Morgunblaðið - 29.01.2006, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 33
ÍPRÓTTIR
Handknattleikur er einsog aðrar íþróttir óút-reiknanlegur og óvæntúrslit líta dagsins ljós á
hverjum degi. Líklega hafa marg-
ir haft gaman af því að segja fyrir
um … [veðmál] úrslit leikja ís-
lenska landsliðsins í handknattleik
á Evrópumeistaramótinu sem
fram fer í Sviss þessa dagana.
Enda mikið í húfi og „litla“ Ís-
land enn og aftur að etja kappi við
stórþjóðir sem eru með íbúafjölda
sem er langt frá því að vera jafn-
mikill og eiginfjárhlutfall stærstu
viðskiptabanka landsins.
Ísland er einfaldlega best þessa
dagana.
Við erum með þrjú stig með
okkur í milliriðil á Evrópumeist-
aramóti í hópíþrótt og eigum góða
möguleika á að skrá nafn landsins
í sögubækurnar.
„Strákarnir“ eru okkar.
Eftir 36:31-sigur liðsins gegn
Serbíu/Svartfjallalandi í fyrsta
leik C-riðilsins í Sursee í Sviss
glæddust vonir stuðningsmanna
Íslands þess efnis að liðið kæmist
áfram í milliriðil keppninnar. Þær
vonir urðu að veruleika eftir
28:28-jafntefli liðsins á föstudags-
kvöldið gegn Dönum og íslenska
liðið tryggði sér farseðil í milli-
riðil.
Það er alltaf gaman að velta fyr-
ir sér höfðatölu í slíku samhengi.
Íslendingar hafa á að skipa liði
sem er með svipaðan íbúafjölda á
bak við sig og Björgvin í Noregi.
En það sem skiptir máli í þessu
samhengi er að Norðmenn eru
tæplega fimm milljónir samtals,
og já, Danir. Ekki gleyma því.
Gamla einokunarveldið, þeir eru
rúmlega sex milljónir að tölu og
við getum ekki yfirgefið þessa um-
ræðu án þess að minnast á Svía –
það hafa allir heyrt af Svíagrýl-
unni.
Svíar eru ekki einu sinni með á
þessu Evrópumeistaramóti, en
þeir eru tæplega tíu milljónir. Jú,
Mats Olsson, fyrrverandi lands-
liðsmarkvörður Svía, er þjálfari
hjá Portúgal.
Sá sem þetta skrifar hefur ekki
einu sinni áhuga á að afla sér upp-
lýsinga um það hvar Svíar eru
staddir í sínu uppbyggingarferli.
Íslendingum er nokk sama. Sví-
ar eru ekki að skemmta sér í Sviss
þessa dagana.
Íslendingar hafa á að skipa
mjög sérstöku fyrirkomulagi þeg-
ar kemur að skipulagi og fram-
setningu á íþróttum fyrir börn og
unglinga – og ekki má gleyma
„harkinu“ sem á sér stað í rekstri
„afreksíþrótta“. Dugnaður eða
„sjálfboðaliðastarf“ eru hugtök
sem ekki eru einu sinni til í orða-
forða sumra Evrópuþjóða.
En þessi hugtök eru mjög
ríkjandi í samfélögum í N-Evrópu
og Skandinavíu.
Sala á salernispappír – þið vitið
hvað um er að ræða. „Betlið“
þekkja allir sem hafa komið að
rekstri íþróttafélags og þeir aðilar
hafa upplifað það starf með sterk-
um hætti. Höfnun er líklega það
sem kemur fyrst upp í hugann hjá
þeim sem hafa starfað á þeim vett-
vangi.
Börn og unglingar á Íslandi
geta að öllu jöfnu gengið að
ágætri aðstöðu vísri til æfinga og
keppni undir handleiðslu þjálfara
og kennara sem leggja mikið á sig.
Aðrar þjóðir búa ekki alltaf svo
vel að eiga slíkt stoðkerfi.
Hins vegar get ég ekki annað en
hrósað þeim sem hafa lagt allt sitt
undir í rekstri afreksíþrótta á
undanförnum árum. Án þeirra
væru „strákarnir okkar“ ekki að
glíma við stórþjóðir í milliriðli á
Evrópumeistaramóti.
Án þeirra væru afreksíþróttir
ekki til á Íslandi.
Árangur Íslands á stórmóti sem
Evrópumeistaramótinu í Sviss
vekur ýmsar spurningar um
kynningarstarf og útbreiðslu á því
starfi sem unnið er á Íslandi.
Það er tími til kominn að þeir
sem hafa áhuga á stjórnmálum
fari að huga að því starfi sem unn-
ið er í grasrót íþróttastarfs á
„klakanum“ og sjái til þess að
foreldrar sem vilja fylgjast með
börnum sínum í uppbyggilegu
íþróttastarfi þurfi ekki að eyða
öllum sínum frístundum í að finna
leiðir til að fjármagna íþrótta-
starfið.
Það væri kannski einfaldasta
lausnin að „minnka útrásina“ í út-
gjöldum utanríkismála og einbeita
sér þess í stað að því að efla innra
starf íslenskrar æsku.
Og þá er ekkert undanskilið;
íþróttastarf, skátastarf, tónlistar-
nám eða annað frístundastarf.
Dugnaður er okkar einkenni en
það má alltaf gera betur.
Áfram Ísland.
Dugnaður er okkar einkenni
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fáni vor sem friðarmerki … Við Íslendingar getum verið stoltir af „strákunum okkar“ eftir vel unnin verk á EM í Sviss.
BRÉF FRÁ SVISS
seth@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson