Morgunblaðið - 29.01.2006, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 31
Glænýr Saab
Við njótum góðs af magninnkaupum nýs umboðs-
aðila SAAB á Norðurlöndum og getum því boðið
SAAB 9-5 á ótrúlegu verði. Saab 9-5 er lúxusbíll
sem ber höfuð og herðar yfir samkeppnina bæði
í verði og öryggi. Það hefur aldrei verið skynsam-
legra að velja SAAB og núna.
Svona lúxus á ekki að kosta
3.160.000*
* Við trúum þessu ekki heldur.
færa ætti þetta allt til Færeyja. Þá kom fram-
kvæmdastjórinn og sannfærði okkur um að þær
sögusagnir væru bull og ekkert að marka þær.
Svo kemur hann einn daginn og segir að öllu
verði lokað. Þetta er ansi erfitt, mig langar að
vera hér áfram en það getur orðið óframkvæm-
anlegt. Konan mín kennir hálfan daginn í skól-
anum. Sem betur fer höfum við ekki keypt okkur
hús hér ennþá.“
Tínist hressilega utan af
Ef fram fer sem horfir verður aðeins einn
nemandi í skólanum í Mjóafirði næsta vetur og
raunar er vart líklegt að foreldrarnir vilji hafa
hann aleinan í skóla. Þá lokar og leikskóli sem
starfræktur hefur verið í firðinum undanfarið.
„Það tínist hressilega utan af okkur við þetta“
segir Jóhanna og virðist ekki bjart um að út-
gönguleið sé til úr þessu ástandi fyrir Mjófirð-
inga.
Að eldinu undanskildu byggir atvinnulífið í
Mjóafirði á ýmsu smálegu. Tveir menn eru með
heimaverkun og tvo báta, tvær fjölskyldur reka
áætlunarbát sem siglir tvisvar í viku milli Mjóa-
fjarðar og Norðfjarðar, en rekstur hans byggist
á að eitthvað sé til að flytja. Býli eru tvö, á Dala-
tanga og Brekku, en fólkið vinnur auk búverka
utan heimilis. Fiskkvótinn í Mjóafirði er um 100
tonn í það heila.
„Ég sé það fyrir mér að byggð í Mjóafirði líði
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
voða
Vænn og vel í holdum. Sigfús sýnir laxfiskinn
kominn í sláturstærð, um 3 kg.
Stærsti framleiðandieldislax hérlendis,Sæsilfur hf., hyggsthætta starfsemi ár-
ið 2008 vegna erfiðleika í
rekstri, sem raktir eru eink-
um til gengismála. Lang-
stærsti hluti eldisins hefur
farið fram í Mjóafirði þar
sem 11 af 42 íbúum starfa
við það. Tveimur hefur þeg-
ar verið sagt upp. 4 millj-
ónir laxaseiða hafa verið
sett í sjó og rúmlega 10
tonnum af laxi slátrað á því
fimm ára tímabili sem eldið
hefur starfað og slátra á yf-
ir 4.000 tonnum í ár. Sæsilf-
ur er í eigu Samherja og Síldar-
vinnslunnar.
Aðalsteinn Helgason, forstjóri Síldar-
vinnslunnar í Neskaupstað, segir ekkert
breytast í starfsemi fyrirtækisins vegna
laxaslátrunar á yfirstandandi ári. „Þetta er
langur ferill og við munum halda áfram að
slátra laxi hér,“ segir Aðalsteinn. „Við þær
aðstæður að laxeldið hætti lýkur laxaslátr-
un einhvern tíma á árinu 2007 og hvað
Síldarvinnsluna varðar erum við að slátra
4.000 tonnum á ári, sem er einn dagur í
viku eða svo og höfum giskað á að það
svari til 15–18 stöðugilda. Slátrunin hefur
verið unnin í okkar fiskvinnsluhúsum sem
eru ekki sérstaklega bundin við slátrun, en
auðvitað er búið að fjárfesta heilmikið í
verkefninu, bæði í Mjóafirði og síðan er í
Neskaupstað löndunarbúnaður eða kvíar til
að setja fiskinn í.“
Síldarvinnslan er verktaki í slátrun og
hvorki kaupir laxinn né selur. Aðalsteinn
segir tilkynningu um lokun Sæsilfurs ekki
hafa komið á óvart. „Síldarvinnslan hefur
að sjálfsögðu alltaf vitað hvernig rekst-
urinn gengur og gert ráð fyrir erfiðleikum
í rekstri þessa félags í bókum sínum. Við
vitum vel að margt gott hefur gerst og
reksturinn batnað jafnt og þétt, þ.e.a.s.
kostnaður hefur lækkað jafnt og þétt og
menn náð betri árangri á mörgum sviðum í
rekstrinum. Það eru bara ýmsar aðstæður
hér í kringum okkur sem valda því að þessi
ákvörðun var tekin.“
Alltaf gert ráð fyrir erfiðleikum
36 kvíar eru á þremur svæðum í Mjóafirði.
Í Mjóafjarðarþorpinu búa 42, þar af eru 10 börn,
16 karlmenn og 16 konur.