Morgunblaðið - 09.02.2006, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 09.02.2006, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006 11 FRÉTTIR Kringlunni – sími 581 2300 ÚTSÖLULOK 50-70% afsláttur Stefán Jóhann Stefánsson varaborgarfulltrúi og hagfræðingur www.stefanjohann.is 3 Veljum Stefán Jóhann í þriðja sætið Prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík 11. og 12. febrúar. Velferð Jafnrétti Lífsgæði Frábær lína NÝJU VÖRURNAR KOMNAR Á MORGUN, föstudag, verður haldinn opinn fyrirlestur um heil- brigðisstefnu og sameiningu sjúkrahúsa í Öskju, náttúru- fræðahúsi Háskóla Íslands. Á fyrirlestrinum mun dr. Sigur- björg Sigurgeirsdóttir stjórn- sýslufræðingur greina frá helstu niðurstöðum doktorsrannsóknar sinnar, sem fjallar um aðdrag- anda að ákvörðun um sameiningu sjúkrahúsa í Reykjavík, þ.e. Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítala árið 2000 og sjúkra- húsanna St. Thomas’s og Guy’s í Lundúnum árið 1995. Doktors- ritgerð Sigurbjargar, sem ber yf- irskriftina „Health Policy and Hospital Mergers: how the imp- ossible became possible“, fjallar um pólitík heilbrigðis- og spít- alamála í Reykjavík og Lundún- um, en hún varði ritgerð sína við London School of Economics. Á fyrirlestrinum verður leitast við að svara spurningum á borð við: Hvernig móta ríkis- stjórnir heil- brigðiskerfið? Hvers vegna tókst sameining sjúkrahúsanna í Reykjavík árið 2000, þrátt fyrir áralanga and- stöðu, m.a. lækna, við þau áform? Hvernig var sú ákvörðun tekin? Hvert er hið sérstaka stjórnmálalega og stjórnsýslulega samhengi? Fyrirlesturinn hefst í Öskju kl. 12.15 og verður endurtekinn í há- deginu næsta mánudag í húsnæði Háskólans á Akureyri í Sólborg. Ræðir um heilbrigð- isstefnu og samein- ingu sjúkrahúsa Dr. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir STOFNHÁTÍÐ Listaskóla Mosfells- bæjar fór fram í bæjarleikhúsinu við Þverholt í fyrrakvöld. Skólinn þykir einstakur fyrir það að með stofnun hans mun eflast samstarf aðila sem komið hafa að listnámi í bæjarfélag- inu með einum eða öðrum hætti. Þannig næst t.a.m. að samþætta starfsemi tónlistarskóla, skóla- hljómsveitar, myndlistarskóla og leikfélags auk þess sem áhersla er lögð á að treysta tengslin milli mis- munandi listgreina. Hlutverk skólans er að vera menntastofnun sem stuðlar að virkni nemenda og bæjarbúa í listum og menningu. Hann á að stuðla að öflugu lista- og menningarlífi í bænum ásamt því að örva sköpunargleði bæj- arbúa. Þar verður samþætt starfsemi þeirra aðila sem veita kennslu í list- greinum í bæjarfélaginu, undir heit- inu fjöllistadeild, en einnig verður þar rekin tónlistardeild sem m.a. leggur áherslu á að flétta saman starfsemi tónlistarskóla, skóla- hljómsveita, grunn- og leikskóla. Skólinn mun hafa í bígerð að ráða til sín listamenn til kennslu og nám- skeiðahalds og er miðað að því að færa hljóðfærakennslu yngri nem- enda inn í grunnskólann. Einnig verður boðið upp á hljóðfærakennslu í leikskólum og verður staðið fyrir námskeiðum fyrir starfsfólk leik- og grunnskóla. Sérstaða listaskólans er að skólinn er annars vegar rekinn af sveitarfé- laginu en einnig er leitað samstarfs við listamenn og sjálfstætt starfandi félög í bæjarlífinu og þessir aðilar tengdir saman. Þannig verður reynt að efla listalífið í bænum og munu stjórnendur skólans vera vakandi fyrir nýjungum á sviði lista og þróun listakennslu, hvort sem varðar sköp- un eða flutning. Listaskóli Mosfellsbæjar hefur verið settur á fót Ýtt undir starfsemi íbúa í listum og menningu Morgunblaðið/ÞÖK Atli Guðlaugsson, skólastjóri Listaskóla Mosfellsbæjar, Ásdís Sigurþórs- dóttir, skólastjóri Myndlistarskóla Mosfellsbæjar, og Ragnheiður Rík- harðsdóttir bæjarstjóri við undirritun samninga á stofnhátíð listaskólans. HINN 2. mars nk. í Kaplakrika í Hafnarfirði hefst undankeppni Skólahreysti, nýrrar íþróttakeppni á milli grunnskóla á höfuðborgar- svæðinu. Alls senda 47 grunnskólar lið í undankeppnina og eru liðin skipuð tveimur drengjum og tveim- ur stúlkum í 9. eða 10. bekk. Undankeppninni er skipt í fjóra riðla og fara þeir fram á fimmtu- dögum í mars. Tvö lið komast áfram úr hverjum riðli og keppa til úrslita í Laugardalshöll 2. apríl en úrslitakeppninni verður jafnframt sjónvarpað í beinni útsendingu á sjónvarpstöðinni Sýn – í opinni dag- skrá. Hreystiþrautirnar eru byggðar upp á svipaðan hátt og ýmis leik- tæki á leikvöllum sveitarfélaga. Er það talin góð aðferð til að tengja á milli leikja og íþrótta, og þar með til að gera hreyfingu að eftirsóknar- verðum og skemmtilegum valkost. Fyrir utan hreyfinguna fá skóla- liðin sem lenda í efstu sætum pen- ingaverðlaun sem renna munu til viðkomandi nemendafélags. Sigur- launin fyrir fyrsta sætið eru 200 þúsund krónur, 100 þúsund krónur eru fyrir annað sætið og 50 þúsund krónur fyrir það þriðja. Keppendur í úrslitum og þeir fjórir nemendur sem skipa sigurliðið hljóta jafn- framt vegleg verðlaun. Áhugi nemenda mikill Undanfari keppninnar er sá að síðasta vor fór fram keppni í hreysti í samvinnu Ungmennasambands Kjalarnesþings og Ice-Fitness. Sex grunnskólar sendu lið til keppninn- ar sem fram fór í Mosfellsbæ. Gekk keppnin vonum framar og var áhugi á hreysti meðal nemenda mikill. Varð sá áhugi kveikjan að samstarfi Ice-Fitness og skólaíþróttanefndar ÍSÍ sem standa að keppninni í ár. Íþrótta- og Ólympíusamband Ís- lands setti saman skólaíþrótta- nefndina sem hefur það að mark- miði að stuðla að aukinni hreyfingu meðal barna og unglinga. Nefndina skipa fulltrúar frá menntamála- ráðuneytinu, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Íþróttakennarafélagi Íslands og ÍSÍ. Grunnskólar af höfuðborgarsvæðinu keppa í hreysti Stuðlað að aukinni hreyfingu nemenda Keppendur í Skólahreysti þurfa að fara yfir ýmsar hindranir, meðal ann- ars klifra upp háan vegg úr neti eins og drengurinn gerir listilega hér. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af kröfu smábátaútgerðarmanns, sem taldi að breytingar sem gerðar voru á lögum um stjórn fiskveiða árið 2004 hefðu valdið honum tjóni og brotið gegn eignarréttarákvæði og jafnræðisreglu stjórnarskrár. Breytingarnar lutu að því að sóknaraflamarkskerfi smábáta var aflagt og krókaaflamarkskerfi tek- ið upp í staðinn. Krafðist stefnandi þess að bótaréttur hans yrði við- urkenndur. Héraðsdómur vísaði hins vegar til þess, að í lögum um stjórn fiskveiða, sem sett voru upphaflega árið 1990, segi að út- hlutun veiðiheimilda samkvæmt lögunum myndi ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði ein- stakra aðila yfir veiðiheimildum. Af þessu leiði að veiðiheimildir samkvæmt lögunum séu ekki varð- ar af ákvæðum 72. gr. stjórn- arskrárinnar. Stefnandi taldi einnig að reikni- regla, sem lögfest var með laga- breytingunni árið 2004, hefði brot- ið gegn jafnræðisreglu stjórnarskrár. Dómurinn komst hins vegar að þeirri niðurstöðu, að lagaákvæðin væru hvorki ómál- efnaleg né andstæð jafnræðisregl- unni. Páll Þorsteinsson héraðsdómari dæmdi málið. Fyrir stefnanda flutti málið Þórunn Guðmunds- dóttir hrl. og fyrir stefnda Guðrún Margrét Árnadóttir hrl. Úthlutun veiði- heimilda myndar ekki eignarrétt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.