Morgunblaðið - 29.01.2006, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 29
2006
Rannsóknamiðstöð Íslands • Laugavegi 13 • 101 Reykjavík • sími 515 5800 • rannis@rannis.is. • www.rannis.is
Ó
sk
að
e
ft
ir
t
iln
ef
ni
ng
um Hvatningar-
verðlaun
Vísinda-
og tækniráðs
Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs eru árlega veitt vísindamanni
sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað fram úr og skapað væntingar
um framlag í vísindastarfi er treysti stoðir mannlífs á Íslandi. Verðlaunin
voru fyrst veitt árið 1987 í nafni Rannsóknarráðs ríkisins, á 50 ára afmæli
atvinnudeildar Háskóla Íslands.
Verðlaunin eru tvær milljónir króna.
Tilnefningar mega koma frá öllum sviðum vísinda, tækni og fræða.Tilnefna má vísindafólk
sem starfar á Íslandi við háskóla, rannsóknarstofnanir, fyrirtæki eða er sjálfstætt starfandi.
Öllum sem eru í aðstöðu til að meta störf einstakra vísindamanna er heimilt að koma
með tilnefningar til verðlaunanna. Með tilnefningu fylgi ferilskrá vísindamannsins.
Við mat á tilnefningum til verðlaunanna er tekið tillit til námsferils viðkomandi vísindamanns,
sjálfstæðis, frumleika og árangurs í vísindastörfum að loknu námi; ritsmíða, einkaleyfa og
framlags í störfum á alþjóðavettvangi svo og annarra vísbendinga um líklegan árangur
af störfum viðkomandi. Sérstaklega er litið til brautryðjandastarfs í vísindum. Þá er litið
til faglegs framlags til starfsfélaga á vinnustað og miðlunar þekkingar til samfélagsins.
Almennt er miðað við að þeir sem koma til álita séu ekki eldri en 40 ára, en tekið er
tillit til tafa sem kunna að verða á ferli vísindamanns vegna umönnunar barna.
Fimm handhafar verðlaunanna skipa dómnefnd og eiga eftirtaldir einstaklingar sæti í
henni: Jakob K. Kristjánsson, forstjóri Prokaria, Svanhildur Óskarsdóttir, fræðimaður á
Stofnun Árna Magnússonar, Steinunn Thorlacius, sérfræðingur hjá Urði Verðandi Skuld,
Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, og
Hilmar Janusson, þróunarstjóri Össurar hf.
Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 15. mars 2006.
Tilnefningum og upplýsingum um feril tilnefndra skal skilað til
Rannís, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, eða með tölvupósti
á netfangið rannis@rannis.is.
P
R
[
p
je
e
rr
]
JAPÖNSK stjórnvöld bjóða ís-
lenskum námsmönnum styrki til
háskólanáms í japanskri tungu eða
japönskum fræðum við háskóla í
Japan til eins árs frá og með októ-
ber 2006 (MEXT-styrkur).
Menntamálaráðuneytið í Japan
greiðir flugfargjald báðar leiðir,
skólagjöld, sérstakan komustyrk og
mánaðarlegan framfærslustyrk upp
á 135.000 jen sem samsvarar um
71.550 íslenskum krónum, segir í
fréttatilkynningu.
Styrkurinn stendur námsmönn-
um til boða sem fæddir eru eftir 2.
apríl 1976 og fyrir 1. apríl 1988 og
hafa lokið a.m.k. eins árs námi í
japönsku eða japönskum fræðum
utan Japans. Forsenda styrkveit-
ingar er góður námsárangur, nið-
urstaða úr stöðuprófi í japönsku og
áframhaldandi nám í japönsku eða
japönskum fræðum að lokinni
námsdvöl í Japan.
Umsóknareyðublöð liggja frammi
hjá sendiráði Japans, Laugavegi
182. Útfylltum umsóknum þarf að
skila til sendiráðsins eigi síðar en
10. mars 2006. Viðtöl við umsækj-
endur og stöðupróf verða um miðj-
an mars.
Allar nánari upplýsingar fást hjá
sendiráði Japans í síma 510 8600
eða með því að senda fyrirspurn á
japan@itn.is.
Styrkur til
náms í jap-
önskum
fræðum
ÞAÐ ER oftast mikið fjör á skóla-
lóðum grunnskólanna. Um leið og
bjallan hringir út í frímínútur þyrp-
ast börnin á stéttar og tún við
skólana og fara í skemmtilega leiki.
Sumir velja fótbolta, aðrir snú snú.
Segja má að þetta séu ekki dæmi-
gerðir vetrarleikir á skólalóðunum
en þar sem veður hefur verið sér-
lega blítt undanfarna daga hafa
börnin þó tekið upp á að fara í
þessa leiki.Morgunblaðið/Ásdís
Gaman
á skóla-
lóðinni
HUGGARÐSFÉLÖGIN þrjú sem
nýverið felldu samningana við
Reykjavíkurborg koma aftur að
samningaborðinu eftir hádegið í dag.
Félögin eru Kjarafélag viðskipta-
fræðinga og hagfræðinga, Stéttar-
félag lögfræðinga og Útgarður. Frá
þessu er greint í nýútkomnu frétta-
bréfi BHM.
Þá segir að samningaumleitanir
BHM-félaga og launanefndar sveit-
arfélaganna séu nú komnar í gang
aftur eftir nokkurt hlé sem varð
vegna launamálaráðstefnu sveitarfé-
laganna. Ágætur gangur mun vera í
viðræðunum.
Aftur að
samninga-
borðinu
♦♦♦
Fréttir
í tölvupósti