Morgunblaðið - 09.02.2006, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006 45
Húsnæði óskast
Geymsluhúsnæði óskast
Stór félagasamtök leita að um það bil
100-150 fm geymsluhúsnæði til leigu
Um væri að ræða leigu til langs tíma. Gott að-
gengi er æskilegt og helst innkeyrsludyr. Einnig
þarf húsnæðið að vera upphitað. Vel kemur til
greina rými sem er hluti af öðru stærra geymslu-
rými en afmarkað. Staðsetning húsnæðisins
væri frá Mosfellsbæ að Reykjanesbæ.
Vinsamlega hafið samband í síma 515 1700.
Spennandi
verkefni
N
æ
st
Leiðandi flutningsfyrirtæki á alþjóðavísu með
þjónustu á sviði flutningsmiðlunar, vörustýringar,
hafnar- og uppskipunarþjónustu leitar að
einstaklingi til að vinna við þróun verkefnis á
Íslandi í 12-24+ mánuði með reynslu á einhverjum
af eftirfarandi sviðum; verkfræði, vörustjórnun,
vöruflutningum og uppskipunarþjónustu.
Hæfniskröfur:
• Góð enskukunnátta
• Góð tölvukunnátta (Word og Excel)
• Skilningur á fjármálaþáttum
tengdum starfseminni
• Skipulagshæfni, geta samræmt upplýsingar,
mannskap og tækjabúnað
• Mjög góðir samskipta- og stjórnunarhæfileikar
• Reynsla af ströngum gæða- og öryggiskerfum
ásamt starfsaðferðum.
Umsóknir á bæði ensku og íslensku óskast sendar
á netfangið sigridur.hostert@deloitte.is, eða til
Deloitte hf., Stórhöfða 23, 110 Reykjavík, merkt
“Spennandi verkefni” fyrir 16. febrúar.
Leiðandi flutningsfyrirtæki
Tæknimaður
Óskum eftir tæknimanni á verkstæði hjá Tölvu-
virkni.
Umsóknir sendist á info@tolvuvirkni.is.
Öllum umsóknum verður svarað.
Uppboð
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Eyjafell 18, 222-3221, Kjósarhreppur, þingl. eig. Gullbílar ehf., gerðar-
beiðendur Kaupþing banki hf. og Samvinnulífeyrissjóðurinn, mánu-
daginn 13. febrúar 2006 kl. 11:00.
Faxafen 12, 202-3360, Reykjavík, þingl. eig. Sparisjóður Hafnarfjarðar
og talin eign Didrix Spa ehf., gerðarbeiðandi Sparisjóður Hafnarfjarð-
ar, mánudaginn 13. febrúar 2006 kl. 14:30.
Kelduland 3, 203-7542, Reykjavík, þingl. eig. Málfríður H. Halldórsdótt-
ir, gerðarbeiðendur Landsbanki Íslands hf. og Lífeyrissjóður verslunar-
manna, mánudaginn 13. febrúar 2006 kl. 14:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
8. febrúar 2006.
Sigurður Jónsson hrl.
Jón G. Valgeirsson hdl.
Austurvegur 3, 800 Selfoss
Verktakar -
athafnamenn
Okkur hefur verið falið að
leita tilboða í lóð úr landi
Gráhellu, Selfossi
Um er að ræða 11,7 hektara
landspildu milli lands Dísastaða og Gráhellu.
Landspildan liggur að þéttbýlinu við Tjaldhóla
og hefur landnúmerið 205340
Allar frekari upplýsingar veita Lögmenn Árborg í síma 480 1816
Tilboð berist Lögmönnum Árborg, Austurvegi 3, 800 Selfoss
Fax 482 2978, e-mail siggij@lov.is
Félagslíf
I.O.O.F. 11 186928½
Landsst. 6006020919 VIII
Í kvöld kl. 20 lofgjörðarsam-
koma. Allir velkomnir.
I.O.O.F. 5 186298 9.II*
Fimmtudagur 9. febr. 2006
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 20:00.
Predikun Katrín Þorsteinsdóttir.
Mikill söngur og vitnisburðir.
Allir hjartanlega velkomnir.
www.samhjalp.is.
Raðauglýsingar 569 1100
Atvinnuauglýsingar
Tilboð/Útboð
Raðauglýsingar
sími 569 1100
Á ÁRSHÁTÍÐ Verkfræðingafélags
Íslands nýlega voru fjórir verk-
fræðingar sæmdir heiðursmerki fé-
lagsins fyrir vel unnin störf innan
verkfræðinnar og í þágu félagsins.
Verkfræðingarnir fjórir eru: Albert
Albertsson vélaverkfræðingur, Guð-
rún Hallgrímsdóttir matvælaverk-
fræðingur, Valdimar K. Jónsson
vélaverkfræðingur og Viðar Ólafs-
son byggingarverkfræðingur.
Í umsögn um feril verkfræðing-
anna segir m.a.:
Albert Albertsson lauk prófi í
vélaverkfræði frá KTH í Stokk-
hólmi 1977. Hann býr yfir yfirburða
þekkingu á jarðhitaorkuvinnslu og
hefur færni til að sjá fyrir sér hina
fjölmörgu nýtingarmöguleika jarð-
hitaorku þannig að hámarksnýting
náist. Hann er framúrskarandi fyr-
irlesari og fræðimaður með skýra
framtíðarsýn. Albert er lykilmaður
í þeirri fjölþættu nýtingu jarðhit-
ans, sem orkuverið í Svartsengi
byggist á, en það var framkvæmd
sem átti sér enga hliðstæðu í heim-
inum. Hann er einnig að stórum
hluta höfundur hinnar merku til-
raunar með djúpborun sem nú er
unnið að.
Guðrún Hallgrímsdóttir útskrif-
aðist sem matvælaverkfræðingur
frá Humboldt Universität í Berlín
árið 1968. Hún á að baki farsælan
starfsferil í matvælaiðnaðinum og í
stjórnsýslunni. Hún starfaði auk
þess um tíma sem iðþróunarfulltrúi
hjá Iðnþróunarstofnun Sameinuðu
þjóðanna og er þá ógetið ferils
hennar sem kennara og brautryðj-
anda í gæðastjórnun. Guðrún hefur
látið félagsmál mjög til sín taka á
opinberum vettvangi. Hún hefur
um áratuga skeið verið í far-
arbroddi í jafnréttismálum kvenna
og sat um hríð á Alþingi.
Valdimar K. Jónsson lauk prófi í
vélaverkfræði við DTH í Kaup-
mannahöfn árið 1960 og dokt-
orsprófi í vélaverkfræði við Uni-
versity of Minnesota, 1965.
Valdimar var lektor við Imperial
College of Science and Technology í
London frá 1965 til 1969, síðan að-
stoðarprófessor við Pennsylvania
State University frá 1969 til 1971
og frá árinu 1972 hefur hann verið
prófessor við verkfræðideild Há-
skóla Íslands. Valdimar hefur verið
leiðandi í kennslu og rannsóknum á
nýtingu jarðhita. Hann hefur unnið
að hönnun og verkefnisstjórnun við
margar stórvirkjanir landsins og
hafði umsjón með hraunkælingu í
Vestmannaeyjum 1973. Valdimar
hefur birt fjölda ritrýndra fræði-
greina og verið höfundur að fjöl-
mörgum skýrslum og ritrýndum
ráðstefnugreinum um nýtingu jarð-
hita og orkurannsóknir. Hann hefur
verið mjög virkur í stjórn-
unarstörfum, bæði innan Háskóla
Íslands og á opinberum vettvangi.
Viðar Ólafsson lauk prófi í bygg-
ingarverkfræði frá NTH í Þránd-
heimi árið 1970. Hann hefur starfað
hjá Verkfræðistofu Sigurðar Thor-
oddsen, VST hf., frá árinu 1971 og
sem framkvæmdastjóri frá árinu
1992. Jafnframt þessu hefur hann
starfað að fjölbreyttum verkefnum í
nefndum opinberra aðila og verið í
forystuhlutverki í alþjóðlegum hópi
fimm verkfræðifyrirtækja við hönn-
un Kárahnjúkavirkjunar. Viðar hef-
ur verið virkur félagi VFÍ og var
formaður félagsins 1987–1988. Mik-
ilvægasta framlag hans til verk-
fræðinnar hefur verið að stjórna
einni stærstu verkfræðistofu lands-
ins um langt árabil í gegnum um-
brotatíma með miklum ágætum.
Frá vinstri: Logi Kristjánsson, framkvæmdastjóri VFÍ, Viðar Ólafsson, Valdimar K. Jónsson, Guðrún Hallgríms-
dóttir, Albert Albertsson og Steinar Friðgeirsson, formaður VFÍ.
Fjórir verkfræðingar heiðraðir
FRÉTTIR
STEFNT er að því að halda mál-
þing um trúarbragðakennslu í
grunn- og framhaldsskólum á Ís-
landi. Fer það fram í Hafnarfjarð-
arkirkju laugardaginn 22. apríl og
mun standa frá klukkan 10 til 14.
Samkvæmt upplýsingum frá séra
Þórhalli Heimissyni var fyrir stuttu
haldinn í safnaðarheimili Hafn-
arfjarðarkirkju óformlegur fundur
ýmissa trúfélaga og áhugafólks um
trúarbragðafræðslu hérlendis. Var
þar ákveðið að stefna að fram-
angreindu málþingi. Er markmið
þess skv. upplýsingum Þórhalls að
finna leiðir til að efla trúarbragða-
fræðslu og vinna þannig gegn for-
dómum og árekstrum trúfélaga og
menningarheima hér á landi.
Dagskrá er ekki frágengin nema
hvað menntamálaráðherra mun
ávarpa þingið í upphafi og síðan
flytja erindi fulltrúar úr hópi kenn-
ara og frá ýmsum trúfélögum. Í
lokin verða síðan pallborðs-
umræður.
Málþing um trúarbragðakennslu
STJÓRN Sambands ungra fram-
sóknarmanna skorar á íslensk stjórn-
völd að leita leiða til að aðstoða kjör-
foreldra við ættleiðingar. Segir m.a.
svo í ályktun frá stjórninni:
„Í nágrannalöndum okkar eru
veittir styrkir til þess að vega á móti
miklum kostnaði við ættleiðingar, en
enga slíka aðstoð er að fá hér á landi.
Að ættleiða barn frá útlöndum
kostar mikla fjármuni. Þeir sem
eignast börn með hefðbundnum
hætti hér á landi fá margvíslega
þjónustu endurgjaldslaust og því er
eðlilegt að létt verði undir með vænt-
anlegum kjörforeldrum sem láta sig
dreyma um að eignast börn og vilja
láta þann draum sinn verða að veru-
leika.
Skorar stjórn SUF því á ríkisstjórn
Íslands að bregðast myndarlega við
réttmætum ábendingum kjörfor-
eldra og renna enn frekari stoðum
undir þá fjölskyldustefnu sem rekin
er á vegum ríkisstjórnarinnar, þar
sem fjölskyldan er í fyrirrúmi.“
Ríkið styðji ættleiðingar
Rangt föðurnafn
Í BRÉFI til blaðsins í Morg-
unblaðinu miðvikudaginn 8. febrúar,
misritaðist föðurnafn tónskáldsins
Gunnars Reynis Sveinssonar, en í
greininni var hann sagður Sverr-
isson. Hlutaðeigendur eru beðnir
velvirðingar á þessum mistökum.
Íslenska
gámafélagið
ÓNÁKVÆMNI var í frétt blaðsins á
þriðjudag með nafn Íslenska gáma-
félagsins, um að bryggjan í Gufunesi
hefði verið notuð í síðasta sinn. Beð-
ist er velvirðingar á því.
LEIÐRÉTT
Fundur um opið ljósleiðaranet
VIÐSKIPTARÁÐ Íslands stendur á
morgun fyrir morgunverðarfundi
um opið ljósleiðaranet. Hefst hann
kl. 8 og fer fram á Radisson Hótel
sögu. Fyrirlesari er Dolf Zantinge,
stjórnarformaður Unet í Hollandi,
sem rekur ljóðleiðaranet í bænum
Almere. Mun hann rekja hvernig
opið ljósleiðaranet hefur lagt
grunninn að nútímalegu og fram-
sæknu samfélagi í Almere og hver
ávinningur netsins er, segir m.a. í
frétt frá Viðskiptaráðinu.
Fundargjald er kr. 2.500 með
morgunverði og er óskað eftir að
fundarmenn skrái sig á vefinn vi.is,
fundir.is eða á skrifstofu Við-
skiptaráðs.