09
FERÐAÆVINTÝRI Í FERMINGARGJÖF
// Mikið úrval af svefnpokum
Verð frá 9.990 kr.
Landsins mesta úrval af bakpokum
// Dagpokar
Verð frá 5.990 kr.
// Stærri bakpokar
Verð frá 12.990 kr.
// Tjöld
Verð frá 8.990 kr.
Sjónaukar, göngustafir, áttavitar og
margt fleira
Héraðsdómur Reykjavíkur sýkn-
aði Eirík Jónsson, ritstjóra Séð
og heyrt, og blaðamann tímarits-
ins, Svan Má Snorrason, í meið-
yrðamáli sem Ívar Örn Þórhalls-
son höfðaði á hendur því vegna
fyrirsagnarinnar „Sonur Ladda:
Hommi á barnalandi“. Fyrirsögnin
birtist á forsíðu blaðsins í lok ágúst
og krafðist Ívar Örn 400 þúsund
króna í miskabætur og að fyrir-
sögnin yrði dæmd dauð og ómerk.
Héraðsdómur komst að þeirri
niðurstöðu Ívar Örn hefði sjálf-
ur átt upptökin að umræddu máli,
hann hefði lýst því yfir á opnu
vefsvæði að hann væri að koma
út úr skápnum sem hommi. Fyr-
irsögnin „Hommi á barnalandi“
væri því ekki röng í sjálfu sér eins
og umfjöllun Ívars Arnar um kyn-
hneigð sína var háttað á vefsvæð-
inu. Þá kemst dómurinn jafnframt
að þeirri niðurstöðu að í fréttinni
sjálfri hafi sjónarmið Ívars um að
þetta hafi verið grín komið skýrt
fram. Að sögn lögmanns Ívars,
Vilhjálms H. Vilhjálmssonar, eru
meiri líkur en minni að dómnum
verði áfrýjað til Hæstaréttar.
Útgáfufélagið Birtingur var hins
vegar dæmt fyrir að taka myndir
í leyfisleysi af vefsvæði Ívars og
nota í umrædda frétt. Var Birt-
ingi gert að greiða Ívari Erni 180
þúsund krónur í skaðabætur og
600 þúsund krónur í málskostnað.
Þetta er í annað sinn á tiltölulega
skömmum tíma sem Birtingur er
dæmt fyrir slíkt athæfi. Hið fyrra
var í Tarantino-málinu svokallaða.
- fgg
Sekt og sýkna í máli sonar Ladda
ÍVAR ÖRN ÞÓRHALLSSON Séð & Heyrt
var sýknað í meiðyrðarmáli sonar Ladda.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Alexandra Elfa Björnsdóttir fékk óvænta gjöf
í gærkvöldi þegar tilkynnt var að hún hefði
hlotið sérstakt „wildcard“-sæti í Idol-stjörnu-
leit Stöðvar 2. Að sögn Pálma Guðmundsson-
ar, sjónvarpsstjóra Stöðvar 2, var þetta gert
í fullu samráði við erlenda eigendur Idol-
keppninnar. „Alexandra fékk flest atkvæði
þeirra sem ekki komust áfram og því fékk
hún sætið.“
Björn Jörundur Friðbjörnsson var sérleg-
ur aðdáandi Alexöndru og barðist fyrir því að
láta hana fá fimmta sætið í síðasta þætti. Alex-
andra varð þó að horfa á eftir því í hendurnar
á Guðrúnu Lísu Einarsdóttur en sú ákvörðun
olli nokkrum titringi meðal annarra keppenda
en Guðrún Lísa hafði sungið bakraddir í þriðju
Idol-seríunni. Pálmi þvertekur fyrir að ákvörð-
unin hafi eitthvað með það mál að gera. „Nei,
hér er ekkert stórt samsæri á seyði. Alexandra
er vinsæl og vel að þessu sæti komin.“
Alexandra áfram
Í SMÁRALIND Alexandra
Elfa Björnsdóttir fær að
keppa í Smáralind eftir að
henni var úthlutað svoköll-
uðu „WildCard“-sæti í Idol-
stjörnuleit Stöðvar 2.