Morgunblaðið - 29.01.2006, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 53
FRÉTTIR
Fasteignir til sölu
Upplýsingar hjá ERON í síma 515 7440,
eron@eron.is, Vegmúla 2, Reykjavík
Stefán Hrafn Stefánsson hdl., lögg. fasts.
Þetta glæsilega u.þ.b. 190 fm parhús á tveimur hæðum er til sölu. Húsið
er allt í mjög góðu ástandi með vönduðum innréttingum og frágangi.
Flísalögð böð og parket á gólfum. Fjögur svefnherbergi. Frábært útsýni.
Gunnar og Rut sýna eignina í dag, sunnudag, á milli kl.14.00 og 16.00.
Verið velkomin. Verð 43,9 millj.
Viðarás 31A - Parhús - Opið hús í dag
HB FASTEIGNIR
Sími 534 4400 • Hús verslunarinnar, Kringlunni 7, 103 Reykjavík
Hrafnhildur Bridde, löggiltur fasteignasali
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 14–15
HAGALAND 7 – MOSFELLSBÆ
GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS M/CA 100 FM AUKAÍBÚÐ Á NEÐRI HÆÐ
• Heildarstærð 361,2 fm
• Tvær íbúðir í dag. Auðvelt að
breyta aftur!
• Bílskúrinn er tvöfaldur, 52,5 fm
• Glæsileg stofa m/arni
• Vönduð gólfefni og innréttingar
• 5 svefnherb., þar af tvö í auka
íbúðinni
• Húsið hefur verið mikið endurnýjað
á sl. 2. árum
• Stórar suðvestursvalir
• Stór og gróinn garður
• Ekkert hús fyrir framan
• Sjón er sögu ríkari!
HÚSIÐ STENDUR Á EIGNARLÓÐ Á ÚTSÝNISSTAÐ!
VERÐ 64,9 MILLJ.
Hrafnhildur Bridde,
löggiltur fasteignasali
HB fasteigna,
sýnir eignina.
Sími 821 4400.
Elísabet og Þorfinnur taka á móti áhugasömum kl. 14-16 í dag.
Sími
530 6500
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
Nýuppgerð 3ja herb., 90 fm íbúð á 2. hæð með sérinngangi af svölum.
Nýtt parket á allri íbúðinni og hún nýmáluð. Suðursvalir frá stofu, sameigin-
legur garður, sameiginlegur afgirtur stór sólpallur. Sérbílastæði fyrir fram-
an húsið. Laus til afhendingar við kaupsamning. V. 17,9 m.
Myndir og nánari lýsing eignar á www.heimili.is
OPIÐ HÚS Í DAG
KLUKKURIMI 59 – SÉRINNGANGUR
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Skólagerði - Kóp. - einb.
Mjög fallegt tveggja íbúða hús, 169,2
fm ásamt 45 fm bílskúr, samtals um
214,2 fm. Húsið er í byggt árið 1947
og stendur á glæsilegri 1.390 fm lóð.
Forstofa, hol, eldhús, búr, stofa, bað-
herbergi, barnaherbergi og hjónaher-
bergi. Í risi er eitt herbergi undir súð,
hol og geymslur. Eigninni fylgir stúdíóí-
búð með sérinngangi. Bílskúr er byggð-
ur 1977. Frábær staðsetning. Uppl.
veitir Þorbjörn Helgi, sími 896 0058.
OPIÐ HÚS- HAUKALIND 24
Fallegt og fullbúið 179,9 fm raðhús með innbyggðum 26,8 fm bílskúr, samt.
206,7 fm. Húsið stendur fyrir neðan götu á glæsilegum útsýnisstað.
Hellulagðar stéttar og afgirt timburverönd er fyrir framan húsið. Á efri hæð er
forstofa, snyrting, stofa, borðstofa, eldhús og innbyggður bílskúr. Á neðri
hæðinni eru 3 góð svefnherberbergi, baðherbergi, þvottahús,
sjónvarpsherbergi, fataherbergi og vinnuaðstaða. Fallegur stigi er á milli hæð.
Vandaðar innréttingar. Parket og flísar á gólfum. Verð 49,9 millj. 5594
Eignin verður til sýnis og sölu í dag (sunnudag)
á milli kl. 14-15.
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Til leigu. Hlíðasamári, Kópavogi
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30.
Um er að ræða nýbyggingu, 6
hæða verslunar-, þjónustu- og
skrifstofubygging. Mjög góð
staðsetning á einum besta
stað í Smáranum. Glæsilegt
útsýni, samtals ca. 1944 fm.
Jarðhæð - verslun og þjón-
usta ca 324 fm. 2.-6. hæð -
skrifstofur og þjónusta ca.
324 fm. hver hæð. Mögulegt
er að skipta hverri hæð upp í 2-4 einingar. Góð bílastæði eru við
húsið. Húsið er mjög áberandi og er aðgengi og staðsetning mjög
góð. Húsnæðið afhendist í september 2006.
Uppl. veitir Magnús Gunnarsson í
símum 822 8242 og 588 4477.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Hólabraut - Hf. 4ra
Falleg 4ra herb. 81,6 fm íbúð á 2.
hæð í litlu fjölbýli (fimmbýli). Forstofa
og eldhús með náttúruflísum, nýleg
innrétting og tæki, borðkrókur. Stofa
og 3 svefnherbergi með nýju eikar-
parketi. Baðherbergi með baðkari.
Sérgeymsla í kjallara, sam. þvottahús
og hjólageymsla. Búið að klæða tvær
hliðar á húsinu. Gler gott. Húsið nýlega viðgert og málað að utan. Nýjar skolplagnir.
Gott leiksvæði á baklóð. LAUS STRAX. Verð 16,8 millj.
ÁGÚSTA Pálsdóttir, lektor við
bókasafns- og upplýsingafræðiskor
Háskóla Íslands, varði dokt-
orsritgerð sína í
bókasafns- og
upplýsingafræði
við Åbo Akademi
University í Åbo í
Finnlandi 9. des-
ember sl. Rit-
gerðin ber titilinn
Health and Lif-
estyle: Icelanders
Everyday Life
Information Behaviour.
Markmið rannsóknarinnar var að
afla þekkingar á því hvernig Íslend-
ingar notfæra sér upplýsingar um
heilsu og lífsstíl og hvaða þættir hafa
áhrif þar á. Í rannsókninni voru
tengslin milli upplýsingahegðunar,
skynjaðrar heilsustjórnunar (health
self-efficacy) og heilsuhegðunar, þ.e.
mataræðis og hreyfingar, rann-
sökuð. Megináhersla var lögð á að
rannsaka upplýsingahegðun: hvatn-
ingu til að afla upplýsinga um heilsu
og lífsstíl; hversu algengt það er að
fólk afli upplýsinga; hvar; og með
hvaða hætti upplýsinga er aflað; mat
fólks á gildi upplýsinga í mismun-
andi upplýsingamiðlum; og hvaða
þættir geta örvað eða hindrað fólk
við að afla upplýsinga.
Gagna var aflað með póstkönnun
meðal Íslendinga á aldrinum 18 til
80 ára. Tekið var 1.000 manna úrtak
á öllu landinu með tilviljunaraðferð.
Svarhlutfall var 51%. Góð sam-
svörun reyndist vera milli þýðis og
svörunar. Þátttakendur voru dregn-
ir í fjóra hópa og var byggt á því
hversu oft þeir leituðu upplýsinga
um heilsu og lífsstíl af ásettu ráði.
Niðurstöðurnar sýna að í þeim
hópi þar sem heilsuhegðun var verst
einkenndist upplýsingahegðunin af
því að hópurinn leitaði sjaldnast
upplýsinga um heilsu og lífsstíl, auk
þess sem fólk skynjaði minnstan
hvata til að afla upplýsinga og mest-
ar hindranir varðandi upplýs-
ingaöflun. Jafnframt reyndist trú
þessa hóps á eigin getu til að stjórna
heilsu sinni (health self-efficacy)
vera lítil. Aukin upplýsingaöflun
tengdist betri heilsuhegðun. Í þeim
hópi þar sem heilsuhegðun var best
einkenndist upplýsingahegðun hins
vegar ekki af því að hópurinn leitaði
oftast að upplýsingum heldur af
gagnrýnu vali á heimildum og því að
fólk skynjaði minnstar hindranir
varðandi upplýsingaöflun, auk þess
sem trú þessa hóps á eigin getu til að
stjórna heilsu sinni reyndist vera
mikil. Niðurstöður rannsóknarinnar
gefa vísbendingu um að tengsl séu
milli upplýsingahegðunar varðandi
heilsu og lífsstíl, skynjaðrar heilsu-
stjórnunar og heilsuhegðunar.
Leiðbeinandi Ágústu var dr.
Mariam Ginman, prófessor við Åbo
Akademi University í Åbo í Finn-
landi. Andmælandi við vörnina var
dr. Paul Solomon, prófessor við Uni-
versity of North Carolina at Chapel
Hill. Í dómnefnd sátu dr. Harriet
Silius, dr. Andreas Häger og dr.
Gunilla Widén-Wulff.
Doktor í bóka-
safns- og upp-
lýsingafræði
BHM mun ásamt öðrum heildar-
samtökum aðila vinnumarkaðarins,
Landssambandi eldri borgara, sveit-
arfélögum og Öldrunarráði Íslands
standa að ráðstefnu um sveigjanleg
starfslok 9. febrúar næstkomandi.
Ráðstefnan verður haldin í Salnum í
Kópavogi og hefst klukkan 13.15.
Að ráðstefnunni standa Öldr-
unarráð Íslands, Landssamband eldri
borgara, BHM, BSRB, ASÍ, Samtök
atvinnulífsins og Samband íslenskra
sveitarfélaga.
Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni
verða Örn Clausen, lögfræðingur,
Berglind Magnúsdóttir, öldrunarsál-
fræðingur, og Gylfi Ingvarsson, að-
altrúnaðarmaður Alcan.
Ráðstefna um
sveigjanleg
starfslok
Fréttir á SMS