Morgunblaðið - 29.01.2006, Qupperneq 62
Mímí og Máni
Kalvin & Hobbes
Svínið mitt
© DARGAUD
HVAÐA ÓGEÐSLEGA GUMS
ER ÞETTA EIGINLEGA?
SMAKKAÐU.
ÞÚ MUNT
ELSKA ÞAÐ
EN HVAÐ EF ÉG
ELSKA ÞAÐ BARA
EKKI NEITT?!?
ÞÁ VERÐUR ÞAÐ BARA
ÞROSKANDI PABBI REYNIR
ALLTAF AÐ GERA ÞAÐ
SEM ER MÉR FYRIR
BESTU
? VIÐ SKULUM
ÁTHUGA
?
?
HVAÐ ERUÐ
ÞIÐ AÐ GERA? AAHHH!!
HVAÐ
GENGUR Á
HÉRNA? AF
HVERJU ERTU
AÐ GRÁTA?
ADDA ER HRÆDD
VIÐ ÖMMU SÍNA
AF HVERJU
ER HÚN
HRÆDD VIÐ
HANA?
VEGNA ÞESS AÐ
ÞAÐ ER SAGT AÐ
GAMALT FÓLK
BORÐI FLÆR OG
ROTTUR
HVAÐ?
JÁ
HVAÐA BULL
ER ÞETTA?
ÞAÐ ER VERIÐ
AÐ SEGJA ÞETTA
Í SKÓLANUM
OG VIÐ
ÆTLUÐUM AÐ
SANNPRÓFA ÞAÐ
OG VIÐ
GERÐUM ÞAÐ
HVERNIG
ÞÁ?
ATHUGANIR OG
TILRAUNIR OG
SVOLEIÐIS
SVONA...
!
HVERNIG
VIRKAÐI ÞETTA
PRÓF?
NÚ ÞEGAR
MUNNURINN LYKTAR
EINS OG ROTTA
OPNAÐU
MAMMA!
ÞAU VILJA
BIÐJAST
FYRIRGEFNINGAR
BÖRNIN VORU
AÐ STRÍÐA ÞÉR
Dagbók
Í dag er sunnudagur 29. janúar, 29. dagur ársins 2006
Víkverji er mikillfréttafíkill og
reynir að fylgjast vel
með hvað er að gerast
hér á landi og úti í hin-
um stóra heimi. Það
fer mjög í taugarnar á
Víkverja þegar reglu-
lega eru rifjaðar upp
gamlar fréttir og þær
gerðar að miklu máli,
þó svo að ekkert nýtt
hafi komið fram í þeim
málum sem „fréttin“
fjallar um. Blaðið sló
upp á forsíðu í vikunni
gamalli frétt um
fangaflug Bandaríkja-
manna – frétt frá því í haust, sem er
byggð á skýrslu svissneska öldunga-
deildarþingmannsins Dicks Martys.
Það var eins og við manninn mælt;
ríkisútvarpið, RÚV, tók upp málið á
nýjan leik eftir að fréttin kom í
Blaðinu og kallaði til sömu alþingis-
mennina og kallaðir voru til fyrir
fjórum mánuðum til að ræða um
sama mál. Þeir fóru mikinn í fréttum
RÚV og gamlar lummur voru rifj-
aðar upp og farið með ýmis stóryrði.
Og það var ekki nóg með að alþing-
ismennirnir kæmu fram í fréttatím-
um, heldur tóku þeir málið aftur upp
til umræðna á Alþingi, þar sem RÚV
var aftur komið og útvarpaði frá um-
ræðunum og sagði frá þeim á ný í
fréttum daginn eftir og þar næsta
dag.
Það er hreint ótrúlegt og vægast
sagt stórfurðulegt hvernig menn
geta hamast með göm-
ul mál sem ekkert nýtt
hefur komið fram í,
eins og það séu nýjar
fréttir. Er hægt að
bjóða hlustendum upp
á þannig fréttaflutning
til lengdar?
x x x
Víkverji er einn afaðdáendum
„Strákanna okkar“ –
landsliðsins í hand-
knattleik. Áður en
landsliðið hélt á EM í
Sviss kallaði Sjón-
varpið, RÚV, á Viggó
Sigurðsson landsliðsþjálfara og það
átti að þjarma að honum í Kastljósi
eftir tvo tapleiki gegn Frökkum. Já,
eftir að hann hafði áður stjórnað
landsliðinu í sextán leikjum án taps.
Viggó hefur verið að yngja upp í
landsliðinu síðan hann tók við því í
rjúkandi rúst eftir Ólympíuleikana í
Aþenu 2004. Viggó stóð sig vel og
svar hans var hárrétt þegar hann
var spurður hvort Arnór Atlason
væri ekki of ungur, 21 árs, til að
leika lykilhlutverk í landsliðinu.
Viggó svaraði: „Hér er ekki spurn-
ing um aldur, heldur hvað leikmenn
eru góðir!“ Arnór sýndi að svar
Viggós var rétt er hann skoraði sjö
mörk og átti stórleik gegn Dönum í
Sviss á föstudagskvöldið.
Viggó treystir sínum ungu leik-
mönnum og þeir treysta honum. Það
hafa þeir sýnt saman á EM í Sviss.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Seltjarnarnes | Ljóða- og tónlistardagskrá verður í Seltjarnarneskirkju í
dag. Dagskráin hefst kl. 15. Sigurður Flosason saxófónleikari og Sólrún
Bragadóttir söngkona eiga heiðurinn af tónlistardagskránni en þau munu
flytja íslensk sönglög í óvenjulegum búningi. Þá er ljóðadagskrá þar sem átta
Seltirningar á ýmsum aldri og úr ólíkum áttum munu lesa nokkur af sínum
uppáhaldsljóðum.
Morgunblaðið/ÞÖK
Sigurður og Sólrún spinna
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100.
Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Gjörið ekkert af eigingirni eða hégómagirnd. Verið lítil-
látir og metið aðra meira en sjálfa yður. (Fil. 2, 3.)