Morgunblaðið - 21.01.2006, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 11
FRÉTTIR
EKKI hefur náðst samkomulag um
kaup ríkisins á hlutum Reykjavíkur-
borgar og Akureyrarbæjar í Lands-
virkjun og hafa aðilar orðið sammála
um að ekki séu forsendur fyrir frek-
ari viðræðum að svo stöddu.
Þetta kemur fram í sameiginlegri
fréttatilkynningu fjármálaráðherra,
iðnaðarráðherra, borgarstjórans í
Reykjavík og bæjarstjórans á Akur-
eyri.
Í febrúar 2005 undirrituðu ofan-
greindir aðilar viljayfirlýsingu um að
íslenska ríkið leysti til sín eignar-
hluta Reykjavíkurborgar og Akur-
eyrarbæjar í Landsvirkjun. Til að
vinna að þessu var skipuð fjögurra
manna samninganefnd, með einum
fulltrúa frá hverjum aðila, en stefnt
var að því að breyting á eignarhaldi
Landsvirkjunar myndi eiga sér stað
1. janúar sl. Þetta gekk ekki eftir og
hefur viðræðum nú verið slitið um
óákveðinn tíma.
Viðræðum um eignarhald
á Landsvirkjun slitið
KIRKJUGARÐAR Reykjavík-
urprófastsdæmis hafa í hyggju að
flytja líkbrennslu úr Fossvogi yfir í
Gufuneskirkjugarð á næstu 15 ár-
um, en sú líkbrennsla mun þjóna
öllu landinu. Verður hin nýja lík-
brennsla nokkru afkastameiri en
eldri aðstaðan í Fossvoginum, að
sögn Þórsteins Ragnarssonar, for-
stjóra Kirkjugarða Reykjavíkurpró-
fastsdæmis.
Þórsteinn segir þessi áform koma
í ljósi þess að taki ný mengunarlög-
gjöf gildi verði hinir gömlu ofnar í
Fossvogi, sem nú eru sextíu ára, úr-
eltir. „Þarna verður um að ræða
brennsluofna sem byggðir eru sam-
kvæmt ströngustu skilyrðum,“ segir
Þórsteinn. „Þannig verður í þeim
hreinsibúnaður sem skilar útblæstr-
inum hreinni en bílarnir sem aka
Hallsveginn. Þá verður aðstaðan
neðanjarðar til að lágmarka sjón-
mengun.“
Líkbrennsla verður flutt
í kirkjugarðinn í Gufunesi
FRAMKVÆMDIR standa nú yfir
við Laugardalsvöll, en að þeim lokn-
um mun eldri stúka vallarins rúma
um 6.500 manns. Keypt verða ný
sæti í stúkuna fyrir gömlu bláu sæt-
in, sem eru alls um 3.000 talsins.
Aðildarfélög KSÍ og aðrir aðilar
sem gætu eftir atvikum nýtt sér
þessi sæti geta haft samband við Jó-
hann Kristinsson vallarstjóra fyrir
31. janúar. Eitthvert málamynda-
gjald verður tekið fyrir sætin en ekki
hefur verið tekin afstaða til þess. Jó-
hann segir mikinn áhuga vera á sæt-
unum og um 10 félög hafi þegar haft
samband.
Þrjú þúsund sæti laus
á Laugardalsvelli