Morgunblaðið - 29.01.2006, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 41
Þriðjudagur 7. febrúar
Kl. 19.00 Skólasetning Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra.
Kl. 19.00-20.00 Utanríkismál Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra.
Kl. 20.15-22.30 Listin að hafa áhrif Gísli Blöndal, markaðs- og þjónusturáðgjafi.
Fimmtudagur 9. febrúar
Kl. 19.00-20.00 Samgöngumál Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra.
Kl. 20.15-22.30 Listin að hafa áhrif Gísli Blöndal markaðs- og þjónusturáðgjafi.
Þriðjudagur 14. febrúar
Kl. 19.00-20.00 Efnahagsmál Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra.
Kl. 20.15-21.15 Heilbrigðisþjónusta Ásta Möller alþingismaður og varaformaður heilbrigðis-
og trygginganefndar Alþingis.
Kl. 21.30-22.30 Sjálfstæðisflokkurinn og hinir flokkarnir Borgar Þór Einarsson, formaður SUS.
Fimmtudagur 16. febrúar
Kl. 19.00-20.00 Umhverfismál Sigríður Anna Þórðardóttir, umhverfisráðherra.
Kl. 20.15-22.30 Borgarmálin Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins
og Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarfulltrúi.
Þriðjudagur 21. febrúar
Kl. 19.00-20.00 Greina- og fréttaskrif Gréta Ingþórsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks sjálfstæðismanna.
Kl. 20.15-21.15 Sjávarútvegsmál Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra.
Kl. 21.30-22.30 Flokksstarf Heimdallar Bolli Thoroddsen, formaður Heimdallar.
Fimmtudagur 23. febrúar
Kl. 19.00-20.00 Stjórnskipan og stjórnsýsla Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra.
Kl. 20.30-22.00 Heimsókn í Alþingi - Starfshættir og meðferð þingmála Sólveig G. Pétursdóttir,
forseti Alþingis.
Þriðjudagur 28. febrúar
Kl. 19.00-20.00 Listin að vera leiðtogi Ásdís Halla Bragadóttir, forstjóri BYKO.
Kl. 20.15-22.30 Ræðumennska og sjónvarpsþjálfun Gísli Blöndal, markaðs- og þjónusturáðgjafi
og Björn G. Björnsson, kvikmyndagerðarmaður.
Fimmtudagur 2. mars
Kl. 19.00-20.00 Stefna og skipulag Sjálfstæðisflokksins Kjartan Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins.
Kl. 20.15-21.30 Menntamál Þorgerður K.Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og menntamálaráðherra.
Skólaslit Þorgerður K. Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og menntamálaráðherra.
Kristofferson, Waylon Jennings og
Willie Nelson. Þeir nutu talsverðra
vinsælda, ekki síst á tónlistarferða-
lögum. Önnur plata félaganna sló
rækilega í gegn og er ein sú sölu-
hæsta á ferli söngvarans.
1993 verða enn kaflaskipti á ferli
Johnny Cash, hann gekk til liðs við
American Records og til varð hin
stórmerkilega fjögurra platna röð
American Recording (1993–2002.)
Cash lagði ekki árar í bát en
heilsufarið fór síversnandi eftir að
líða tók á níunda áratuginn. Auk Am-
erican-seríunnar gaf hann út efni
með vini sínum Nelson og mynd-
bandið Hurt, sem var einstaklega vel
heppnað og vakti mikla hrifningu,
ekki síst hjá ungu fólki.
June féll frá í maí 2003 og þegar
stóra ástin var gengin þvarr lífslöng-
un söngvarans á svörtu fötunum.
Johnny Cash lést tæpum fjórum
mánuðum síðar.
Kvikmyndin dregur ekkert undan
Síðla kvölds í maí 2003, heimsótti
leikstjórinn James Mangold, goð-
sögnina Johnny Cash og leist ekki á
það sem við honum blasti. Mangold
hafði staðið í stífri baráttu fyrir því
að kvikmynd um líf og starf Cash og
konu hans, June Carter, yrði að
veruleika. Maðurinn sem tók á móti
leikstjóranum var greinilega orðinn
langt leiddur. Það var ekki seinna
vænna ef átti að hefjast handa.
Walk the Line, myndin sem varð
til eftir torfengnar opinberanir
hjónanna, kemur örugglega mörgum
á óvart. Þau eru leikin af Joaquin
Phoenix og Reese Witherspoon, og
leitar langt inn á leyndar lendur sem
Cash lýsti jafnvel ekki í ævisögunum
tveimur; Man in Black og Cash: The
Autobiography.
Til að fá undanbragðalausa lýs-
ingu á nánum og persónulegu sam-
skiptum Cash og Carter, varð að
koma til það ótakmarkaða traust og
vinátta sem skapaðist á milli Man-
golds og söngvaranna. Cash neydd-
ist til að ganga í gegnum þá þolraun
að rifja upp sínar sárustu minningar
frá gegndarlausum sukkárum sjö-
unda áratugarins, þegar eiturlyfja-
neysla reið honum næstum að fullu;
bitra afneitun föðurs hans, sem var
Cash alla tíð þungbær, og ástina sem
hann bar til annarrar konu – June
Carter – á meðan hann var enn fast-
ur í fyrra hjónabandi.
Margt er almennt vitað um
Johnny Cash. Flestir þekkja röddina
og útlagaímynd söngvarans svart-
klædda, sem heimsótti fanga í ill-
ræmdustu svartholum landsins. Hélt
þeim hljómleika sem voru teknir upp
og urðu metsöluplötur um allan
heim. Sem ungur, uppreisnargjarn
villingur á upphafsárum rokksins,
málaði hann umhverfið rautt. Lenti í
útistöðum við lög og reglu, sökk í
dópið með fram því að leggja sinn
drjúga skerf á vogarskálar banda-
rískrar tónlistar.
Slík vitneskja dugði hvergi nærri
til að varpa ljósi á manninn undir yf-
irborðinu. Framleiðandinn, James
Keach, Mangold og kona hans og
meðframleiðandi, Cathy Conrad,
lentu í þeirri erfiðu aðstöðu að vekja
samúð með aðalsögupersónunni þótt
hann hefði yfirgefið konu og fjögur
börn til að vera með June. Og sann-
færa Cash í leiðinni að kvikmynda-
gerðin væri það eina rétta.
Aðalatriðið var að fá áhorfendur
til að skilja að þau væru allt aðrar
manneskjur í dag en þau voru þá.
Virkja visku goðsagnanna og
reynslu sem rosknir einstaklingar
sem líta um öxl til unga fólksins sem
þau voru er þau lærðu sínar lexíur.
Fá þau til að lýsa hvernig þau náðu
því að vera það sem þau eru í dag. Til
þess urðu kvikmyndagerðarmenn-
irnir að sækja inn á myrkar lendur
og finna sannleikann.
„Rekald á ólgusjó einmanaleikans“
Hugmyndin að Walk the Line
varð til er óvænt vinátta myndaðist
við tökur sjónvarpsþáttanna Dr.
Quinn, Medicine Woman, árið 1993.
Jane Seymour, eiginkona framleið-
andans Keach, fór með titilhlutverk-
ið en Cash tók að sér gestahlutverk í
þætti sem Keach stjórnaði. June
Carter dvaldist hjá manni sínum á
meðan á tökum stóð og þarf ekki að
orðlengja það að þessi tvenn hjón
urðu nánir vinir upp frá því. Þegar
Seymour eignaðist tvíbura nokkrum
árum síðar, var annar skírður í höf-
uðið á guðföður þeirra, Cash.
Um miðjan 10. áratuginn fór Cash
þess á leit við Keach að hann leik-
stýrði mynd, byggðri á lífshlaupi
sínu. Cash tók það í upphafi skýrt
fram að ekkert yrði dregið undan en
sannleikurinn leiddur í ljós. Hann
vildi heldur ekki kenna öðrum um
mistök sín en sagði að bróðurmiss-
irinn hefði um langt árabil gert sig
að rekaldi á ólgusjó einmanaleikans
og mótað sig sem listamann. Þegar
Jack bróðir hans, sem þótti einkar
mannvænlegur piltur, lést af slysför-
um 14 ára gamall var mikill harmur
kveðinn að blásnauðri fjölskyldunni.
Handritshöfundurinn Gill Dennis
raðaði bútunum saman í handrit árið
1997. Tveimur árum síðar vildi ekk-
ert kvikmyndaver koma nálægt
verkefninu og hvorki gekk né rak
uns Keach kom ritinu í hendur Man-
gold. Hann var mikill aðdáandi Cash
og hafði fylgst með þróuninni í tvö
ár. Mangold og konu hans leist ekki
á það sem komið var á blað, fannst
góður efniviðurinn kæfður í róman-
tík. Þau héldu til Tennessee á vit
Cash-hjónanna til að fá meira kjöt á
beinin. Upp hófst tími ótaldra viðtala
við hjónin, öll náin, mörg sársauka-
full. Skref fyrir skref, blað fyrir blað
var handritið breytt og bætt. Að því
kom að Mangold áleit það tilbúið til
töku, að undanskildum veikum mið-
hluta. Þá leysti hin guðhrædda June
Carter loks frá skjóðunni og sagði
Mangold frá ástarævintýri þeirra
Cash í Las Vegas sem legið hafði í
þagnargildi. Og Mangold var ekkert
að vanbúnaði lengur.
saebjorn@heimsnet.is
Kært var með þeim Johnny Cash og June Carter, sem þau Joaquin Phoenix og Reese Witherspoon leika í Walk the
Line þó að lífið væri ekki alltaf dans á rósum. Ímynd Cash var að mörgu leyti ímynd útlagans, en hann heimsótti
fanga í mörgum illræmdustu fangelsum Bandaríkjanna og hélt þar tónleika sem teknir voru upp og gefnir út.