Morgunblaðið - 29.01.2006, Qupperneq 68
BANDARÍSKI töframaðurinn
Curtis Adams er væntanlegur
hingað til lands í byrjun apríl en
hann hefur stýrt einni vinsælustu
töfrasýningu í Las Vegas und-
anfarin misseri og verið líkt við
sjálfan David Copperfield.
Ísleifur Þórhallsson hjá Event
Ehf., sem flytur töframanninn til
landsins, sá Curtis í Las Vegas og
segir hann að töframaðurinn sé
einn sá magnaðasti sem hann hafi
augum litið. „Hann sjálfur er ótrú-
lega kraftmikill og hefur töfrandi
nærveru. Auk töfrabragðanna er
mikil og skemmtileg tónlist í sýn-
ingunni með dansatriðum og svo
spila áhorfendur sjálfir stóra rullu
í sýningunni. Þetta er töfrasýning
sem rokkar!“
Gengið upp veggi
Leikstjóri og annar höfundur
sýningarinnar er Don Wayne en
hann var leikstjóri og brelluhöf-
undur Davids Copperfield í tæp 20
ár. Á hann til dæmis heiðurinn að
brellum eins og hvarfi Frels-
isstyttunnar og Austurlandahrað-
lestarinnar auk brellunnar sem
snýst um að ganga í gegnum
Kínamúrinn. Ísleifur segir að
Adams nýti sér nýjustu tækni í
sýningunni, hann storki nútíma-
læknavísindum með því að klóna
sjálfan sig aftur og aftur (?). Hann
gangi upp veggi, eftir loftinu og
niður aftur og þar fram eftir göt-
unum.
Hann segir sýninguna höfða til
allra en nokkur atriði gætu þó
vakið óhug barna undir tíu ára
aldri. Curtis Adams hefur sýnt
fyrir fullu húsi í Las Vegas mörg-
um sinnum í viku síðastliðna mán-
uði og að sögn Ísleifs var það ekki
auðvelt að fá hann til að stoppa
sýningar þar, pakka saman öllu
dótinu sínu og ferðast með það
alla leið til Íslands til að sýna í
Austurbæ. Eftir mikið púsluspil
og langar viðræður tókst það þó
loksins og hingað koma rúmlega
10 listamenn og 20 tæknimenn,
ásamt nokkrum gámum af ýmiss
konar búnaði.
Las Vegas í Reykjavík
Í fréttatilkynningu sem barst
frá Event Ehf. segir að fyrirtækið
hafi lengi haft augastað á spenn-
andi sýningum frá Las Vegas og
unnið að því hörðum höndum í þó
nokkurn tíma að koma slíkri sýn-
ingu til landsins. Markar þessi
sýning upphafið að nýjum kafla í
atburðahaldi hérlendis, þar sem
Event hyggst flytja þó nokkuð
fleiri sýningar frá Las Vegas til
Íslands. Ef allt gangi að óskum
verði það reglulegur viðburður
héðan í frá að geta farið á alvöru
Las Vegas sýningu í öllu sínu
veldi – í henni Reykjavík.
Fólk | Töframaðurinn Curtis Adams kemur hingað til lands frá Las Vegas
Töfrasýning sem rokkar
Curtis Adams hefur verið líkt við sjálfan David Copperfield.
Curtis Adams kemur fram í Aust-
urbæ föstudaginn 7. apríl kl. 20.
Mjög takmarkað magn miða er í
boði, áætlað er að hefja miðsölu
um miðjan febrúar.
www.event.is
68 SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Nr. 1 í Ameríku
Extra sterkt
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa - Gulli betri
Lið-a-mót
FRÁ
Það er ekki tekið út meðsældinni að eiga fræga for-eldra, síst ef frægð foreldr-anna stafar af listsköpun og
barnið hyggst leggja á sömu braut.
Tónlistarhæfileikar ganga nefnilega
ekki alltaf í erfðir, sjaldnast reynd-
ar finnst manni á þeim fjölmörgu
listamönnum sem reynt hafa að
komast áfram á nafninu, þótt vit-
anlega séu dæmi um að tónlist-
argáfan berist á milli ættliða.
Rosanne Cash er einmitt gott
dæmi um það hvernig barni getur
tekist að marka sér eigin braut,
nánast þrátt fyrir ætternið, frekar
en fyrir það, því hún hefur síst stað-
ið í skugga föður síns; frekar verið
sjálfstæður og merkilegur listamað-
ur sem farið hefur eigin leiðir. Á
morgun kemur út ný plata hennar,
Black Cadillac, sem samin er og
tekin upp við venju fremur erfiðar
aðstæður því á einu ári missti hún
þrenna foreldra sína; stjúpa hennar,
June Carter Cash, lést í maí 2003,
faðir hennar, Johnny Cash, fjórum
mánuðum síðar, og síðan móðir
hennar, Vivian Liberto Cash Distin,
í maí á síðasta ári.
Sem unglingur virtist Rosanne
Cash lítinn áhuga hafa á tónlist, eða
í það minnsta lítinn áhuga á að ger-
ast tónlistarmaður. Foreldrar henn-
ar skildu 1966 og hún ólst upp hjá
móður sinni í Los Angeles, fékk
strangt kaþólskt uppeldi að því er
hún segir sjálf. Fjórtán ára var hún
farin að fikta við fíkniefni en hélst
þó í skóla þar til hún varð átján ára
og réð sig í vinnu hjá föður sínu
sem aðstoðarkona í tónleikaferð.
Hún vann svo um tíma hjá plötufyr-
irtæki í Lundúnum en sneri síðan
heim til Bandaríkjanna og lagði
stund á leiklist og ensk fræði. Um
það leyti var tónlistin farin að toga í
hana og fyrsta breiðskífan kom út
ekki löngu síðar, Right or Wrong.
Á næstu árum gekk henni flest í
haginn í tónlistinni, kom til að
mynda ellefu lögum á toppinn á
sveitatónlistarlistanum vestanhafs
og fékk að auki Grammy-verðlaun.
Ekki var einkalífið eins dægilegt,
því þó hún hefði fundið sér eig-
inmann þegar hún hljóðritaði fyrstu
plötuna þá varð hann snemma
neyslufélagi og lífið á köflum býsna
skrautlegt. Á endanum náði hún
áttum, fór í meðferð og skildi við
manninn, sveitatónlistarmanninn
Rodney Crowell.
Erfiðleikarnir innblástur
Erfiðleikarnir verða Rosanne
Cash oft að innblæstri og sín bestu
verk semur hún oft eftir dapra
daga. Þannig var King’s Record
Shop, sem er ein af hennar bestu
plötum að marga mati, að stórum
hluta spegilmynd af erfiðleikunum
sem hún gekk þá í gegnum með
Crowell, og næsta plata, Interios,
sem er líklega hennar besta verk,
fjallar að stórum hluta um skiln-
aðinn, það hvernig hjónabandið
leystist upp og ekkert dregið und-
an.
Eftir þetta fjarlægðist Rosanne
Cash sveitatónlistina, en hún hafði
reyndar aldrei verið mjög heittrúuð
í kántrýfræðunum heldur leyft and-
anum að ráða ferðinni. Hún skipti
líka um útgáfu, fór frá Columbia til
Capitol, og virtist vera í þann mund
að ryðja nýjar brautir þegar hún
neyddist til að hætta að syngja
vegna vandræða með raddböndin.
Það liðu því sjö ár frá fyrstu plöt-
unni fyrir Capitol, 10 Song Demo,
sem kom út 1996, þar til næsta
plata, Rules of Travel, kom út 2003.
Ekki má þó skilja það sem svo að
hún hafi setið auðum höndum, hún
tók sér tíma í barnauppeldi, eign-
aðist son 1998 og átti þrjár dætur
fyrir, skrifaði talsvert af smásögum
og eina barnabók.
Ekki minningarplata
Þó dauðinn sé ekki langt undan á
Black Cadillac segist Cash ekki
hafa beinlínis samið plötuna til að
takast á við sorgina þó lagasmíð-
arnar hafi verið henni fró. Hún
leggur og áherslu á að platan sé
ekki minningarplata nema að því
leyti að henni lýkur með 71 sekúndu
þögn, en öll voru þau 71 árs er þau
létust, June Carter Cash, Johnny
Cash og Vivian Liberto Cash Dist-
in.
Ekki vantar þó tilvísanirnar á
skífunni, til að mynda hefst hún
með því að Johnny Cash segir
„Rosanne, c’mon“ og í laginu „Black
Cadillac“ má heyra tilvísun í lagið
„Ring of Fire“ eftir June Carter
Cash sem Johnny Cash gerði vin-
sælt á sjöunda áratugnum. Annað
lag, „Like Fugitives“, er beinlínis
samið um móður hennar, „I Was
Watching You“ er um tilhugalíf for-
eldra hennar og svo má telja. Segir
sitt um tilfinningarnar sem hún
lagði í verkið að hún segist vera
gersamlega þurrausin hugmyndum,
hefur ekki samið neitt frá því laga-
smíðum fyrir plötuna lauk.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Erfiðleikarnir
innblástur
Bandaríska söngkonan Rosanne Cash hefur fetað í fótspor
föður síns en þó farið eigin leiðir. Hún sendir frá sér nýja
plötu á morgun þar sem hún minnist látinna foreldra.
Leikarinn Colin Farrell hefur ný-lega viðurkennt að koma alltaf í
sömu nærbuxunum fyrsta daginn
sem tökur eru að hefjast á nýrri
kvikmynd. Farrell, sem nýverið lék í
kvikmyndinni Miami Vice, vill alls
ekki henda nærbuxunum þótt þær
séu orðnar gamlar.
„Ég fer ekki í þeim út á lífið eða í
veislur. Ég nota þær bara á fyrsta
tökudegi,“ segir Farrell.
„Þetta eru Shamrock nærbuxur,
alls ekki mjög flottar en ég hef verið
í þeim á fyrsta tökudegi sjö kvik-
mynda,“ bætir leikarinn við.
Fólk folk@mbl.is
Kryddpían Victoria Beckhamsegist ekki vera að undirbúa
endurkomu Kryddpíanna, eða Spice
Girls, en orðrómur þess efnis komst
á kreik eftir að Victoria sást með
Geri Halliwell í Los Angeles fyrir
skömmu. Victoria neitar því að þær
hafi verið að ræða um endurkomu
hljómsveitarinnar, en segir að þær
hafi verið að ræða um ungbörn þar
sem Geri er ólétt að sínu fyrsta
barni. „Geri hætti að vinna þegar
hún varð ólétt þannig að við höfum
getað eytt meiri tíma saman,“ segir
Victoria. „Hún kom og gisti heima
hjá mér og ég hef verið að sjá svolít-
ið um hana. Hún lítur frábærlega út
og það fer henni mjög vel að vera
ólétt. Henni líður vel og er mjög
ánægð með lífið,“ bætir Victoria við.
„Við vorum ekki að skipuleggja end-
urkomu. Ég á ekkert mjög margar
vinkonur þannig að það var bara frá-
bært að eyða smátíma með Geri,“
segir Victoria að lokum.