Fréttablaðið - 14.03.2009, Side 96

Fréttablaðið - 14.03.2009, Side 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Davíðs Þórs Jónssonar Í dag er laugardagurinn 14. mars, 73. dagur ársins. 7.49 13.37 19.26 7.35 13.22 19.10 29.900,- Árdagar búsáhaldabyltingar-innar eru mér enn í fersku minni, þótt þeir virðist mörgum öðrum gleymdir nú. Þjóðin stóð á Austurvelli og barði saman pott- um og pönnum til að koma þeim skilaboðum inn í Alþingishúsið að hún væri búin að fá sig fullsadda af vanhæfni og úrræðaleysi vald- hafa. Ég man líka að snertileysi sjálfstæðismanna við raunveru- leikann var svo algert að það sem átti að taka til umfjöllunar var frumvarp um að leyfa sölu áfengra drykkja í matvöruverslunum. ÞEIR héldu í alvörunni að þeir gætu haldið áfram eins og ekkert hefði í skorist, að óbeit þjóðarinn- ar á stjórnarfari þeirra og starfs- aðferðum væri eitthvað tímabund- ið óþol sem ekkert myndi skilja eftir sig og hægt væri að sitja af sér uns það gengi yfir. Þeir héldu að fólkið með pottana og pönnurn- ar væri fámennur hópur kverúl- anta og „atvinnumótmælenda“ á launaskrá Vinstri grænna. Það er nefnilega löng hefð fyrir því innan Sjálfstæðisflokksins að hafa hvít- liðasveitir á sínum snærum og þess vegna halda þeir að aðrir flokkar vinni eins. Hvítliðum sjálfstæðis- manna hefur að vísu aðeins einu sinni í lýðveldissögunni verið sigað á almenning, en hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér. MARGUR heldur mig sig. Þannig trúir Davíð Oddsson því að í Fréttablaðinu séu birtar upplogn- ar skoðanakannanir til að koma höggi á sig. Hann vann nefnilega sjálfur á Mogganum í kalda stríð- inu og finnst slík vinnubrögð því ekki fráleit. ÞJÓÐIN kom á óvart. Ógeð henn- ar á ríkisstjórn Geirs Haarde blés henni í brjóst áður óþekktri elju og með seiglunni tókst að svæla sjálfstæðismenn frá völd- um. Þeir kunna því illa og í síð- ustu viku sóuðu þeir takmörkuð- um tíma Alþingis í að mótmæla því að lýðræði í landinu sé aukið og eflt í stað þess að þar sé fjallað um bráðnauðsynlegar efnahagsað- gerðir. Þær hljóta væntanlega að felast í því að koma brennivíni í búðir. Alltjent hafði Sjálfstæðis- flokkurinn lítið annað til málanna að leggja þegar hann var í ríkis- stjórn og hagkerfið var nýhrunið. EKKI kom fram í málþófi sjálf- stæðismanna nákvæmlega hve heimska þeir telja kjósendur vera, en ljóst má vera af tilburðunum að þeir álíta þá annaðhvort verulega greindarskerta eða minnislausa. Í apríl verður þeim vonandi sýnt að það er ranglega ályktað. Gert út á greindarskort almennings

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.