Morgunblaðið - 31.01.2006, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 2006 35
DAGBÓK
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Nr. 1 í Ameríku
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa - Gulli betri
Spirulina
FRÁ
Orka og vellíðan
Félagsstarf
Aflagrandi | Spænska kl. 10–11.30,
postulínsmálun kl. 13, hjá Sheenu,
lestrarhópur kl. 13.30, vinnustofa kl.
9–16.30.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16. Handav. kl.
9–16.30. Smíði/útskurður kl. 9–16.30.
Leikfimi kl. 9. Ath. Kaupa þarf miða
fyrir þorrablótið 3. feb. í dag 31. jan.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, leikfimi,
sund, vefnaður, línudans, boccia, fóta-
aðgerð.
Dalbraut 18–20 | Eitthvað um að
vera alla daga. Bendum t.d. á upp-
lestur/framsögn og félagsvist á
mánudögum, leikfimi á mánudögum
og miðvikudögum, söng á fimmtudög-
um, postulínsnámskeið á föstudögum.
Listasmiðja Dalbrautar 21–27 er opin
kl. 8–16 daglega. Skráning á myndlist-
arnámskeið sem hefst 31. jan. S.
588 9533.
Dalbraut 18–20 | Þorrablótið hefst 3.
feb. kl. 17. Myndlistarnámskeið hefst
7. feb. kl. 9.
FEBÁ, Álftanesi | Gönguhópur kl. 10–
11. Mæting fyrir framan Bessann og
kaffisopi þar eftir göngu. Allir eldri
borgarar velkomnir, bara mæta. Nán-
ari uppl. gefur Guðrún í s. 565 1831.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif-
stofan í Gullsmára 9 er opin í dag kl.
10–11.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák
í dag kl. 13. Félagsvist kl. 20. Miðviku-
dagur: Göngu-Hrólfar ganga frá
Stangarhyl 4, kl. 10. Síðdegisdans kl.
14.30, umsjón hafa Matthildur, Jón
Freyr og Árni Norðfjörð, Pétur Jóns-
son sér um tónlistarval.
Félag kennara á eftirlaunum | Tölvu-
starf sem öllum hentar í Ármúlaskóla
kl. 16.20–18.
Félagsheimilið Gjábakki | Kl. 9.05 og
kl. 9.50 leikfimi, kl. 9.30 gler- og
postulínsmálun, kl. 10 handavinna, kl.
10.50 rólegar æfingar, kl. 13.30 alkort,
kl. 14 ganga.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Postulínsmálun kl. 9. Jóga kl. 10, laus
pláss. Leikfimi kl. 12.15, laus pláss.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 9.45 og karlaleikfimi
kl. 13.15 í Mýri. Trésmíði/tréskurður kl.
13.30 í Kirkjuhvoli. Línudans í Kirkju-
hvoli kl. 13. Opið hús í safnaðarheim-
ilinu á vegum kirkjunnar kl. 13 og kór-
æfing Garðakórsins kl. 17. Lokað í
Garðabergi e.h. á þriðjudögum.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar. Kl. 10.30 létt ganga
um nágrennið. Kl. 13 postulínsnám-
skeið, umsj. Sigurbjörg Sigurjónsd.
Mánud. 6. feb. er þorrahlaðborð í há-
deginu, allir velkomnir, skráning á
staðnum og í s. 575 7720. Strætó S4
og 12 stansa við Gerðuberg.
Hraunbær 105 | Kl. 9 Almenn handa-
vinna, glerskurður, kaffi, spjall, dag-
blöðin, hárgreiðsla. Kl. 10 boccia. Kl. 11
leikfimi. Kl. 12 hádegismatur. Kl. 12.15
ferð í Bónus. Kl. 13 myndlist. Kl. 15
kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 13.
Línudans kl. 11. Saumar kl. 13. Pílukast
kl. 13.30. Gaflarakórinn kl. 16.15.
Hvassaleiti 56–58 | Bútasaumur kl.
9–13 hjá Sigrúnu. Boccia kl. 9.30–
10.30. Helgistund kl. 13.30. Myndlist
hjá Ágústu kl. 13.30–16.30. Böðun fyr-
ir hádegi. Fótaaðgerðir 588 2320.
Hársnyrting 517 3005.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öll-
um opið. Fjölbreytt listiðja og hann-
yrðir í Listasmiðjunni alla daga kl. 9–
16. Kennarar: Laufey Jónsdóttir og
Selma Jónsdóttir. Leikfimi á þriðjud.
og fimmtud. kl. 10–11. Kennari: Guðný
Helgadóttir. Kíkið í kaffi og fáið dag-
skrána. Síminn er 568 3132
Korpúlfar, Grafarvogi | Bingó á Korp-
úlfsstöðum á morgun, miðvikudag, kl.
13.30.
Laugardalshópurinn Blik, Laug-
ardalshöll | Leikfimi fyrir eldri borgara
í Laugardalshöll kl. 11.
Norðurbrún 1, | Kl. 9 smíði, kl. 9–12
myndlist, kl. 9–16.30 opin vinnustofa,
kl. 10 boccia, kl. 13–16.30 postulíns-
málning, kl. 14 leikfimi.
SÁÁ, félagsstarf | Félagsstarf SÁÁ
stendur fyrir danskennslu í samstarfi
við Dansskóla Auðar Haralds fimmtu-
daginn 2. febrúar í íþróttahúsi Set-
bergsskóla í Hafnarfirði.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir. Kl. 9.15–15.30 handa-
vinna. Kl. 10.15–11.45 enska. Kl. 11.45–
12.45 hádegisverður. Kl. 13–16 postu-
línsmálun. Kl. 13–16 bútasaumur. Kl.
13–16 frjáls spil. Kl. 14.30–15.45 kaffi-
veitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9, perlusaumur kl. 9, morgunstund kl.
9.30, leikfimi kl. 10, handmennt al-
menn kl. 13, félagsvist kl. 14. Allir vel-
komnir.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Morgunsöngur kl.
9. Fermingarfræðsla kl. 15. Hópur 1.
Árbæjarkirkja | Foreldramorgnar kl.
10–12 í safnaðarheimili kirkjunnar.
Fræðsla, spjall og veitingar.
Áskirkja | Opið hús milli kl. 10–14 í dag,
kaffi og spjall. Hádegisbæn kl. 12. Boð-
ið upp á léttan hádegisverð.
Bústaðakirkja | TTT-fundirnir eru á
þriðjudögum kl. 17 í safnaðarheimilinu.
Sjáumst hress. Sjá: www.kirkja.is
Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11. Kl.
12 léttur málsverður, helgistund í
umsjá sr. Gunnars Sigurjónssonar,
kaffi. 10–12 ára starf KFUM&K kl. 17–
18.15.
Fella- og Hólakirkja | Kyrrðarstund kl.
12 í Fella- og Hólakirkju. Orgelleikur,
íhugun og bæn. Eftir stundina er hægt
að kaupa súpu og brauð á vægu verði.
Allir velkomnir. Þriðjudaginn 31. janúar
er opið hús fullorðinna í Fella- og Hóla-
kirkju. Spil og spjall. Kaffiveitingar í
boði kirkjunnar.
Garðasókn | Opið hús í Kirkjuhvoli, kl.
13 til 16. Við púttum, spilum lomber,
vist og bridge. Röbbum saman og
njótum samfélags við hvert annað.
Kaffi og meðlæti kl. 14.30. Helgistund í
kirkjunni kl. 16. Akstur fyrir þá sem
vilja, upplýsingar í síma 895 0169.
Grafarvogskirkja | Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 13.30–16. Helgistund,
handavinna, spil og spjall. Kaffiveit-
ingar og alltaf eitthvað gott með
kaffinu. Æskulýðsfélag í Rimaskóla kl.
20–22, fyrir unglinga í 8. bekk. Æsku-
lýðsfélag í Grafarvogskirkju kl. 20–22,
fyrir unglinga í 9. og 10. bekk.
Hafnarfjarðarkirkja | TTT-starf fyrir
krakka á aldrinum 10–12 ára alla
þriðjud. í Hafnarfjarðarkirkju kl. 17–18.
Ýmislegt skemmtilegt er gert saman.
Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðsþjón-
usta þriðjudaga kl. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum. Starf með öldruðum þriðju-
daga og föstudaga kl. 11–14. Leikfimi,
súpa, kaffi og spjall.
Háteigskirkja – starf eldri borgara |
Á morgun kl. 11 fyrirbænastund í kirkj-
unni. Súpa kl. 12. Brids kl. 13. Kaffi kl.
15. Allir velkomnir.
Hjallakirkja | Prédikunarklúbbur
presta er kl. 9.15–11, í umsjá sr. Sig-
urjóns Árna Eyjólfssonar héraðs-
prests. Bæna– og kyrrðarstund kl. 18.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Alfa 1
kl. 19. Örfá sæti laus, láttu sjá þig, við
tökum vel á móti þér eða hringdu og
skráðu þig í síma 535 4700.
KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUK,
Holtavegi 28 þriðjudaginn 31. jan. kl.
20. Jólabókaflóðið skoðað. Fundurinn
er í umsjá vinkvennahóps. Kaffi. Allar
konur eru velkomnar.
KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUM,
Holtavegi 28, fimmtudaginn 2. feb. kl.
20. „Landsvirkjun – Góðir straumar í
40 ár“. Friðrik Sophusson forstjóri sér
um efnið. Sr. Kjartan Jónsson hefur
hugleiðingu. Kaffi. Allir karlmenn eru
velkomnir.
Kristniboðssambandið | Samkoma í
Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut
58–60, miðvikudaginn 1. feb. kl. 20.
„Ef ég fæ aðeins …“ Halldóra Lára Ás-
geirsdóttir talar. Jón Pálsson, frkvstj.
Biblíufélagsins segir frá ferð til Eþíóp-
íu. Bænastund. Kaffi. Allir velkomnir.
Kvenfélag Árbæjarsóknar | Mánu-
daginn 6. febrúar verður aðalfundur
kvenfélags Árbæjarsóknar haldinn í
safnaðarheimili kirkjunnar. Fundurinn
hefst kl. 20. Venjulega aðalfund-
arastörf. Stjórnin.
Laugarneskirkja | Mannræktarkvöld:
Kl. 20 kvöldsöngur. Þorvaldur Hall-
dórsson leiðir sönginn við undirleik
Gunnars Gunnarssonar. Sókn-
arprestur flytur Guðsorð og bæn. Kl.
20.30 er síðasti kynningarfundur á 12
spora starfi safnaðarins áður en hóp-
ar verða formlega stofnaðir. Allt
áhugasamt fólk velkomið.
Selfosskirkja | Morguntíð sungin kl.
10. Beðið fyrir sjúkum og bágstöddum.
Einnig tekið við bænarefnum. Kaffi-
sopi að lokinni athöfninni. Kirkjuskóli í
Félagsmiðstöðinni við Tryggvagötu kl.
14.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
MENNING
SÝNING Kristínar Þorkelsdóttur í
Gerðarsafni er tvískipt, annars vegar
er sýning á völdum hönnunarverkum
Kristínar undanfarna áratugi og hins
vegar sýning á nýjum og nýlegum
vatnslitamyndum hennar.
Í vestursalnum má sjá vel uppsetta
sýningu í sýningarstjórn Snæfríðar
Þorsteinsdóttur og Hildigunnar
Gunnarsdóttur á völdum hönn-
unarverkum frá ferli Kristínar. Snæ-
fríður og Hildigunnur sýna okkur
ekki bara endanlegar útfærslur
verka heldur leitast við að sýna fer-
ilinn við gerð þeirra. Útfærsla þeirra
og framsetning á hugmyndalegu og
tæknilegt ferli hönnunar pen-
ingaseðlanna er áhugaverð og gríp-
andi. Yfirstækkaður þúsundkall og
stuttmynd gerð af Markell-
kvikmyndafyrirtæki um gerð seðl-
anna eru þar í aðalhlutverki. Merki
eða lógo fyrirtækja, vörumerki, bók-
arskreytingar og kápur eru meðal
hönnunarverka Kristíanar. Sumt af
eldri umbúðahönnun Kristínar lifir
einnig enn í dag svo sem smjör-
umbúðirnar sem hafa staðist tímans
tönn með ágætum og á sýningunni
verður manni ljóst hve mikið af sjón-
rænum veruleika tengdum íslensku
neyslusamfélagi undanfarinna ára-
tuga kemur úr hennar smiðju.
Vatnslitamyndir Kristínar eru
einnig orðnar Íslendingum vel kunn-
ar. Náttúra Íslands er þar aðalyrk-
isefnið og að hætti gömlu íslensku
landslagsmálaranna fer Kristín út í
náttúruna og málar myndir sínar á
staðnum. Í dag er þessi vinnuaðferð
ekki sjálfsögð né viðbundin og er því
hægt að tiltaka hana sem merking-
arbæran hugmyndafræðilegan þátt í
verkunum. Ljóðræn útfærsla af til-
teknum stöðum og kennileitum
landslagsins er einn þáttur í verk-
unum þar sem hrynjandi og litaspil
vinna á móti þrívíddarskynjun þekkj-
anlegra forma í landslagssýninni. Í
öðrum verkum leysast formin meira
upp og fá óhlutbundnara yfirbragð
um leið og landfræðileg staðsetning
mótífsins skiptir ekki alltaf máli. Í
nýjustu myndum Kristínar hefur hún
tekist á við túlkun á vetrarlandslagi
þar sem litbrigði og skuggaspil fá
nýjar víddir sem tilfinningalegri eða
huglægari upplifanir en áður. Frá-
gangur myndanna er óaðfinnanlegur
og ýtir undir fágaða upphafningu
þeirra sem hágæða listmuna, sem
þeir vissulega eru. Á sýningunni má
einnig sjá nokkrar portrettmyndir í
vatnslit, þurrpastel eða blýantsteikn-
ingar. Þótt Kristín nálgist þau við-
fangsefni á sama hátt og landslagið,
þ.e. leyfir sér tilfinningalega túlkun á
viðfangsefninu í stað þess að leggja
áherslu á yfirborðsraunsæi þá eru
þær myndir eins og úr allt annarri
deild. Þar má greina áræði í bland við
hikandi tilraunastarfsemi, meiri átök
við myndefnið og minni færni í út-
færslu. Fyrir vikið verða þau áhuga-
verðari en ella, þar sem skortir fágað
yfirbragð færninnar kemur í ljós hið
mannlega í leitinni að mismunandi
túlkun fyrirbæranna. Sýningin í heild
sinni er mjög vel heppnuð yfirlitssýn-
ing yfir feril eins þekktasta auglýs-
ingateiknara landsins og myndlist-
armanns þar sem helstu þættir
hennar á báðum sviðum njóta sín vel.
Sjónmenning – ímynd Íslands
frá mismunandi sjónarhorni
Þóra Þórisdóttir
Esja – Kistufellshlíðar, apríl 2005.
MYNDLIST
Listasafn Kópavogs
Gerðarsafn
Stendur til 12. feb.
Kristín Þorkelsdóttir
NÝHIL heldur áfram krossgöngu
sinni í íslenskt bókmenntalíf og hér
er til umfjöllunar bók í ljóða-
bókaflokki sem ber hið snotra nafn
Norrænar bókmenntir.
Blandarabrandarar er fjórða
ljóðabók Eiríks Arnar Norðfjörð en
auk þess hefur hann skrifað eina
skáldsögu og lagt stund á þýðingar.
Þessi bók er réttnefnd bland-
arabók því í henni ægir og grúir af
endurunnum setningum og orðum
sett í samhengi ljóðsins.
Höfundur ritar eftirmála sem í
sjálfu sér er líklega það bitastæðasta
sem ég las í bókinni. Hann er ein-
hvers konar leiðarvísir að bókinni
eða jafnvel fyrir misvitra gagnrýn-
endur. Eiríkur er að eigin sögn ekki
að finna neitt upp, aðeins að klippa
og líma saman setningar sem eru til
og hafa verið sagðar margoft áður.
„Collage“-ljóðin eða blandan sjálf
grípa mig þó alls ekki. Einhvern
veginn tekst höfundi að klippa sam-
an á ankannalegan hátt allar „réttu“
skoðanirnar. Hann er hæfilega
svartsýnn, hæfilega kaldhæðinn,
hæfilega byltingarkenndur og það er
hæfilega mikið af bulli innan um
hæfilega mikið af þjóðfélags-
gagnrýni og þetta gerir að verkum
að maður man varla hvort maður
hefur lesið ljóðin einu sinni eða oftar.
„Til þess er það varðar“ [sic] hvað
varðar not á innfluttu erfðaefni /
varðandi álver í Helguvík / hvað
varðar dioxíninnihald í frétt/ varð-
andi kynlíf og barneignir / hvað
varðar framleiðslu á frystum bolfisk-
flökum …“
Eftir lestur þessa texta, sem mér
þótti næstum aldrei ætla að enda,
var ég komin á þá skoðun að orðin
„varðandi“ eða „hvað varðar“ eru af-
skaplega leiðinleg og allt of mikið
notuð í tungumálinu.
Einna skást þykja mér ljóðin
Naglasúpa I–IV sem ég hugsa að Ei-
ríkur Örn myndi lesa skemmtilega
upp. Einnig eru dagblaðafyrirsagna-
ljóðin nokkuð hnyttin, sérstaklega í
ljósi undangenginnar umræðu um
ritfjölmiðla. Hér er dæmi um eitt
slíkt:
„Haukur Már Helgason: Bregður
hnífi á háls sjónvarpsmanns –
Fréttablaðið 22. október.“
Ef þessi hæfilega blanda af misvel
mótuðum hugmyndum á að vera
eitthvert stórkostlegt stílbragð þá
missir það marks vegna þess að
blandan er leiðinleg aflestrar. Þessi
tilraun til tilraunamennsku mistekst
vegna þess að í blandarann vantar
tilfinnanlega eitthvað bitastætt.
Hæfilega blandað
BÆKUR
Ljóð
eftir Eirík Örn Norðfjörð. 62 bls.
Nýhil 2005
Blandarabrandarar
(die mixer witze)
Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111