Morgunblaðið - 29.01.2006, Page 2
2 SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÁST OG ÖRYGGI
Ást til maka og öryggi er aðal-
ástæða þess að pör af sama kyni
velja að ganga í staðfesta samvist,
fremur en þau réttindi sem fylgja
staðfestingunni. Þetta er meðal nið-
urstaðna í nýrri rannsókn sem Anna
Einarsdóttir uppeldis- og mennt-
unarfræðingur hefur gert á áhrifum
lagasetningar um staðfesta samvist
samkynhneigðra. Mikilvæg ástæða
var að parasamband við einstakling
af sama kyni yrði með staðfesting-
unni sýnilegra og viðurkennt í sam-
félaginu að sögn svarenda.
Með hálft kíló af kókaíni
Þrír átján ára piltar voru teknir
með hálft kíló af kókaíni í Leifsstöð á
fimmtudag og voru úrskurðaðir í
viku gæsluvarðhald á föstudag.
Þetta er með stærstu kókaínmálum
sem upp hafa komið í Leifsstöð á
liðnum árum. Smyglararnir földu
efnið innanklæða.
Fylgi flokkanna
Sjálfstæðisflokkurinn fær 44,7%
fylgi og Samfylkingin 23,6% þeirra
sem taka afstöðu til stjórnmála-
flokkanna í þjóðmálakönnun Félags-
vísindastofnunar fyrir Morgunblaðið
sem unnin var 18.–25. janúar. Úr-
taksstærð var 1.200 manns á öllu
landinu og var nettósvarhlutfall
70,6%.
Spenna í Palestínu
Vaxandi spenna er á milli stuðn-
ingsmanna Fatah- og Hamas-
hreyfingarinnar eftir sigur þeirrar
síðarnefndu í kosningunum í Palest-
ínu. Hafa Fatah-liðar farið þúsund-
um saman um götur á Gaza og víðar
og krafist þess, að Mahmoud Abbas
forseti og öll miðstjórn flokksins
segi af sér. Kenna þeir spillingu
þeirra um ósigurinn og segjast aldr-
ei munu taka saman við Hamas í
stjórn. Komið hefur til skotbardaga
milli Hamas- og Fatah-liða og særð-
ust níu manns í þeim. Í gær ruddust
vopnaðir Fatah-liðar inn í þinghúsið
í Ramallah og skutu þar upp í loft.
Bandaríkjastjórn ætlar að hætta
fjárstuðningi við Palestínu nema
Hamas hafni ofbeldi.
Y f i r l i t
Kynning – Morgunblaðinu í dag fylgir
Sumarbæklingur Heimsferða.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is
Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is
Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson
Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Í dag
Fréttaskýring 8 Myndasögur 62
Sjónspegill 36 Dagbók 62/65
Forystugrein 38 Víkverji 62
Reykjavíkurbréf 38 Staður og stund 64
Íþróttir 33 Leikhús 66
Umræðan 44/52 Bíó 70/73
Bréf 53 Sjónvarp 74
Hugvekja 54 Staksteinar 75
Minningar 54/58 Veður 75
* * *
RANNSÓKNASKIPIÐ Árni Friðriksson RE 200
hefur orðið vart við peðrur, litlar torfur, af loðnu
austan við Hvalbakssvæðið og er mikið af þorski
og öðru lífi undir torfunum. Bjartur NS frá Nes-
kaupstað var á ferðinni nær landinu og lét vita af
loðnu á grunnslóðinni en svo virðist sem lítill
kraftur sé í loðnugöngunni enn sem komið er, að
sögn Sveins Sveinbjörnssonar fiskifræðings, sem
sat í gær morgunvaktina í Bergmálinu, stjórnstöð
leitarinnar um borð í skipinu.
Nokkrar eru norsk-íslenskar
Laust upp úr miðnætti aðfaranótt laugardags
varð vart við nokkrar torfur, þar af eina áberandi
stærsta, 23 mílur austur af Litladýpi, sem gengur
út úr Fætinum. Flottrollið var sett út og tekið hal
fyrir sýni og reyndist þetta stór og falleg síld, sem
nú er í rannsókn í rannsóknastofu skipsins, þar
sem hún er aldurs- og kyngreind og síðan er skoð-
að sérstaklega hvort síldin er úr norsk-íslenska
síldarstofninum.
Anna Heiða Ólafsdóttir líffræðingur og Leifur
Aðalsteinsson rannsóknarmaður fundu nokkrar
síldar úr norsk-íslenska stofninum í sýnaúrtakinu
sem komið var nálægt hrygningu og sagði Anna
Heiða að það væri ekki óalgengt að finna einstakar
síldar innan um íslensku sumargotssíldina.
Í morgunsárið í gær, laugardag, var skipið statt
suðaustur af Litladýpi þar sem lóðar á loðnu sem
verður tekið sýni úr auk þess sem Sveinn vill láta
toga eftir þorski nær botninum undir loðnutorf-
unum til að sjá og rannsaka lífið sem sést á dýpt-
armælinum. Sónartæki er sett á lánsflottrollið frá
Faxa RE og eru sendingarnar frá sónarnum vist-
aðar inn á tölvu til að vinna úr seinna.
Guðmundur VE kastaði í fyrrinótt á Rauðatorg-
inu, þar sem Árni Friðriksson RE fann loðnuna á
föstudagsmorgun. Þar er loðnan unnin um borð
þar sem skipið hefur leitarkvóta. Áta mældist 10%
í loðnunni á svæðinu svo hún var vinnsluhæf fyrir
markað sem leyfir meiri slaka eins og sá rúss-
neski. Loðnan er að síga upp í kantinn austur af
landinu, en krafturinn í loðnugöngunni er enginn
ennþá.
Loðnugangan kraftlaus enn
Eftir Kristin Benediktsson
um borð í Árna Friðrikssyni RE 200
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Rannsóknaskipið Árni Friðriksson er vel tækjum
búið og hefur fundið nokkrar loðnutorfur.
ÞEIR sem harðast ganga fram í
svokallaðri málvernd gætu í reynd
orðið hættulegustu fjandmenn
tungunnar og íslenskunni er enginn
greiði gerður með því að loka hana
innan rimla í menningarlegu safni
eða fangelsi. Staðnað tungumál
mun óhjákvæmilega deyja, sagði
Runólfur Ágústsson, rektor Við-
skiptaháskólans á Bifröst, meðal
annars í ræðu sinni við útskrift
fyrstu meistaranemanna í lögfræði
frá skólanum í gær, laugardag.
Í ræðu sinni sagði Runólfur að
hlutverk háskóla væri meðal annars
að búa nemendur undir líf og störf í
alþjóðlegu samkeppnisumhverfi.
Færni í ensku væri lykilatriði í
þeim efnum og það væri „fráleitur
heimóttarskapur að telja slíkt ógn-
un við íslenskuna“. Virk erlend
samskipti myndu efla þjóðarvitund
okkar og þar með tunguna en ekki
draga úr vægi hennar.
Hann bætti því
við að umræðan
um hlutverk
tungunnar væri
athyglisverð og
spurði hvort
tungan ætti ekki
að þjóna sam-
félaginu en ekki
öfugt. „Er ekki
eðlilegt að lifandi
tungumál þróist
og taki breytingum með því sam-
félagi sem talar viðkomandi tungu?
Eiga ekki tungan og samfélagið að
eiga samleið?“
Runólfur benti á að aldrei hefði
jafnstórt hlutfall þjóðarinnar tjáð
sig opinberlega. Þúsundir Íslend-
inga héldu úti bloggsíðum, bókaút-
gáfa stæði með blóma og gríðarleg
gróska hvert sem litið væri. Væri
þetta merki um deyjandi tungu?
„Er það ekki þvert á móti þannig
að þeir sem harðast fram ganga í
svokallaðri málvernd gætu í reynd
orðið hættulegustu fjandmenn
tungunnar? Í samfélagi morgun-
dagsins getum við ekki talað tungu
gærdagsins. Börnin okkar lifa í
öðru samfélagi en tíðkaðist í ís-
lenskum sveitum um miðja síðustu
öld. Umræðuefnin eru önnur, orðin
eru önnur og þarfir samfélagsins til
þess samskiptamiðils sem tungan
er hljóta að taka mið af slíku. Ís-
lenskunni er enginn greiði gerður
með því að loka hana innan rimla í
menningarlegu safni eða fangelsi.
Staðnað tungumál sem ekki fylgir
þörfum talenda mun óhjákvæmi-
lega deyja. Sá málfarsfasismi sem
vill með einhvers konar hrein-
tungustefnu í reynd skilja að Ís-
lendinga og íslenskuna er því lík-
lega meiri ógnun við tungumál
okkar heldur en meintar málvillur
ungmenna.“
Rektor á Bifröst við útskrift fyrstu lögfræðinga skólans
Staðnað tungumál mun
óhjákvæmilega deyja
Runólfur
Ágústsson
BÍLL eyðilagðist í eldsvoða í Ár-
túnsbrekku á föstudagskvöld en
ökumann og einn farþega sem var
með honum í bílnum sakaði ekki.
Eldurinn kom upp í vélarhúsi bílsins
og var slökkvilið höfuðborgarsvæð-
isins kallað út. Gekk greiðlega að
ráða niðurlögum eldsins en slökkvi-
starf tók um hálfa klukkustund.
Ljósmynd/Viggó Helgi
Bíll brann í Ártúnsbrekku
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Bauhaus
AG, í tilefni orða Steins Loga Björns-
sonar, forstjóra Húsasmiðjunnar, í
Morgunblaðinu í fyrradag, um af-
komu Bauhaus á Norðurlöndum.
Fyrir hönd Bauhaus sendir Helmut
Diewald athugasemdina: „Í Morgun-
blaðinu á föstudag er haft eftir for-
stjóra Húsasmiðjunnar, að fjárhags-
leg afkoma Bauhaus á Norðurlöndum
hafi verið undir væntingum. Bauhaus
vill vekja athygli á því að sl. 16 ár hef-
ur fyrirtækið rekið Bauhaus Gerðu
það sjálf/ur verslanir (Do It Yourself)
á Norðurlöndum. Verslunum okkar
hefur verið vel tekið af viðskiptavin-
um okkar á Norðurlöndum og vegna
hinna góðu undirtekta hefur verslun-
um okkar á Norðurlöndum stöðugt
fjölgað. Á þessu ári einu, munum við
opna nýjar verslanir á Norðurlönd-
um, sem eru að fermetrafjölda stærri,
en samanlagður fermetrafjöldi Húsa-
smiðjunnar.
Og það fer ekki á milli mála, að við
erum í viðskiptum af fullri alvöru: Við
opnum ekki nýjar verslanir til þess að
tapa peningum. Jafnvel forstjóri ótta-
slegins keppinautar á markaði, hlýtur
að átta sig á því.
Bauhaus AG fer fram á að þessi
leiðrétting birtist, ekki síst vegna
þess að rekstur fyrirtækisins á Norð-
urlöndum hefur gengið í fullkomnu
samræmi við allar væntingar. Jafn-
framt vill Bauhaus benda á, að félagið
er einkafyrirtæki, sem veitir engar
upplýsingar um fjárhagslega afkomu
sína. Því hefur forstjóri Húsasmiðj-
unnar á engu að byggja, er hann kem-
ur fram með staðhæfingar um af-
komu Bauhaus og því verða orð hans
ekki túlkuð á annan veg, en að hér sé
um getgátur að ræða.“
♦♦♦
Segir forstjóra
Húsasmiðjunnar
með getgátur
ÁTTA ökumenn voru teknir fyrir ölv-
unarakstur í Reykjavík í fyrrinótt. Að
sögn lögreglunnar eru þetta óvenju-
margir sem teknir eru á einni nóttu í
borginni. Rólegt var hins vegar á
vaktinni hjá lögreglunni í Kópavogi
og Hafnarfirði í fyrrinótt.
Átta stútar teknir
LAGT var til á ríkisstjórnarfundi á
föstudag að ríkisstjórnin verði 1,7
milljónum króna af sameiginlegu ráð-
stöfunarfé sínu til Samtakanna 78 til
fræðslu og ráðgjafar á vegum sam-
takanna í ár. Ríkisstjórnin hefur á
liðnum árum veitt samtökunum fram-
lag til þess að standa straum af kostn-
aði þeirra við sérstakan fræðslufull-
trúa. Forsætisráðherrann lagði þetta
til á fundinum.
Samtökin 78 fái
1,7 milljónir