Morgunblaðið - 09.02.2006, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006 27
DAGLEGT LÍF Í FEBRÚAR
Glænýr Saab
Bílar á milliverði eru fljótir að verða dýrir þegar
aukabúnaðinum er bætt við. SAAB 9-5 er vel búinn
lúxusbíll á milliflokksverði. Öruggur, glæsilegur og á
allra færi að eignast. Það hefur aldrei verið ódýrara
að skipta yfir í lúxus.
Svona lúxus á ekki að kosta
* Taktu skrefið í lúxus.
3.160.000*
LANDLÆG sníkjudýr, sem leggj-
ast á menn og geta skaðað heils-
una eru sem betur fer sjaldgæf
hér á landi eftir að sullaveikinni
var útrýmt og mannaspóluorm-
urinn hætti að sjást en með auk-
inni neyslu á hráu eða lítt soðnu
sjávarfangi hafa fundist hring-
ormar í mönnum í nokkrum til-
fellum.
Eru þeir skaðlegir heilsu manna
eða eru þeir fullir af vítamínum
eins og stundum hefur verið hald-
ið fram? Og svo er það njálgur,
sem veldur kláða og óþægindum.
Hversu algengur er hann og
hvernig berst hann milli manna?
Í bókinni „Þú ert það sem þú
borðar,“ ráðleggur dr. Gillian
þeim sem telja sig vera sýkta af
ormum að fara í ormahreinsun en
Karl Skírnisson, dýrafræðingur á
Tilraunastöðinni á Keldum, telur
réttara að leita frekar til lækna ef
grunur leikur á ormasmiti.
Hringormar í flestum tegundum
„Það eru hringormar í vel flest-
um fisktegundum í sjó en þeir
finnast ekki í ferskvatnsfiskum
eins og laxi eða silungi,“ segir
Karl. „Þessir gaurar geta verið
eins og stórar saumnálar að stærð
og ef þeir bora sig út úr melting-
arvegi þá geta þeir valdið miklum
skaða.“
Kynþroska ormar koma úr
maga tannhvala og sela. Þar verpa
þeir eggjum sem berast út í hafið
með saur.
„Eggin eru étin af krabbadýr-
um, sem fiskar éta og þaðan fáum
við hringormana sem við sjáum í
fiski,“ segir hann. „Í fiskholdinu
eru þeir orðnir að smithæfum
þriðja stigs lirfum. Og þegar eða
ef þeir lenda í mannsmaga með
fiskinum þá átta þeir sig fljótlega
á að þeir eru ekki í sínum rétta
lokahýsli. Þeir fara á flakk og
bora sig út úr meltingarveginum.
Stundum ná þeir þó að taka sér
bólfestu í slímhimnu magans. Al-
gengasta hringormategundin sem
staðfest hefur verið hér er sem
betur fer tegund sem leitar oftast
upp í háls eða niður en ekki þvert
út úr meltingarveginum.“
Njálgur algengastur
Njálgur er algengari en ýmsir
mundu ætla. Lífsferill njálgsins er
beinn. Lirfa skríður úr hverju
eggi sem berst niður í melting-
arveginn og það eru ekki bara
börn sem fá njálg, eins og sumir
halda, fullorðnir fá hann einnig.
Í rannsókn á tíðni njálgs, sem
gerð var á vegum tilraunastöðvar
Háskóla Íslands á Keldum á með-
al leikskóla- og grunnskólabarna
fyrir nokkrum árum kom í ljós að
sýkingartíðnin var um 15–20% í
neðstu bekkjum grunnskólanna.
Þannig að fimmti til sjöundi hver
einstaklingur í 30 manna hóp gat
verið sýktur. „Fæstir vissu um
sýkinguna þannig að fæstir verða
varir við njálg en þegar að er gáð
þá er hann þarna,“ segir Karl.
„Þetta er vel þróað sníkjulífi og
njálgur veldur hýslinum litlum
skaða að öllu jöfnu.“
Hringormar
Sýkingar í mönnum af völdum
hringorma eru þrennskonar.
Tiltölulega meinlaus sýking í
meltingarvegi. Lirfa nær ekki að
bora sig inn í slímhimnuna og
festa sig þar heldur flakkar um
meltingarveginn. Oft berast þær
rétta boðleið út úr líkamanum en
stundum skríða þær upp í kok.
Vitað er um tilvik þar sem slíkt
gerðist 50 mín. eftir smit. Lengsti
tíminn var tvær vikur.
Önnur leið sýkingar er þegar
hringormalirfa tekur sér bólfestu í
vegg magans. Sýkingunni fylgir
magabólga og einkenni sem minna
á magasár. Margir þjást af ógleði,
uppköstum, stöðugri hung-
urtilfinningu og kviðverkjum. Yf-
irleitt koma einkennin fram inna
12 stunda frá smiti.
Þriðja leið er smit í kvið-
arholi, sem er alvarlegast. Þá hafa
lirfur annaðhvort búið um sig í
þarmavegg eða farið í gegnum
þarmana yfir í kviðarhol eða líf-
færi, t.d. lifur, gallblöðru eða eitla.
Uppsjávarfiskar og botnfiskar
Hringormar sem valda
hættulegri sýkingu í kviðarholi
eru algengastir í uppsjávarfiskum
eins og loðnu, síld eða makríl.
Hringormar sem skríða upp í
kok eru algengir í botnfiskum.
Þorskur er ránfiskur sem lif-
ir bæði á botn- og uppsjáv-
arfiskum og safnar að sér öllum
tegundum hringorma.
Steinbítur er einnig botn-
fiskur og lifir á hryggleysingjum
en stundum komast þeir í upp-
sjávarfisk eins og loðnu.
Ýsa lifir fyrst og fremst á
skeldýrum sem ekki eru millihýsl-
ar hringorms og er oftast laus við
hringorma.
HEILSA | 15–20% grunnskólabarna eru með njálg
Hringormar í meltingar-
vegi geta valdið skaða
VALGAR‹SSON
KJARTAN
3sæti
Prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík
Gjaldfrjáls leikskóli