Morgunblaðið - 31.01.2006, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 2006 11
FRÉTTIR
Bæjarhrauni 10 - Hafnarfirði
Sími 520 7500 - www.hraunhamar.is
ASPARHVARF 17 & 19
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 17-18:30
SÖLUMENN VERÐA Á STAÐNUM
5 sérhæðir fullbúnar án gólfefna og einnig tvær fullbúnar sérhæðir með bílskýli.
Magnús Emilsson Löggiltur fasteignasali
ÞEIR vankantar sem voru á starf-
semi fangelsisins á Litla-Hrauni og
bent var á í nýlegri skýrslu Evrópu-
nefndar hafa verið lagfærðir að sögn
forstjóra Fangelsismálastofnunar.
Stofnuninni bárust ábendingarnar
fyrir um hálfu ári í bráðabirgða-
skýrslu og var þá tekið á þeim.
Í skýrslu Evrópunefndar til varn-
ar gegn pyntingum og ómannúðlegri
og niðurlægjandi meðferð og refs-
ingum, um ástandið í íslenskum
fangelsum og fleira, kemur fram að
kvartað hefur verið undan harka-
legri meðferð og munnsöfnuði í garð
fanga við klefaleitir á Litla-Hrauni.
Þá gerði nefndin athugasemdir við
samskipti fangavarða við fanga.
Ennfremur kom fram í skýrslunni að
ofbeldi ríkti mikilli fanganna sjálfra.
Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fang-
elsismálastofnunar, kveðst sáttur við
hvernig ástandið er nú í íslenskum
fangelsum. „Það sem að er einhend-
um við okkur í að laga,“ segir Valtýr
og bætir við að nefndin hafi heimsótt
fangelsin í júlí 2004 og bráðabirgða-
skýrsla hafi borist Fangelsis-
málastofnun fyrir hálfu ári. „Það
hefur verið brugðist við báðum þeim
atriðum sem bent var á í bráða-
birgðaskýrslu nefndarinnar og ég er
sáttur við ástandið núna.“
Kerfið mun mannúðlegra
Guðmundur Ingi Þóroddsson,
talsmaður fanga á Litla-Hrauni og
stjórnarmaður í Afstöðu, félagi
fanga, tekur undir orð Valtýs. Segir
hann það orðum aukið að fangaverð-
ir hafi beitt fanga líkamlegu ofbeldi,
en ofbeldið hafi frekar verið andlegs
eðlis. „Í tíð fyrrverandi forstjóra
tíðkaðist meira harðræði gagnvart
föngum í fangelsunum,“ segir Guð-
mundur. „Það eimir kannski örlítið
eftir af því hjá elstu fangavörðunum
sem ekki vilja sjá neinar breytingar,
en þetta heyrir til algerra und-
antekninga í dag. Þetta hefur þróast
í mun mannúðlegri áttir eftir að Val-
týr tók við. Hann hefur gert miklar
breytingar og boðað enn frekari
breytingar sem munu breyta miklu
bæði fyrir okkur og fangaverðina,
sem eru að koma inn í mun mann-
úðlegra kerfi gagnvart þeim sjálf-
um.“
Guðmundur segir ofbeldið milli
fanga einnig vera andlegs eðlis, ein-
elti sé á vissa hópa, en það fari einnig
minnkandi. „Endurkomutíðni fanga
hefur verið há hingað til, en við erum
að vonast til þess að með mann-
úðlegra kerfi muni hún minnka með
betri endurhæfingu,“ segir Guð-
mundur. „Fangelsismálastofnun er
að koma með ný úrræði fyrir fanga.
Þar ber helst að nefna meðferð-
arúrræði og úrræði til að koma
mönnum heilum út í þjóðfélagið
aftur.“
Málefni Litla-Hrauns
hafa breyst til hins betra
Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson
Forstjóri Fangelsismálastofnunar kveðst sáttur við hvernig ástandið er nú í íslenskum fangelsum.
EIRÍKUR Jónsson, formaður
Kennarasambands Íslands, hefur
tekið við formennsku í NLS sem
eru heildarsamtök kennarafélaga
á Norðurlöndum og mikilvægur
samráðsvettvangur norrrænu
kennarasamtakanna.
Í frétt frá Kennarasambandinu
segir að gæði í kennslu og þróun
kennaramenntunar hafi verið of-
arlega á baugi í starfi NLS á síð-
asta ári og verði það áfram á
þessu ári. Fundir stjórnar NLS
og svokallaðir sektorsfundir
verða allir haldnir hér á landi á
þessu ári.
Skrifstofa NLS er í Kaup-
mannahöfn.
Í forystu norrænna kennara