Morgunblaðið - 29.01.2006, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 29.01.2006, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FYRIR tæpum tveimur árum hlotnaðist mér það happ að eign- ast dóttur. Hún er núna nýorðin þriggja ára, eiturklár stelpa og skemmtileg, sem stefnir ann- aðhvort á lækninn eða prinsessuna þegar hún verður stór. Dóttir mín er fædd í Kína. Það voru mörg sporin sem stíga þurfti í tengslum við þessa barneign mína. Það þurfti að fara milli stofnana hér heima, sækja alls kon- ar vottorð og umsagn- ir um að við hjónin værum líkamlega og andlega fær um að ala önn fyrir barninu okk- ar þegar þar að kæmi. Þegar umsóknin okkar um barneignina fór til Kína tók við löng bið, u.þ.b. meðgöngulöng, þar sem kínversk stjórnvöld mátu um- sókn okkar og leituðu dóttur okk- ar uppi. Svo barst okkur mynd. Eftir nokkurra vikna, afar langa og óþreyjufulla bið lögðum við af stað í ferðalag þvert yfir hnöttinn, hittum loksins telpuna okkar og komum með hana heim. Þvílík hamingja. En kveðjurnar sem við og stúlk- an litla höfum fengið frá stjórn- völdum síðan heim var komið hafa verið frekar nöturlegar. Ferðalag eins og hér er að framan lýst er alls ekki ókeypis: skjalavinnslan öll kostar sitt, skráningargjöld af ýmsum toga leggjast þar ofan á, greiða þarf styrk til barnaheimilis- ins í Kína og síðast en ekki síst borga fyrir ferðina þegar barnið er sótt. Samtals eru þetta u.þ.b. milljón krónur sem tínast til. Ís- lenska ríkið kemur ekki til móts við þennan kostnað á nokkurn hátt. Það var meira að segja svo, að styrkur sem við hjónin fengum frá stéttarfélögum okkar (sem við höfum auðvitað greitt til með skattlögðum krónum okkar gegn- um tíðina) var skattlagður að fullu, á þeirri forsendu að um per- sónuleg útgjöld hafi verið að ræða. Tekið skal fram að styrkurinn náði engan veginn að koma til móts við útgjöldin vegna ættleið- ingarinnar Þegar ég las svo um hremm- ingar nýbakaðrar móður hér á landi þegar hún eignaðist dóttur sína fyrr á árinu varð ég hugsi. Mér fannst sem sé verðlagning ríkisvaldsins á barn- eign hennar áhuga- verð. Tæpar 800.000 kr. Það er það sem hvert barn, sem ís- lensku samfélagi áskotnast eftir til- tölulega venjubundn- um leiðum, kostar okkur skattgreið- endur (að vísu þurfti þessi móðir að njóta aðstoðar skurðstofu við sína barneign). Ég hef reyndar ekki tölu yfir þær upp- hæðir sem foreldrar eru styrktir um þegar ekki þarf að leita lið- sinnis skurðstofu vegna barneigna, en þær hljóta þó að vera töluverð- ar, enda mæðraeftirlit og öll að- staða til barneigna sem betur fer betri hér en víðast hvar annars staðar í heiminum. Þetta er kostn- aður sem við horfum alls ekki í og greiðum með gleði úr sameig- inlegum sjóðum okkar. Þetta er jafnframt kostnaður sem íslenska ríkið sparar sér þegar börn eru ættleidd erlendis frá. Íslenska rík- ið fær meira að segja aukasporslu þegar svo er gert, getur skattlagt styrki sem foreldrar ættleiddra barna afla sér vegna barneign- arinnar. Það er þannig hængur á gjaf- mildi ríkisins gagnvart þeim for- eldrum sem eignast börn sín gegnum íslenska heilbrigðiskerfið, sé tekið mið af reynslu okkar hjóna. Þar sem barneign okkar og kostnaður af henni er af skatta- yfirvöldum talin „persónuleg út- gjöld“, og þar sem ættleidd börn njóta samkvæmt lögum jafnræðis á við önnur íslensk börn, þá hljóta þessi útgjöld ríkisins vegna með- göngu og fæðinga, sem greidd eru sem styrkur til foreldra gegnum heilbrigðiskerfið, að teljast jafn- skattskyld og styrkurinn sem við fengum frá stéttarfélögum okkar á sínum tíma, allur kostnaður vegna barneigna á Íslandi hlýtur að telj- ast til „persónulegra útgjalda“. Þarna er því komin fyrirtaksleið til að auka tekjur ríkissjóðs og það þarf eingöngu að beita jafn- ræðisreglunni til þess að opna fyr- ir hana. Önnur leið til að uppfylla jafn- ræðisregluna væri auðvitað sú að koma til móts við foreldra ætt- leiddra barna með einhverjum hætti, hætta a.m.k. að skattleggja stéttarfélagsstyrki sem veittir eru vegna ættleiðinga. En miðað við þá afgreiðslu sem þingsályktun- artillaga þessa efnis hefur fengið á löggjafarsamkomunni hingað til, þá hugnast ríkisvaldinu ekki sú leið. Ég vænti þess því að hin leið- in verði talin álitlegri. Í það minnsta sætti ég mig ekki við það að mín barneign njóti ekki jafn- ræðis á við aðrar barneignir Ís- lendinga og því síður við það að með því að þetta ójafnræði ríkir, sé gefið í skyn að dóttir mín sé ekki jafnvelkomin í hóp Íslendinga og önnur börn. Af skattlagningu barneigna Ólöf Ýrr Atladóttir fjallar um ójafnræði varðandi barneignir Íslendinga ’… ég sætti mig ekki viðþað að mín barneign njóti ekki jafnræðis á við aðrar barneignir Íslendinga og því síður við það að með því að þetta ójafnræði rík- ir, sé gefið í skyn að dóttir mín sé ekki jafnvelkomin í hóp Íslendinga og önnur börn.‘ Ólöf Ýrr Atladóttir Höfundur er móðir íslenskrar telpu, og starfar sem framkvæmdastjóri stjórnsýslunefndar. Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf í Hveragerði Símar: 660 8732, 660 8730, 483 5009 • stodverk@simnet.is • Gott verð. • Áratuga reynsla. • Teiknum eftir óskum kaupenda. • Sýningarhús á staðnum. • Einnig höfum við áhugaverðar lóðir til sölu. Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali F A S T E I G N A S A L A SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F. OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK SÍMI 533 1616 FAX 533 1617 VALLENGI 7 – 4ra HERB. OPIÐ HÚS Í DAG KL. 14 – 16. OPIÐ Á LUNDI MILL I KL. 12 OG 14 Í DAG Björt og rúmgóð 4ra herbergja íbúð á tveimur hæðum í vinsælu og vel staðsettu PERMAFORM-húsi. Sérinngangur. Á neðri hæð er fremri forstofa, hol, eldhús, stofa, gestasnyrting og þvottahús. Suðursvalir. Uppi eru 3 herbergi og baðherbergi. Barnvæn lóð. Öll þjónusta í göngufæri, s.s. leikskóli, grunnskóli, Borgarholtsskóli, Spöngin o.fl. ÍBÚÐIN GETUR VERIÐ LAUS VIÐ KAUPSAMNING. Verð 21,9 millj. FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Um er að ræða alla húseignina nr. 13, sem er kjallari, tvær hæðir og ris. Húsið samanstendur af þremur íbúðum. Í kjall- ara er sameiginlegt þvottahús og þurrk- herbergi, alls er húsið um 280 fm. Eignin er skráð íbúð á 1. hæð og íbúð á 2. hæð og í risi. Allar íbúðirnar eru í tryggri leigu. Á 1. og 2. hæð hússins eru rúmgóðar, fallegar og mikið endurnýjaðar 3ja herbergja íbúðir, auk 3ja herbergja íbúðar í risi. Í kjallara eru svo geymslur sem fylgja íbúðunum, svo og þvottahús og þurrkherbergi. Ástand húss að utan er mjög gott. Stigagangur og önnur sameign í ágætis ástandi. Búið er að endurnýja rafmagn, og rafmagnstöflur, járn á þaki lítur vel út. Í heild afar fallegar og vel skipulagðar íbúðir í húsi sem lítur vel út. Eignin selst í heilu lagi. Tilvalið fyrir fjárfesta. Verið velkomin í dag frá kl. 13-14.30. Sölumenn Gimli verða á staðnum og veita allar nánari upplýsingar. ÓSKAÐ ER EFTIR TILBOÐI Í EIGNINA Seljavegur 13, heildareignin - 3 íbúðir OPIN HÚS HJÁ GIMLI Sérlega falleg og vel skipulögð 3ja herbergja 82 fm íbúð á 3. og efstu hæð með sérinngangi og glæsilegu útsýni af stórum suðursvölum. Innan íbúðar eru tvö rúmgóð svefnherbergi, bæði með fataskápum. Fallegt baðherbergi með innréttingu og tölvustýrðum sturtuklefa (gufa, nudd og útvarp innbyggt í sturtu- klefann) Sérþvottahús innan íbúðar og sérgeymsla á hæð. Stofan er björt og rúmgóð, nýtist einnig sem borðstofa og er opin að hluta inn í eldhús. Eldhúsið er með fallegri mahóníinnréttingu. Í heildina litið sérlega falleg, björt og afar vel skipu- lögð íbúð með fallegu útsýni. Verð 20,9 millj. Verið velkomin í dag frá kl. 13.00-15.00. Klapparhlíð 28 - íbúð 303 - 3ja herb. Mosfellsbæ Ný á skrá. Sérlega vel skipulögð og björt 3ja herbergja 59 fm íbúð á 3. hæð í stein- steyptu húsi sem var málað og sprungu- viðgert 2005. Suðursvalir. Rúmgott eld- hús með nýlegri innréttingu, tengi fyrir þvottavél, flísar á gólfi og borðkrókur. Eldhús opið að hluta inn í stofu. Baðher- bergi endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi og gluggi á baði. Búið er að endurnýja rafmagnstöflu fyrir íbúð. Verð 17,9 millj., áhv. 15,8 millj. 4,15%. Margrét tekur á móti ykkur í dag frá kl. 13.00-14.00. Baldursgata 22 - 3. hæð Björt og falleg 3ja herbergja 81,2 fm íbúð á 2. hæð (ein íbúð á hæð) í góðu stein- húsi. Tvær samliggjandi bjartar stofur, rúmgott hjónaherbergi, baðherbergi og eldhús með gaseldunartækjum úr burst- uðu stáli. Í sameign er þvottahús og geymsla ásamt herbergi sem er sameign allra og er í útleigu. Fallegur garður. Góð sameign. Verð 18,6 millj. Ólöf tekur á móti ykkur í dag frá kl. 13.00-15.00. Seljavegur 25 - 2. hæð Kristján Ólafsson hrl. og löggildur fasteignasali www.klettur.is FASTEIGNASALAN KLETTUR KYNNIR Foldasmára 14: Fallegt raðhús á góðum stað í Smárahverfi í Kópavogi. Um er að ræða 195,7 fm raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Fallegur og vel frágengin garður og heimkeyrsla eru við hús- ið og er húsið allt í fínu ástandi að innan sem utan. Sölumenn Kletts taka vel á móti ykkur Opið hús við Foldasmára 14 í dag sunnudag frá kl. 14.00-16.00 Fáðu úrslitin send í símann þinn Rakarastofan Klapparstíg S: 551 3010 Hair play frá Rakarastofan Klapparstíg Fréttir í tölvupósti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.