Morgunblaðið - 29.01.2006, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 29.01.2006, Blaðsíða 30
30 SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ Kr. 2.500.000 Kr. 3.000.000 Kr. 3.500.000 Kr. 4.000.000 Kr. 4.500.000 Kr. 5.000.000 Kr. 5.500.000 Kr. 6.000.000 Kr. 6.500.000 Kr. 7.000.000 Kr. 7.500.000 Kr. 8.000.000 ÓskynsamlegtSkynsamlegt SAAB 9-5 Kr. 3.160.000,- Volvo v70 Kr. 4.090.000 Volvo s80 Kr. 4.230.000 Audi A6 Kr. 4.390.000 Volvo xc70 Kr. 4.760.000 Lexus GS300 Kr. 4.950.000 Mercedes Benz E280 CDI Kr. 5.783.000 Lexus GS430 Kr. 7.250.000 BMW 523i Kr.4.130.000 Reynsluaktu nýjum SAAB 9-5. Hann er margverðlaunaður fyrir öryggi og hannaður fyrir akstur á norðurslóðum. Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00–18:00 og laugardaga kl. 12:00–16:00 Heimild: Morgunblaðið, bílablað 20 jan. 2006. Flokkur stórra lúxusbíla. Öll verð voru fengin frá viðkomandi umboðum. SKYNSEMISMÆLIRINN BMW 545i Kr. 7.690.000 af nýrnaveiki í seiðastöðinni hjá Íslandslaxi,“ heldur hann áfram. „Það var gríðarlegt áfall. Samherjamenn sögðu alltaf að þrátt fyrir að seiðaframleiðslan hefði að stórum hluta farið for- görðum myndu þeir koma með 600 þúsund seiði sem til eru hingað. En nú á að flytja þau til Fær- eyja eins og sjálfsagt allt annað sem fylgir eldinu hér. Ég veit ekki betur en að til sé nóg af seiðum í Færeyjum. Og þetta vilja þeir gera vitandi af reynslu að ef eitthvað bregður út af í flutningn- um eru allar líkur á að 30–40% af seiðunum drep- ist. Hvað eru þessir menn að hugsa, að leika sér svona með verðmæti? Þegar marglyttufárið kom hér í fjörðinn um árið og ógnaði eldinu sá ég fyrir mér að nú yrði öllu hætt. En nei, það var ekki aldeilis, þeir bara hörðnuðu. Þá var tugum millj- óna eytt í að hanna marglyttuvarnir og þær eru líka frábærar.“ Í Mjóafjarðarhreppi búa 42 einstaklingar. Af É g hef alltaf haft þá trú á Sam- herja að þetta væri fyrirtæki sem gæfist ekki upp fyrr en öll sund væru lokuð“ segir Sigfús Vilhjálmsson, oddviti, bóndi og útgerðarmaður á Brekku í Mjóafirði. „Öllum finnst svo skrýtið að fara allt í einu núna að gefast upp þegar það er bara staðreynd að hlutirnir eru farnir að ganga. Og eftir spám að dæma á gengi krónunnar að stórlagast á þessu ári og þetta verður ekki svona um alla eilífð.“ Sigfús segir tilkynningu Samherja um að Sæsilfur hætti starfsemi sök- um gengismála og hás raforkuverðs klaufalega og rökin haldlítil. „Eina haldbæra ástæðan fyrir því að þeir ætla að hætta hér er að seiðin sem áttu að koma hingað til eldis síðastliðið sumar komu ekki af því að það þurfti að farga þeim út þeim eru 16 karlar og 16 konur og börnin tíu talsins, frá því að vera nýfædd og upp í ung- lingsaldur. Karlar eru allir útivinnandi og lang- flestar konurnar einnig. „Það er fullskipað í öll þau störf sem eru möguleg“ segir Jóhanna Lárusdóttir á Brekku. „Ef annar aðilinn missir vinnuna þá er lífsviður- værið farið.“ Mjófirðingar undrast stórum að Samherji skyldi byrja á að segja upp þeim tveimur mönn- um sem fluttu með fjölskyldur sínar í Mjóafjörð gagngert til að starfa við eldið. Aðrir, sem kalla má lausamenn, halda störfum sínum enn um sinn, en enginn veit hver á að fjúka næstur. „Við fáum engin svör,“ segir Jóhanna. „Þeir tveir fóðruðu fiskana og það er eins og fóðrunin skipti ekki máli úr því sem komið er. En menn sem komu löngu seinna og fóru í afleysingu við fóðr- un, þeim er ekki sagt upp strax.“ „Þetta er heimska og sálarleysið algjört“ segir Sigfús og ber framkvæmdastjóra eldisins ekki allskostar vel söguna. „Hann fylgist bara með tölum. Og að spara kann hann ekki. Hér hefur til dæmis mikið af eldisfóðri skemmst af því að við höfum ekki fengið neitt til að verja það. Svo bitn- ar það auðvitað á eldinu og er sagt vera okkur að kenna.“ „Það eru allir gjörsamleg gáttaðir því eldið lít- ur vel út innst í firðinum,“ segir Guðmundur Val- ur Ríkharðsson, tengdasonur Sigfúsar og Jó- hönnu og annar þeirra sem sagt var upp í fyrsta kastinu. „Svo er skipstjórinn látinn fara með öll seiði sem til eru til Færeyja. Þeir hafa ekki viljað koma nálægt neinu á landi og ætluðu sér ekki að sitja uppi með neitt. Nú geta þeir dregið allt í burtu, 36 kvíar og allt sem þeim fylgir.“ Guðmundur segir menn engan pata hafa haft af því að eldinu yrði hætt. „Einhverjar sögur höfðum við heyrt fyrir mörgum mánuðum um að Langur, mjór og gjöfull. Mjóifjörður á fögrum janúardegi. Byggð í Mjóafirði stefnt í Mjófirðingum er verulega brugðið vegna óvæntra frétta um að hætta eigi laxeldi á vegum Sæsilfurs í firðinum. Steinunn Ásmundsdóttir tók hús á fjölskyldunni á Brekku og fór yfir stöðu mála. Hjónin Jóhanna Lárusdóttir og Sigfús Vilhjálms- son á Brekku hafa áhyggjur af framhaldinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.