Morgunblaðið - 29.01.2006, Qupperneq 20
20 SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
HVERFULLEIKI tímans er síná-
lægur í starfi Hólaskóla, háskólans
á Hólum. Á meðan verið er að grafa
upp menjar um gamalt skólastarf
handan vegarins fer starfsemin
fram í gömlum húsum, sem þannig
hefur verið gefið nýtt hlutverk.
Vinnustofa fornleifafræðinga er á
gömlu bílaverkstæði, bleikjukyn-
bótastöðin í fjárhúsi, eitt hesthúsið í
loðdýrabúi, rannsóknarstofa í frysti-
klefa og vatnalífssýningin í haug-
húsinu. Þannig tekur sagan sífellt á
sig nýjan búning á Hólum.
Tíu þjóðerni í hestanámi
„Það sem hefur vegið þyngst í síð-
ari tíma þróun skólastarfs á Hólum
er að við byggjum á sögu og menn-
ingu staðarins, stöndum á öxlum
þeirra sem byggðu hann upp,“ segir
Skúli Skúlason, rektor Hólaskóla.
„Sérhæfing í námsþróun skólans
hefur einnig haft mikla þýðingu, öfl-
ugar rannsóknir, samstarf við aðra
skóla og alþjóðleg tengsl. Við erum
með marga erlenda nemendur, bæði
í rannsóknartengdu meistara- og
doktorsnámi og eins í grunnnáminu
í hestafræðum. Þar eru níu þjóðerni,
tíu með Íslendingum. Við leggjum
mikla áherslu á þann þekkingariðn-
að sem byggst hefur upp í kring-
umhesta á Íslandi og teljum það
gott dæmi um hvernig þekking eyk-
ur arðsemi, árangur og vöxt.“
Skólahald í níu aldir
Níu aldir eru liðnar síðan skóla-
hald hófst á Hólum með dómsskóla
Jóns Ögmundarsonar biskups. Það
var einn fyrsti dómsskóli á Norð-
urlöndum, aðeins átján árum yngri
háskólanum í Bologna, þeim elsta í
Evrópu.
Mikill metnaður var frá upphafi í
skólastarfinu og fékk Jón til lands-
ins lærða menn frá útlöndum, m.a.
franskan mann að nafni Rikini til að
kenna messugjörð. Sjálfur var Jón
mikill áhugamaður um tónlist og
annálaður söngmaður; til er saga af
því þegar hann stóð aftast í dóm-
kirkjunni í Lundi og upphóf raust
sína í messu, þá sneru sér allir við í
kirkjunni, jafnvel þótt erkibiskupinn
hefði lagt blátt bann við slíku í
messugjörð.
„Eftir siðaskiptin breyttist skól-
inn í latínuskóla, sem fjölfræðing-
arnir Guðbrandur Þorláksson bisk-
up og Arngrímur lærði hófu til vegs
og virðingar,“ segir Skúli. „Skóla-
hald lagðist af árið 1801 og var flutt
til Reykjavíkur, en í huga Norðlend-
inga var þetta áfram hinn norð-
lenski skóli. Menntaskólinn og Há-
skólinn á Akureyri tengjast þessari
arfleifð og því hefur verið sterkt
samband milli Akureyrar og Hóla.“
Svo gerist það að Benedikt Vig-
fússon bóndi og prestur eignast
jörðina árið 1825, byggir staðinn
upp og gerir hann færan um að taka
við búnaðarskóla árið 1882. Norð-
lendingar standa að því sameigin-
lega, en á þeim tíma varð mikil
vakning í landbúnaði, ekki síst fyrir
frumkvæði Jóns Sigurðssonar for-
seta, sem beitti sér fyrir uppfræðslu
bænda. Þróunin í lok nítjándu aldar
er ótrúlega lík þeirri sem varð í lok
þeirrar tuttugustu, nema þá færðist
allt á háskólastig. Og að nokkru
leyti var Jón Ögmundarson í svip-
uðu brautryðjandahlutverki árið
1106 – að svara kalli tímans.“
Meiri sérhæfing og fjölbreytni
Hefðbundinn bændaskóli er starf-
ræktur fram undir 1980, en þá má
segja að önnur bylting eigi sér stað í
landbúnaði með nýjum atvinnuhátt-
um og viðhorfum, þar sem áhersla
er lögð á meiri fjölbreytni.
„Búnaðarmenntun í landinu tók
að þróast í átt að því sem tíðkast í
Evrópu, enda eru margir helstu
náttúruvísindaskólar erlendis gaml-
ir bændaskólar. Þegar Jón Bjarna-
son tekur við skólanum árið 1980 er
tekin sú ákvörðun að sérhæfa skól-
ann og þróa nýjar greinar; það sem
verður ofan á er fiskeldi og fiska-
líffræði, hestamennska og hrossa-
rækt, og ferðamálafræði með
áherslu á menningu og náttúru. Allt
tengt atvinnugreinum í örum vexti.
Í byrjun tíunda áratugarins er sú
stefna tekin hjá skólanum að byggja
upp öflugt rannsóknarstarf og við
það styrkjast tengsl við Háskóla Ís-
lands, sem og aðra innlenda og ekki
síður erlenda háskóla. Hingað sækir
starfsfólk sem tekur þátt í að
byggja upp fræðimennsku og rann-
sóknir í þeim greinum sem kenndar
eru við skólann. Fyrir vikið þróast
starfið smám saman nær því sem
gerist á háskólastigi og gerist það
með formlegum hætti árið 2003.“
Frábær námsaðstaða
Að sögn Skúla var það algjör bylt-
ing fyrir nám á Hólum þegar námið
komst á háskólastig, því um leið var
markið sett hærra og skólinn gjald-
gengur í háskólasamfélaginu. En
hann nefnir til viðbótar að grund-
völlur þess árangurs sem náðst hafi
sé sú góða aðstaða sem byggst hafi
upp fyrir nám við skólann.
„Í hestanáminu getum við státað
af frábærum hesthúsum og reiðhöll-
um. Þegar kemur að kennslu og
rannsóknum í fiskeldi og fiskalíf-
fræði er ferskvatnsrannsóknarstöð
á Hólum og sjávarfræðasetur á
Sauðárkróki. Og í ferðamálanáminu
er staðurinn sjálfur eins og tilrauna-
stöð í menningar- og náttúrutengdri
ferðamennsku, dalurinn, fjöllin og
Tröllaskaginn. Varla er hægt að
hugsa sér betri stað fyrir slíkt nám.“
– Og námið nýtist staðnum líka?
„Já, ferðaþjónustan á Hólum nýt-
ur góðs af því í ýmsum þróunar-
verkefnum, t.d. hafa nemendur búið
til göngustíga og merktar göngu-
leiðir um allt og rannsóknir snúast
m.a. um matargerð út frá menning-
ararfinum.“
Jákvæð áhrif á atvinnulíf
Nemendum við Hólaskóla hefur
fjölgað á síðustu fjórum árum úr 50 í
140 og er áætlað að þeir verði 300
árið 2010. „Til þess að mæta því er-
um við að byggja upp nemenda-
garða. Við uppbyggingu skólans
njótum stuðnings stjórnvalda, enda
hefur sú byggðastefna skilað góðum
árangri að efla menningarsetur og
skólastarf á landsbyggðinni. En við
njótum einnig mikils stuðnings frá
byggðarlaginu, t.d. dýrmæts fram-
lags frá Kaupfélagi Skagfirðinga og
FISK Seafood og Skagafjarðarveit-
um.“
Og uppbyggingin mun halda
áfram á Hólum, einkum varðandi
hvers kyns fræðatengda menningu.
„Sviðið er að breikka, sem gefur
vísbendingu um þróunina á næstu
árum. Áhersla á greinar á borð við
fornleifafræði og guðfræði á eftir að
aukast mikið og einnig náttúruvís-
indi almennt, s.s. tengd fiskum og
hestum. Við stefnum t.d. að því að
hefja nám í sumarskóla í hesta-
mennsku. Menningar- og fræðasetr-
ið er mjög mikilvægt í þessari upp-
byggingu.“
Starfsemin á Hólum er farin að
hafa jákvæð áhrif á atvinnulíf í
byggðarlaginu, að sögn Skúla. Fyr-
irtækjum hefur fjölgað sem beita
þessari þekkingu, s.s. varðandi
hesta, ferðaþjónustu og fiskeldi. Þá
er uppbygging sjávarfræðaseturs
við höfnina á Sauðárkróki þegar far-
in að skila nýjum verkefnum eftir
aðeins tveggja ára starfsemi.
„Í menningargeiranum búum við
svo vel í Skagafirði að eiga sterkar
menningarstofnanir, eins og
Byggðasafn Skagfirðinga og Vest-
urfarasetrið á Hofsósi, sem við er-
um í miklu sambandi við. Og ég hef
tekið eftir því sem gamall Akureyr-
ingur hvað Skagfirðingar standa
þétt saman.“
Nýtt ritrýnt tímarit
– Og stuðst er við gamlar hefðir
úr skólahaldi á Hólum?
„Skólinn hefur tekið þá stefnu,
sérstaklega í kjölfarið á háskólaþró-
uninni, að tengja sig markvisst við
sögu staðarins,“ segir Skúli. „Besta
dæmið er nýtt kennimerki skólans,
H, sem sótt er í Guðbrandsbiblíu.
Svo búum við að því að geta sótt í
söguna aragrúa af tengingum, t.d.
endurreistum við Ósýnilega félagið
árið 1992, elsta vísindafélag Íslands
sem stofnað var á miðri 18. öld. Þá
hefur skólinn staðið fyrir alls kyns
málþingum og uppákomum, sem
byggja á sögu staðarins og fornleifa-
rannsóknum; Hólaskóli keyrir það
verkefni áfram með Þjóðminjasafn-
inu og Byggðasafni Skagfirðinga.“
Og vegna sögunnar og þeirrar
þróunar sem er að verða á háskóla-
náminu teljum við okkur vera í
sterkri stöðu til að fjalla um hvert
skólastarf stefnir í landinu. Þess
vegna stendur til að við höldum
skólaráðstefnu í vor, þar sem m.a.
rektor Háskóla Íslands heldur fyr-
irlestur og einnig formaður samtaka
evrópskra háskóla. Reifuð verður
saga skólahalds, en einnig rætt á
framsækinn hátt um stöðu háskóla-
náms og undirbúningsnáms á fram-
haldsskólastigi. Fyrirlestrarnir
verða gefnir út og hefjum við með
því útgáfu ritrýnds tímarits frá Hól-
um.
Annað hefti tímaritsins kemur út
með fyrirlestrum af alþjóðlegri
fornleifaráðstefnu í ágúst. Sú ráð-
stefna er afrakstur fjögurra ára
rannsókna á Hólum, sem um 40
manns af ýmsum þjóðernum hafa
unnið að.“
– Hvað heitir tímaritið?
„Ef til vill Guðbrandur. Það er við
hæfi, ekki síst þegar skoðað er fyrir
hvað nafnið stendur.“
Frá New York til Hóla
Rannsóknarstarfið sem unnið er á
Hólum er ekki aðeins mikil kjölfesta
í skólastarfinu heldur hefur það
greitt fyrir því að vel menntað
starfsfólk ráðist til skólans.
„Einnig spilar inn í að hér er gott
að búa,“ segir Skúli. „Þetta litla
samfélag býður upp á mikil lífsgæði,
s.s. grunn- og leikskóla, fallegan
skóg, sundlaug, menningu, litla búð
og svo kjöraðstöðu fyrir hesta-
mennsku. Þannig að háskólafólk
sem er að flippa út á stressinu í
stórborgum eins og New York sæk-
ir hingað, eignast börn og stundar
fræðin. Það fer jafnvel enn betur
um það hér en í Vesturbænum!
Þetta er eitt það helsta sem byggða-
stefnan gengur út á, að átta sig á
lífsgæðum landsbyggðarinnar.
Við erum einmitt að velta fyrir
okkur byggðaþróunarnámi, en eins
og annað nám hjá okkur yrði það í
samstarfi við innlenda og erlenda
háskóla og stofnanir. Við sækjum
búsetukraftinn í aðstöðuna og
byggðarlagið, en eflum faglegu
gæðin og fólkið með samstarfi út á
við.“
Framrás Hólaskóla byggð á
sögu og menningu staðarins
Morgunblaðið/RAX
Kennimerki Hólaskóla er sótt í Guðbrandsbiblíu, segir Skúli Skúlason rektor.
VONIR standa til að hægt verði að taka
fyrstu skóflustunguna að menningar-
og fræðasetri á Hólum á afmælisárinu.
Með því er ætlunin að nýta sérstöðu
staðarins; stefna saman lærdómi sög-
unnar og því frumkvæði sem býr í fólk-
inu. Gert er ráð fyrir að húsið rísi á
tveimur til þremur árum og verði þjóð-
argjöf til staðarins.
Fellur vel að staðarmyndinni
„Við höfum notið skilnings bæði af
hálfu atvinnulífsins og stjórnvalda og
erum að vinna að fjármögnun, en ekki
er hægt að segja til um kostnað á
þessu stigi málsins,“ segir Jón Að-
alsteinn Baldvinsson, vígslubiskup.
„Við snerum okkur til Guðmundar
Jónssonar arkitekts, sem kunnur er
fyrir hönnun menningarhúsa, og ósk-
uðum eftir tillögu,“ segir Skúli Skúla-
son, rektor Hólaskóla. „Guðmundur
hefur lagt fram fyrstu hugmyndir að
fjölnota húsi og er mál manna að hönn-
unin falli mjög vel inn í landslagið og
staðarmyndina.“
Merk söfn í setrinu
Ráðgert er að húsið rísi þar sem
gamla fjósið og hlaðan stendur núna.
Það verði þrjú þúsund fermetrar og
geti rúmað söfn og sýningar. Þar verður
ráðstefnusalur sem tekur 300 manns í
sæti, en er einnig hægt að breyta í tón-
leikasal eða kennslustofur. Einnig verð-
ur þar 450 manna veitingaaðstaða.
„Húsið er forsenda áframhaldandi
uppbyggingar á starfseminni hér á Hól-
um,“ segir Skúli. „Það húsnæði sem er
fyrir hendi á staðnum er þegar fullnýtt
og því þurfum við meira rými undir
starfsemina.“
Og þörfin er mikil, enda mikil upp-
bygging í vændum á Hólum. „Hér fara
fram gríðarlegar fornleifarannsóknir,
sem skapa mikla þörf fyrir sýning-
arhald,“ segir Jón. „Þá vonumst við til
að geta haft til sýnis gamla Gutenberg-
prentsmiðju, þó að við reiknum ekki
með að hér verði virk prentsmiðja í
framtíðinni. En við reiknum fastlega
með prentlistasafni í nýja menningar-
og fræðasetrinu og auðvitað bókasafni,
þar sem Hólaprentið, bækurnar sem
prentaðar voru á Hólum, verða kjarn-
inn. Einnig verður hér kirkjulistasafn,
sem er að vissu leyti þegar fyrir hendi í
Hóladómkirkju. Síðan má ekki gleyma
því að hér er til staðar sögusafn ís-
lenska hestsins, sem vantar húsnæði.
Þannig að merk söfn verða hýst hér á
Hólum og við hyggjumst gera það með
glæsibrag.“
Tugir þúsunda ferðamanna
Um tuttugu þúsund ferðamenn
leggja leið sína að Hólum á ári hverju og
stefnt er að 40 þúsund á afmælisárinu.
„Við þurfum betri aðstöðu til að taka
á móti þessum fjölda ferðamanna og
sinna þeim eins og skyldi,“ segir Jón.
„Húsið opnar nýja möguleika á því sviði
með veitingaaðstöðu, minjagripum og
þjónustu. Þá getum við hýst stóra við-
burði, s.s. samkomur, ráðstefnur og
hestamannamót. Að auki er þörfin mikil
fyrir húsið í öllu kirkju- og skólastarfi. Í
kirkjunni er öflugt tónleika- og helgi-
hald, sem dregur að fjölmarga, og það
þarf að vera hægt að sinna þessu fólki
með viðunandi hætti.“
„Staðinn vantar þetta andlit,“ segir
Skúli. „Í menningar- og fræðasetrinu
yrði hreiður Guðbrandsstofnunar með
aðstöðu fyrir fræðimenn sem og
kennslustofur fyrir vaxandi skólastarf.
Þá myndi skólahúsið gamla þróast
smám saman í skrifstofuhúsnæði, en
mikil þörf er á því samhliða auknu um-
fangi starfseminnar.“
Hólaprentið heim
En víkjum aftur að bókakostinum.
„Stóra átakið fyrir utan byggingu húss
undir menningar- og fræðasetrið er að
eignast Hólaprentið,“ segir Jón. „Flest-
ar þær bækur, sem eiga það sammerkt
að vera prentaðar á Hólum og á tólf ára
tímabili í Skálholti, eru til í safni séra
Ragnars Fjalars Lárussonar heitins. Við
vonumst til að fá öflugan stuðning til að
eignast þetta safn svo hægt verði að
afhenda það Hólasafni til varðveislu.
Það var hans ósk að safnið yrði á Hól-
um. Þetta er algjörlega einstakt safn,
það besta í einkaeigu sem vitað er um,
og það á heima hér á Hólum.“
Stefnt að nýju menningar-
og fræðasetri á Hólum
Hér sést þverskurður af húsinu, sem
ráðgert er að verði á tveimur hæðum.
Fyrstu hugmyndir gera ráð fyrir að á þaki hússins verði torg tengt hlaði gamla
skólahússins. Þar verði hægt að setja upp sýningar og fara í leiki.