Morgunblaðið - 29.01.2006, Side 6
6 SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
UNGIR nemendur í Skákskóla Íslands hlýddu á Friðrik Ólafsson stórmeist-
ara fara yfir nokkrar skákir sínar frá því snemma á ferli hans á föstudags-
kvöldið. Þannig fræddi Friðrik börnin um eitt og annað sem upp hefði komið
á ferlinum en um þessar mundir er Friðrik að yfirfara allar sínar skákir á
löngum skákferli með það fyrir augum að gefa þær út á bók. Fyrirlesturinn
tókst vel og sagði Friðrik þessa uppákomu hafa verið stórskemmtilega.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ræddi um skákir sínar í Skákskóla Íslands
SAMKVÆMT samantekt Stefáns
Agnars Finnssonar, yfirverkfræðings
hjá framkvæmdasviði Reykjavíkur-
borgar, hefur slysum á fólki á svoköll-
uðum 30 km svæðum fækkað töluvert
á síðustu tíu árum. Á undanförnum
tíu árum hefur Reykjavíkurborg unn-
ið að gerð hverfa þar sem akstur tak-
markast við 30 kílómetra hraða og í
samantektinni voru umferðaróhöpp á
þessum svæðum greind frá árinu
1994–2005. Fram kemur í samantekt-
inni að umferðaróhöppum, þar sem
slys hafa orðið á fólki, hefur fækkað
um 27% og þar sem alvarleg slys hafa
orðið á fólki um 62% í 30 km hverfum.
Hins vegar kemur fram í skýrslunni
að mikil fylgni hafi mælst með aukinni
fólksbílaeign og aukningu á
ákveðnum flokkum umferðaróhappa
á tímabilinu. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Slysum
fækkar á 30
km svæðum
SAMKYNHNEIGÐ og kirkjuleg
hjónavígsla hefur mikið verið rædd
hér á landi undanfarið, ekki síst eftir
að lagt var fram á Alþingi frumvarp
um breytingar á lagaákvæðum um
réttarstöðu samkynhneigðra. Í frum-
varpinu er ekki gert ráð fyrir að trú-
félögum verði veitt heimild til lög-
formlegrar vígslu samkynhneigðra
para, en breytingartillaga sem Guð-
rún Ögmundsdóttir, þingmaður Sam-
fylkingar, hefur lagt fram vegna
frumvarpsins kveður á um að slíkt
verði leyft. Umræður um samkyn-
hneigða og kirkjuna fara víðar fram
um þessar mundir en á Íslandi. Ný-
lega gerði Nils-Henrik Nilsson, sem
starfað hefur hjá sænsku bisk-
upsstofunni, samantekt um stöðu
þessara mála í Svíþjóð og víðar.
Fram kemur í samantektinni að
þrjú ár eru liðin frá því að lögð var
fyrir sænska kirkjuþingið tillaga þess
efnis að samkynhneigð pör gætu látið
gefa sig saman í kirkjulegu brúð-
kaupi, líkt og gagnkynhneigðu fólki
stendur til boða. Tillagan var felld, en
kirkjuyfirvöldum var falið að vinna að
hugmyndum sem lagðar yrðu fyrir
kirkjuþing næsta árs. Áttu hugmynd-
irnar að skapa grunn að kirkjulegri
framkvæmd staðfestrar samvistar
samkynhneigðra para. Á kirkjuþingi
sænsku kirkjunnar í fyrra var svo
samþykkt, með um 2⁄3 hlutum
greiddra atkvæða, að útbúa form
vegna fyrirbæna- eða blessunar-
athafnar samkynhneigðra para í stað-
festri samvist. Frá því um miðjan tí-
unda áratuginn höfðu samkynhneigð
pör getað leitað til kirkjunnar um
blessun en engar skýrar reglur höfðu
þó gilt um form hennar.
Þrenns konar form
Sænska kirkjan hyggst láta útbúa
þrenns konar form vegna athafnanna
en þau á að taka í notkun í sænskum
kirkjum í haust. Er ætlunin sú að pör
geti valið milli formanna þriggja. Eitt
formið mun líkjast mjög venjulegu
hjónavígsluritúali hjá sænsku kirkj-
unnni, en annað byggist upp á grind
sem hver söfnuður notar svo til þess
að móta athöfnina. Þriðja formið er
svo byggt upp á allt annan hátt en
hefðbundið hjónavígsluritúal og lýtur
öðrum forsendum en það.
Ekki nýjar umræður
Umræður um samkynhneigð og
kirkju eru ekki nýjar af nálinni,
hvorki í Svíþjóð né annars staðar í
Evrópu. Sænska kirkjan vann fyrstu
greinargerð sína um þessi mál árið
1972 og var sú úttekt bæði umdeild
og mikið rædd. 1988 var í fyrsta sinn
lögð fram tillaga á kirkjuþingi um
blessunarathöfn fyrir samkynhneigð
pör. Árið 1995, ári eftir að sænsk yf-
irvöld lögleiddu staðfesta samvist
samkynhneigðra, sendu sænskir
biskupar frá sér tillögu um fyrirbæn
til handa þeim sem hefðu gengið í
slíka samvist. Tekið var fram að
kirkjan tæki engan þátt í skráningu
samvistarinnar og að ekki væri um
opinbera guðsþjónustu að ræða. Árið
1999 var tillagan endurskoðuð og þá
var fyrirbænin færð nær opinberri
guðsþjónustu, en á þeim tíma var orð-
ið algengt að vinir og ættingjar sam-
kynhneigðra para væru viðstaddir
blessunarathafnirnar.
Danir fyrstir að lögleiða
staðfesta samvist
Sem fyrr segir var staðfest samvist
samkynhneigðra lögleidd í Svíþjóð
árið 1994. Danir urðu þó fyrstir þjóða
til þess að samþykkja lög um stað-
festa samvist, en þetta var árið 1989.
Samskonar lög tóku gildi í Noregi ár-
ið 1993, á Íslandi árið 1996 og árið
2001 í Finnlandi. Allnokkur Evr-
ópulönd fylgdu svo fordæmi Norður-
landanna. Í dag er staðan sú að fjögur
ríki í heiminum hafa lögleitt borg-
araleg hjónabönd samkynhneigðra.
Umrædd ríki eru Holland, Belgía,
Spánn og Kanada. Hvergi er málum
háttað með þeim hætti að þjónandi
prestar gefi samkynhneigð pör sam-
an með lögformlegum hætti.
Eftir að breytingar höfðu verið
gerðar á löggjöf sumra Evrópuríkja
sem tryggðu réttarstöðu samkyn-
hneigðra jukust væntingar til kirkna í
þessum löndum um að taka á málum
þessa hóps, að því er fram kemur í
sænsku samantektinni.
Þrír flokkar kirkna
Þar segir að skipta megi í þrjá
flokka þeim kirkjum sem hafa á ein-
hvern hátt viljað koma til móts við
samkynhneigð pör. Í fyrsta flokknum
séu kirkjur eða biskupsdæmi sem
hafa ákveðið bjóða samkynhneigðum
pörum í staðfestri samvist upp á
blessunarathöfn í nafni kirkjunnar og
hafa í því skyni útbúið sérstakt form.
Í öðrum flokknum eru kirkjur sem í
raun hafa leyft að slíkar athafnir fari
fram, en fara fram á að þær séu ekki
framkvæmdar í nafni kirkjunnar
heldur með einstaklingsbundnum
hætti, í samvinnu presta og samkyn-
hneigðra para. Í þriðja flokknum eru
kirkjur sem telja að fyrirbæn með
pari í staðfestri samvist geti ekki tal-
ist hluti af opinberum athöfnum
kirkjunnar heldur sé einkamál prests
og þess sem hann veitir fyrirbænina.
Form fyrir blessun tekið upp í
fjórum mótmælendakirkjum
Aðeins fjórar mótmælendakirkjur
og þrjú biskupsdæmi innan banda-
rísku biskupakirkjunnar, sem til-
heyrir anglikönsku kirkjunni, hafa
tekið upp form fyrir blessun para í
staðfestri samvist og þau verið sam-
þykkt af viðeigandi stofnunum kirkj-
unnar. Tvær mótmælendakirknanna
eru evangelískar kirkjur í Þýskalandi
auk mótmælendakirkju Hollands og
dönsku þjóðkirkjunnar.
Margar mótmælendakirkjur á
Norðurlöndum og í Þýskalandi teljast
til síðasta flokksins, en æ fleiri þess-
ara kirkna eru að skoða möguleika á
opinberri blessunarathöfn samkyn-
hneigðra para. Í miðflokknum eru svo
nokkrar þýskar mótmælendakirkjur,
að því er segir í samantekt Nils-
Henrik Nilssons.
Samantekt sænsku biskupsstofunnar um blessun samkynhneigðra para í staðfestri samvist
Þrýst á kirkjur að skoða
mál samkynhneigðra
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
ANNARRI umræðu um frumvarp
iðnaðarráðherra um breytingu á lög-
um um rannsóknir og nýtingu á auð-
lindum í jörðu, lauk á Alþingi, rúm-
lega þrjú aðfararnótt föstudagsins.
Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri
grænna, talaði samfellt í nær fimm
klukkustundir. Gert er ráð fyrir því
að frumvarpinu verði vísað til þriðju
og síðustu umræðu á mánudag.
Í frumvarpinu er m.a. lagt til að
gildissvið fyrrgreindra laga nái einn-
ig til rannsókna á vatnsafli til raf-
orkuframleiðslu. Iðnaðarnefnd
þingsins lagði fram breytingartil-
lögu við frumvarpið á fimmtudag, og
voru þingmenn VG ósáttir við að hún
skyldi strax tekin á dagskrá. Ekki
var orðið við beiðni um frestun og
hófst umræðan því síðdegis og stóð
fram á nótt, eins og áður sagði.
Þingmenn VG létu þó ekki sitt eft-
ir liggja í umræðunni og stóð Jón
Bjarnason í pontu frá kl. 18.02 til kl.
22.54. Hann talaði því samfellt í
nærri fimm klukkustundir eins og
áður sagði, en sló þó ekki ræðumet
Jóhönnu Sigurðardóttur, þingmanns
Samfylkingarinnar. Hún talaði sam-
fellt í fimm og hálfan tíma vorið 1998,
í umræðum um húsnæðisfrumvarp
félagsmálaráðherra.
Talaði sam-
fellt í nær
fimm tíma