Morgunblaðið - 29.01.2006, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 29.01.2006, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 33 ÍPRÓTTIR Handknattleikur er einsog aðrar íþróttir óút-reiknanlegur og óvæntúrslit líta dagsins ljós á hverjum degi. Líklega hafa marg- ir haft gaman af því að segja fyrir um … [veðmál] úrslit leikja ís- lenska landsliðsins í handknattleik á Evrópumeistaramótinu sem fram fer í Sviss þessa dagana. Enda mikið í húfi og „litla“ Ís- land enn og aftur að etja kappi við stórþjóðir sem eru með íbúafjölda sem er langt frá því að vera jafn- mikill og eiginfjárhlutfall stærstu viðskiptabanka landsins. Ísland er einfaldlega best þessa dagana. Við erum með þrjú stig með okkur í milliriðil á Evrópumeist- aramóti í hópíþrótt og eigum góða möguleika á að skrá nafn landsins í sögubækurnar. „Strákarnir“ eru okkar. Eftir 36:31-sigur liðsins gegn Serbíu/Svartfjallalandi í fyrsta leik C-riðilsins í Sursee í Sviss glæddust vonir stuðningsmanna Íslands þess efnis að liðið kæmist áfram í milliriðil keppninnar. Þær vonir urðu að veruleika eftir 28:28-jafntefli liðsins á föstudags- kvöldið gegn Dönum og íslenska liðið tryggði sér farseðil í milli- riðil. Það er alltaf gaman að velta fyr- ir sér höfðatölu í slíku samhengi. Íslendingar hafa á að skipa liði sem er með svipaðan íbúafjölda á bak við sig og Björgvin í Noregi. En það sem skiptir máli í þessu samhengi er að Norðmenn eru tæplega fimm milljónir samtals, og já, Danir. Ekki gleyma því. Gamla einokunarveldið, þeir eru rúmlega sex milljónir að tölu og við getum ekki yfirgefið þessa um- ræðu án þess að minnast á Svía – það hafa allir heyrt af Svíagrýl- unni. Svíar eru ekki einu sinni með á þessu Evrópumeistaramóti, en þeir eru tæplega tíu milljónir. Jú, Mats Olsson, fyrrverandi lands- liðsmarkvörður Svía, er þjálfari hjá Portúgal. Sá sem þetta skrifar hefur ekki einu sinni áhuga á að afla sér upp- lýsinga um það hvar Svíar eru staddir í sínu uppbyggingarferli. Íslendingum er nokk sama. Sví- ar eru ekki að skemmta sér í Sviss þessa dagana. Íslendingar hafa á að skipa mjög sérstöku fyrirkomulagi þeg- ar kemur að skipulagi og fram- setningu á íþróttum fyrir börn og unglinga – og ekki má gleyma „harkinu“ sem á sér stað í rekstri „afreksíþrótta“. Dugnaður eða „sjálfboðaliðastarf“ eru hugtök sem ekki eru einu sinni til í orða- forða sumra Evrópuþjóða. En þessi hugtök eru mjög ríkjandi í samfélögum í N-Evrópu og Skandinavíu. Sala á salernispappír – þið vitið hvað um er að ræða. „Betlið“ þekkja allir sem hafa komið að rekstri íþróttafélags og þeir aðilar hafa upplifað það starf með sterk- um hætti. Höfnun er líklega það sem kemur fyrst upp í hugann hjá þeim sem hafa starfað á þeim vett- vangi. Börn og unglingar á Íslandi geta að öllu jöfnu gengið að ágætri aðstöðu vísri til æfinga og keppni undir handleiðslu þjálfara og kennara sem leggja mikið á sig. Aðrar þjóðir búa ekki alltaf svo vel að eiga slíkt stoðkerfi. Hins vegar get ég ekki annað en hrósað þeim sem hafa lagt allt sitt undir í rekstri afreksíþrótta á undanförnum árum. Án þeirra væru „strákarnir okkar“ ekki að glíma við stórþjóðir í milliriðli á Evrópumeistaramóti. Án þeirra væru afreksíþróttir ekki til á Íslandi. Árangur Íslands á stórmóti sem Evrópumeistaramótinu í Sviss vekur ýmsar spurningar um kynningarstarf og útbreiðslu á því starfi sem unnið er á Íslandi. Það er tími til kominn að þeir sem hafa áhuga á stjórnmálum fari að huga að því starfi sem unn- ið er í grasrót íþróttastarfs á „klakanum“ og sjái til þess að foreldrar sem vilja fylgjast með börnum sínum í uppbyggilegu íþróttastarfi þurfi ekki að eyða öllum sínum frístundum í að finna leiðir til að fjármagna íþrótta- starfið. Það væri kannski einfaldasta lausnin að „minnka útrásina“ í út- gjöldum utanríkismála og einbeita sér þess í stað að því að efla innra starf íslenskrar æsku. Og þá er ekkert undanskilið; íþróttastarf, skátastarf, tónlistar- nám eða annað frístundastarf. Dugnaður er okkar einkenni en það má alltaf gera betur. Áfram Ísland. Dugnaður er okkar einkenni Morgunblaðið/Brynjar Gauti Fáni vor sem friðarmerki … Við Íslendingar getum verið stoltir af „strákunum okkar“ eftir vel unnin verk á EM í Sviss. BRÉF FRÁ SVISS seth@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.