Morgunblaðið - 29.01.2006, Síða 52
52 SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
HR. STURLA Böðvarsson.
Á málaskrá Alþingis liggja fyrir
drög að frumvarpi frá yðar ráðu-
neyti.
Það fjallar um að veita Vega-
gerðinni aukið vald til að stöðva og
rannsaka bíla á þjóðvegum lands-
ins.
Þar getið þér, sem ráðherra,
ákveðið að eftirlitsmönnum Vega-
gerðarinnar verði heimilt að stöðva
ökutæki.
Einnig að ökumanni verði skylt
að stöðva ökutæki þegar eftirlits-
maður gefur stöðvunarmerki.
Honum er einnig skylt að hlíta
því að eftirlitsmaður athugi ástand
ökutækis og hleðslu og skal veita
honum aðgang að upplýsingum og
gögnum sem varðveitt eru í ökurita
ökutækis, á ökuritakorti, á skrán-
ingarblöðum ökurita eða með öðr-
um hætti. Ef við eftirlit vaknar
grunur um alvarlegt brot er eft-
irlitsmönnum heimilt að banna
frekari för ökutækis til að hindra
áframhaldandi brot þar til lögregla
kemur á vettvang. Ökumaður skal
hlíta banni eftirlitsmanns um frek-
ari för þar til því hefur verið aflétt.
Er með þessu verið að veita
Vegagerðinni algert lögregluvald á
þjóðvegum landsins. En samkvæmt
gildandi lögum þá hafa ekki margir
þetta vald hér.
Þar vísa ég í lög frá 1996 nr. 90
13. júní, en þar segir:
9. gr. Handhafar lögregluvalds.
1. Ríkislögreglustjóri, vararíkislög-
reglustjóri, lögreglustjórar, vara-
lögreglustjórinn í Reykjavík, skóla-
stjóri Lögregluskóla ríkisins,
löglærðir fulltrúar lögreglustjóra
og lögreglumenn fara með lög-
regluvald.
2. Dómsmálaráðherra er heimilt í
undantekningartilvikum að fela
öðrum starfsmönnum lögreglu lög-
regluvald tímabundið til að sinna
sérstökum verkefnum.
3. [Áhafnir varðskipa og gæslu-
flugvéla]1 fara með lögregluvald
þegar þær annast eða aðstoða við
löggæslu.
4. [Tollstjórar, löglærðir
fulltrúar þeirra og tollverðir fara
með lögregluvald á sínu starfssviði
og þegar þeir annast eða aðstoða
við löggæslu.]2
5. Hreppstjórar fara með lög-
regluvald samkvæmt lögum um
hreppstjóra.
6. Héraðslögreglumenn fara með
lögregluvald þegar þeir gegna
starfinu.
7. Þeir sem kvaddir eru lögreglu
til aðstoðar lögum samkvæmt fara
með lögregluvald á meðan þeir
gegna starfanum.
8. Nemar í Lögregluskóla rík-
isins fara með lögregluvald þegar
þeir gegna lögreglustarfi.
Einnig verður Vegagerðinni gef-
in heimild, samkvæmt þessum nýju
lögum, til að sekta flytjanda eða
ökumann, hvort sem brotið verður
rakið til saknæms verknaðar
starfsmanns flytjanda eða ekki,
enda sé brotið drýgt til hagsbóta
fyrir flytjanda eða hann hafi notið
hagnaðar af brotinu.
Og neiti ökumaður eða flytjandi
að verða við tilmælum lögreglu eða
eftirlitsmanns um stöðvun ökutæk-
is, banni við áframhaldandi för þess
eða um aðgang að upplýsingum og
gögnum má gera þeim að greiða in
solidum sekt fyrir brot á lögum
þessum.
Og af þeim takmörkuðu upplýs-
ingum sem ég hef aflað mér hefur
mér verið sagt hvað „in solidum“
þýddi.
Mér var svarað, að hægt væri að
sekta bíla, án þess að stoppa þá.
T.d. ef nokkrir bílar frá sama
fyrirtækinu ækju í samfloti og
vegagerðarmenn gæfu stöðv-
unarmerki og fyrsti bíllinn stoppaði
ekki og allir hinir bílarnir fylgdu
honum, þá gætu þeir sent einn
reikning á alla bílana, til þeirra höf-
uðstöðva, og þeir yrðu að borga.
Þér segið á heimasíðu yðar
(sturla.is) að markmiðið með þessu
frumvarpi sé aukið umferðarör-
yggi.
Ég tel svo ekki vera, því það að
veita lítt menntuðum starfs-
mönnum Vegagerðarinnar það vald
sem hér er lýst, sem aðrir opinberir
starfsmenn þurfa að vera mörg ár
að læra (Lögreglan), segir mér, að
þér eruð að veita Vegagerðinni það
vald, með sinni takmörkuðu mennt-
un, að stöðva, sekta og jafnvel
kyrrsetja bíla hvar sem er!
Og að veita þeim það vald að
sekta og nota upplýsingar úr bíla-
vigtum, sem eru ólöglegar (ólög-
giltar vigtir).
Og samkvæmt upplýsingum ís-
lenskra laga á Löggildingarstofa
Íslands að sjá um eftirlit með vigt-
um, sem eru á undanþágu, til að
reikna vigt bíla og sekta ef þeir eru
of þungir. En Löggildingarstofa
sér víst ekki um það eftirlit, þrátt
fyrir lagagrein þess efnis, heldur
skoðar Frumherji ehf. vigtirnar
einu sinni á ári.
Hér áður fyrr var alltaf lög-
reglumaður með starfsmanni Vega-
gerðarinnar. Lögreglan sá um að
stöðva bílinn, biðja um ökuritas-
kífu, ökuskírteini og þess háttar, en
vegagerðarmaðurinn sá um að at-
huga og vigta bílinn.
Hvað ríkið sparar marga lög-
reglumenn veit ég ekki, en hættan
sem fylgir þessu frumvarpi marg-
faldar hættuna á þjóðvegunum.
Ef Vegagerðin fær þetta vald
(lögregluvald) tel ég skilaboðin
vera þess eðlis, að ef þeir sem aka
stórum bílum út um allt land koma
að slysi, þar sem enginn hefur slas-
ast en samt þarf lögregluaðstoð,
skuli þeir hringja í Vegagerðina,
þar sem hún hefur þetta vald, og þá
er eins gott að það séu menn á sím-
anum dag og nótt.
Eftir hvaða lögum skal maður
fara?
Með kveðju
HALLDÓR SIGURÐSSON
vörubílstjóri.
Opið bréf til samgönguráðherra
Frá Halldóri Sigurðssyni:
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
KRISTINDÓMURINN snýst ekki
um hvað ég kalla kristindóm, heldur
um það sem Jesús segir. Hann sagði
meðal annars: „Þér hafið heyrt …,
en ég segi yður.
Sannlega segi ég
yður.“
Þegar einhver
segist vera krist-
inn og um leið
hafa skoðun á til-
teknu málefni
sem varði trúna,
en styðst ekki við
orð Jesú í Biblí-
unni heldur það sem honum sjálfum
finnst vera kristindómur, þá fer
hann villur vegar.
Jesús segir okkur að láta ekki
ótta, eða hneigðir stjórna gjörðum
okkar heldur trúa á hann. „Hertök-
um hverja hugsun til hlýðni við
Krist,“ segir í Biblíunni.
Hann segir: „Þér eruð vinir mínir
ef þér gjörið það sem ég segi yður.
Ég er vegurinn, sannleikurinn og líf-
ið. Enginn kemur til föðurins nema
fyrir mig.“
GUÐMUNDUR ÖRN
RAGNARSSON,
Brávallagötu 10, 101 Reykjavík.
Mér
finnst!
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
„Gamla húsið“ við Þórsgötu
er til sölu en um er að ræða
hæð og ris ásamt hluta af
kjallara. Nýtanlegur gólfflötur
gæti verið ca 120 fm. Íbúðin
er mjög skemmtileg í stíl
síns tíma að hluta. Á hæð-
inni eru tvær stofur og eld-
hús en uppi eru tvö svefn-
herbergi og bað. Í kjallara er
sérþvottahús. Bakgarður.
Verð 32,7 millj. 7148
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL 13–16
„GAMLA HÚSIГ ÞÓRSGATA 23
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali
OPIÐ HÚS DÍSABORGIR 2
Opið hús að Dísaborgum 2, íbúð 303, á 3. hæð (efstu) sunnudaginn
29. janúar milli kl. 14-16. Sigurbjörg og Olgeir taka á móti fólki og sýna
íbúðina. Mjög falleg og vel skipulögð 3ja herb. íbúð í vönduðu fjölbýlishúsi
við Dísaborgir í Grafarvogshverfi. Góðar innréttingar. V. 17,9 m. 5796
EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG (SUNNUDAG)
FRÁ KL. 14-16.
Berg fasteignasala, Háaleitisbraut 58
Sími 588 5530 • Netfang: berg@berg.is
Pétur Pétursson lögg. fasteignasali
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
La gavegur 182 • 105 Rvík • Fax 53 481 • i r idborg.is
196,1 fm einbýli á tveimur hæðum, þar af 38,0 fm bílskúr, við Kársnesbraut í
Kópavogi. Húsið skiptist í forstofu, hol, stofu og borðstofu, eldhús með
borðkrók, þvottahús, tvö baðherbergi, geymslur og fjögur svefnherbergi. Bílskúr
er mjög rúmgóður og mikið endurnýjaður. Stór og góð lóð. V. 39,8 m. 5107
Daníel sýnir í dag milli kl. 14.00 og 16.00, sími 868 3398.
Kársnesbraut 135 – Opið hús
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F. OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
LAUFBREKKA 18 - EINBÝLI
OPIÐ Á LUNDI MILL I KL. 12 OG 14 Í DAG
Sérlega fallegt og vandað 195 fm sérbýli (einbýli)
sem er hæð og ris. Neðri hæð: Forstofa, hol,
stofur með útgengi í suðurgarð, eldhús og
borðkrókur, 2 svefnherb., sjónvarpshol, flísalagt
baðherbergi.Gengið til efri hæðar um góðan stiga
og uppi eru 2 herbergi með skápum, flísalagt
baðherbergi með sturtuklefa og stór geymsla. Frábært útsýni. Verð 41,9 millj.
Fáðu úrslitin
send í símann þinn