Morgunblaðið - 31.01.2006, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 2006 37
MENNING
Auglýsendur!
Þið eigið stefnumót við áhugavert fólk - lesendur Tímarits
Morgunblaðsins.
Tímarit Morgunblaðsins er mest lesna tímaritið í áskrift á
Íslandi. Því er dreift í 60 þúsund eintökum með
sunnudagsblaði Morgunblaðsins til lesenda um land allt.
Allar nánari upplýsingar veita Sigrún Sigurðardóttir í síma
569 1378 eða sigruns@mbl.is, og Bylgja Björk Sigþórsdóttir
í síma 569 1142 eða bylgjabjork@mbl.is
ÚTHLUTUNARNEFNDIR lista-
mannalauna, sem starfa samkvæmt
lögum nr. 35/1991 með áorðnum
breytingum, hafa lokið störfum.
Alls bárust 503 umsóknir um
starfslaun listamanna 2006, en árið
2005 bárust 622 umsóknir.
Skipting umsókna milli sjóða
2006 var eftirfarandi: Launasjóður
rithöfunda 140 umsóknir. Launa-
sjóður myndlistarmanna 190 um-
sóknir. Tónskáldasjóður 27 um-
sóknir. Listasjóður 146 umsóknir,
þar af 46 umsóknir frá leikhópum.
Úthlutunarnefndir voru að þessu
sinni skipaðar sem hér segir: Út-
hlutunarnefnd Launasjóðs rithöf-
unda: Kristín Viðarsdóttir, formað-
ur, Benedikt Hjartarson og
Svanhildur Óskarsdóttir.
Úthlutunarnefnd Launasjóðs
myndlistarmanna: Ólöf Kristín Sig-
urðardóttir, formaður, Eva Heisler
og Haraldur Jónsson. Úthlut-
unarnefnd Tónskáldasjóðs: Árni
Harðarson, formaður, Guðmundur
Óli Gunnarsson og Þorkell Sig-
urbjörnsson.
Stjórn listamannalauna: Í des-
ember 2003 skipaði mennta-
málaráðherra í stjórn listamanna-
launa. Skipunin gildir frá 1. janúar
2004 til 14. nóvember 2006. Stjórn-
ina skipa: Guðrún Nordal, formað-
ur, tilnefnd af Bandalagi íslenskra
listamanna, Baldur Símonarson,
varaformaður, skipaður án tilnefn-
ingar og Mist Þorkelsdóttir, til-
nefnd af Listaháskóla Íslands.
Stjórn listamannalauna hefur yf-
irumsjón með sjóðunum og út-
hlutar fé úr Listasjóði.
Eftirtöldum listamönnum voru
veitt starfslaun sem hér segir:
Úr Launasjóði rithöfunda
3 ár (2) Ólafur Gunnarsson,
Steinunn Sigurðardóttir.
2 ár (2) Auður Jónsdóttir, Stein-
ar Bragi Guðmundsson.
1 ár (12) Áslaug Jónsdóttir,
Bragi Ólafsson, Einar Már Guð-
mundsson, Guðmundur Andri
Thorsson, Gyrðir Elíasson, Jón
Atli Jónasson, Kristín Steinsdóttir,
Óskar Árni Óskarsson, Ragnheiður
Gestsdóttir, Sigurður Pálsson, Sig-
urbjörg Þrastardóttir, Þórarinn
Eldjárn.
6 mánuðir (30)
Aðalsteinn Ás-
berg Sigurðsson,
Aðalsteinn Ing-
ólfsson, Andri
Snær Magnason,
Árni Ibsen,
Bjarni Jónsson,
Einar Kárason,
Eiríkur Guð-
mundsson, Gerð-
ur Kristný Guð-
jónsdóttir, Guðjón Friðriksson,
Guðrún Helgadóttir, Halldór Guð-
mundsson, Hallgrímur Helgason,
Hermann Stefánsson, Hjörtur
Pálsson, Hrafnhildur Hagalín Guð-
mundsdóttir, Ísak Harðarson,
Kristín Helga Gunnarsdóttir,
Kristín Marja Baldursdóttir, Linda
Vilhjálmsdóttir, Ragnheiður Sig-
urðardóttir, Rúnar Helgi Vign-
isson, Sigfús Bjartmarsson, Sigrún
Eldjárn, Sigurjón Magnússon,
Stefán Máni Sigþórsson, Sindri
Freysson, Viktor Arnar Ingólfsson,
Vilborg Davíðsdóttir, Þórunn
Valdimarsdóttir, Ævar Örn Jós-
epsson.
3 mánuðir (8) A. Hildur Há-
konardóttir, Atli Magnússon,
Elísabet K. Jökulsdóttir, Erlingur
E. Halldórsson, Kristín Eiríks-
dóttir, Sigurlaug Didda Jónsdóttir,
Valur Brynjar Antonsson, Vésteinn
Lúðvíksson.
Úr Launasjóði
myndlistarmanna
2 ár (4) Hlynur Hallsson, Krist-
inn E. Hrafnsson, Margrét H.
Blöndal, Sara Björnsdóttir
1 ár (9) Ásmundur Ásmundsson,
Daníel Þ. Magnússon, Egill Sæ-
björnsson, Erling T. V. Klingen-
berg, Finnur Arnar Arnarsson,
Guðrún Gunnarsdóttir, Hannes
Lárusson, Hekla Dögg Jónsdóttir,
Rúrí (Þuríður Fannberg)
6 mánuðir (19) Ásdís Sif Gunn-
arsdóttir, Birgir Snæbjörn Birg-
isson, Birgir Örn Thoroddsen,
Björk Guðnadóttir, Guðjón Ket-
ilsson, Hrafnhildur Sigurðardóttir,
Hulda Stefánsdóttir, Ívar Val-
garðsson, Jón Laxdal Halldórsson,
Jón B. Kjartansson / Jón B.K.
Ransu, Karlotta Blöndal, Magnús
Sigurðarson, Ólöf Ragnheiður
Björnsdóttir, Ólöf Nordal, Pétur
Thomsen, Sigurður Guðjónsson,
Sirra Sigrún Sigurðardóttir, Stein-
grímur Eyfjörð Kristmundsson,
Unnar Örn Jónasson Auðarson.
Ferðastyrkur (2) Anna Jóels-
dóttir, Sigríður Ágústsdóttir.
Úr Tónskáldasjóði
2 ár (1) Snorri Sigfús Birgisson
1 ár (3) Atli Ingólfsson, Haukur
Tómasson, Þórður Magnússon
6 mánuðir (6) Elín Gunnlaugs-
dóttir, Hildigunnur Rúnarsdóttir,
Hilmar Jensson, Karólína Eiríks-
dóttir, Þuríður Jónsdóttir, Örlygur
Benediktsson.
4 mánuðir (1) Úlfar Ingi Har-
aldsson.
Úr Listasjóði
2 ár (2) Ólafur Kjartan Sigurð-
arson, Valgerður Tinna Gunn-
arsdóttir.
1 ár (2) Helena Jónsdóttir, Rut
Ingólfsdóttir.
6 mánuðir (17) Alina Dubik, Ár-
mann Helgason, Ástrós Gunn-
arsdóttir, Einar Örn Benediktsson,
Guðrún Birgisdóttir, Guðrún Jó-
hanna Ólafsdóttir, Hörður Torfa-
son, Jóhann Friðgeir Valdimars-
son, Kristinn H. Árnason, Kristín
Ragna Gunnarsdóttir, Laufey Sig-
urðardóttir, Rúnar Guðbrandsson,
Sesselja Guðmundsdóttir, Steef
van Oosterhout, Steinunn Birna
Ragnarsdóttir, Tinna Þorsteins-
dóttir, Una Sveinbjarnardóttir.
3 mánuðir (6) Barði Jóhannsson,
Jón Baldur Hlíðberg, María Sjöfn
Dupuis Davíðsdóttir, Michael Jón
Clark, Páll Eyjólfsson, Sunna
Gunnlaugsdóttir
Ferðastyrkir (8) Gísli Örn Garð-
arsson, Hanna María Karlsdóttir,
Karen María Jónsdóttir, Kristín
Björk Kristjánsdóttir, Margrét
Helga Jóhannsdóttir, Nína Dögg
Filippusdóttir, Richard Simm, Sig-
ríður Aðalsteinsdóttir.
Leikhópar
Samkvæmt ákvæðum núgildandi
laga um listamannalaun var út-
hlutað starfslaunum til leikhópa,
enda verði þeim eingöngu varið til
greiðslu starfslauna til einstakra
leikhúslistamanna.
Stjórn listamannalauna fól leik-
listarráði að fjalla um veitingu
þessara starfslauna, eins og heimilt
er skv. núgildandi lögum um lista-
mannalaun.
Leiklistarráð skipa Björn G.
Björnsson, formaður, Hilde Helga-
son og Magnús Þór Þorbergsson.
Eftirtaldir leikhópar fengu
starfslaun (7 hópar, 100 mánuðir)
Common Nonsense, 18 mánuðir,
Dansleikhús með ekka, 9 mánuðir,
Einleikhúsið, 9 mánuðir, Mögu-
leikhúsið, 28 mánuðir, Panic Pro-
ductions, 16 mánuðir, Skopp, 8
mánuðir, Vatnadansmeyjafélagið
Hrafnhildur, 12 mánuðir.
60 ára og eldri
Listasjóður veitti einnig sérstök
framlög til eftirtalinna listamanna
sem fengu listamannalaun áður
fyrr og voru 60 ára eða eldri við
gildistöku laganna um lista-
mannalaun, sbr. 9. gr. laga nr. 35/
1991 og ekki fengu starfslaun.
Styrkurinn jafngildir starfs-
launum í einn mánuð. Agnar Þórð-
arson, Benedikt Gunnarsson, Bragi
Ásgeirsson, Eiríkur Smith, Elías
B. Halldórsson, Gísli J. Ástþórs-
son, Gísli Sigurðsson, Guðmundur
Jónsson, Gunnar Dal, Hjörleifur
Sigurðsson, Jón Ásgeirsson, Kjart-
an Guðjónsson, Ólöf Pálsdóttir,
Sigurður Hallmarsson, Sigurður A.
Magnússon.
Skilafrestur umsókna fyrir
starfslaun listamanna 2007 verður
2. október nk.
Starfslaun | Úthlutunarnefndir listamannalauna hafa lokið úthlutun fyrir árið 2006, í sex flokkum
Að þessu sinni bárust
503 umsóknir um laun
Hlynur
Hallsson
Steinunn
Sigurðardóttir
Kristinn E.
Hrafnsson
Sara
Björnsdóttir
Margrét H.
Blöndal
Snorri Sigfús
Birgisson
Ólafur Kjartan
Sigurðarson
Ólafur
Gunnarsson
Tinna
Gunnarsdóttir
LISTAMANNATVÍEYKIÐ Gil-
bert og George sýnir um þessar
mundir í White Cube-galleríinu í
London. Sýningin ber heitið
„Sonofagod Pictures: Was Jesus
Heterosexual?“ eða „Guðsson-
armyndir: Var Jesús gagnkyn-
hneigður?“
Sýningin hefur vakið nokkra
athygli og umtal í Bretlandi, og
eru ekki allir sammála um hvort
túlka eigi verkin og innihald
þeirra sem guðlast. Það væri þá
ekki í fyrsta sinn, því á þeim
rúmu þrjátíu árum sem Gilbert
og George hafa unnið að mynd-
list hafa þeir oftsinnis uppskorið
harða gagnrýni á verk sín, sem
oftar en ekki eru leikur að orð-
um og táknum á tvíræðan hátt.
Gilbert & George. Son of a God. 2005 © listamennirnir með leyfi Jay
Jopling/White Cube (London).
Guðlast hjá
Gilbert og George?
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn