Morgunblaðið - 09.02.2006, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Lagleg 35’’
breyting á
Pathfinder
Bílar á morgun
Ásbúð - Raðhús
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í einkasölu mjög gott raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum
bílskúr, samtals um 166,3 fermetrar, vel staðsett við Ásbúð í Garðabæ. Eignin er á mjög góðum barnvæn-
um stað þar sem er stutt í skóla, leikskóla og framhaldsskóla. Fallegur garður í suður. Eignin skiptist í for-
stofu, hol, vinnuherbergi, baðherbergi, tvö góð herbergi, geymslu og bílskúr. Á efri hæð er stofa, borðstofa,
eldhús, hol, hjónaherbergi, barnaherbergi, baðherbergi ásamt sjónvarpsholi á millilofti. Góðar innréttingar
og gólfefni eru parket og flísar. Verð 41,9 millj.
GRÁSLEPPUNEFND LS leggur til við sjávarútvegs-
ráðuneytið, á grundvelli samþykktar aðalfundar LS, að
tími til grásleppuveiða á komandi vertíð verði 50 dag-
ar. Þannig fengi hver veiðileyfishafi 50 veiðidaga sem
hann gæti ráðið hvenær hann nýtti á sínu veiðisvæði
tímabilið 1. mars til 15. ágúst. Hér er um nýmæli að
ræða að veiðimenn fái að velja veiðitímann sjálfir innan
tímabilsins, þó þannig að um samfellda nýtingu daga
væri að ræða.
Frá þessu er greint á heimasíðu Landssambands
smábátaeigenda. Nefndin telur að slíkt hagræði skili
aukinni sókn og leggur því til að dögum á veiðitímabili
verði fækkað úr 60 í 50 Enn fremur ræddi nefndin um
verð á komandi vertíð. Nefndin féllst ekki á hugmyndir
einstakra kaupenda um verðlækkun. Að vandlega
íhuguðu máli ákvað nefndin að leggja til við veiðimenn
að miða við 700 evra lágmarksverð, tæplega 53.000
krónur miðað við gengi nú, fyrir fulluppsaltaða tunnu
af grásleppuhrognum.
Gagnlegir fundir
Grásleppunefnd LS var á einu máli um að upplýs-
ingafundir veiðimanna og framleiðenda, LUROMA,
væru mjög gagnlegir og til þess fallnir að veita nauð-
synlegar upplýsingar um stöðu grásleppumála og efla
samskipti meðal þessara aðila.
Á aðalfundi Norður-Atlantshafssamtakanna
(ACFNA) sem haldinn var 2. febrúar sl. var ákveðið að
endurnýja samkomulag grásleppuveiðiþjóða um að
takmarka veiðar. Er að því stefnt annað árið í röð að
samanlagður afli þjóðanna verði ekki meiri en 28 þús-
und tunnur á komandi vertíð.
Á LUROMA 2006 var samkomulag þjóðanna kynnt.
„Enginn vafi leikur á að samkomulag þjóðanna frá
2005 um að draga úr veiðum bar verulegan árangur.
Þó ekki hafi tekist að grynnka nægilega á birgðum til
að koma á jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar,
sýndi sig að þjóðunum tókst að verulegu leyti ætl-
unarverk sitt. Mest minnkaði framboð hrogna hér og á
Nýfundnalandi, en veiði dróst saman um 35% milli ára
hjá hvorri þjóð. Norðmenn stóðu einnig á bremsunni,
en þar varð aflinn 2005 rúmum fjórðungi minni en á
vertíðinni 2004. Hjá Grænlendingum tókst hins vegar
ekki jafn vel upp. Aflinn stóð nánast í stað milli ára.
Það kom hins vegar fram í máli Grænlendinga á
LUROMA fundinum, að á komandi vertíð taka gildi
nýjar reglur sem útiloka áhugamenn að stunda veið-
arnar og töldu þeir það þýða fjórðungs minnkun sókn-
ar,“ segir meðal annars á heimasíðu LS.
Ríflega 32.000 tunnur í fyrra
Áðurnefnt samkomulag veiðiþjóðanna kveður á um
að í hlut Íslendinga, Nýfundnalendinga og Grænlend-
inga komi 8.000 tunnur til hverrar þjóðar og hlutur
Norðmanna 4.000 tunnur. Árið 2005 voru grá-
sleppuhrogn verkuð í 32.453 tunnur, sem er rúmum 10
þúsund tunnum minna en árið 2004. Aflinn 2005 var
nánast sá sami og meðaltal sl. 5 ára. Vertíðin 2004 skil-
aði þriðja mesta afla frá upphafi og varð þess valdandi
að ekki gekk að selja söltuð hrogn á viðunandi verði á
sl. ári, þrátt fyrir fjórðungs minni veiði. Skýring fram-
leiðenda á verðlækkun þrátt fyrir minnkandi veiði er
að smásalar í Evrópu eru stöðugt verri viðureignar í
samningum um kaup og sölu á grásleppukavíar. Það
hefur einnig komið fram að verðlækkanir til veiði-
manna hafa ekki skilað sér til neytenda.
Vilja fækka veiðidögum á
grásleppu á þessu ári
Morgunblaðið/Alfons
Veiðar Grásleppukarlar þurfa enn að takmarka veið-
ar sínar á þessu ári vegna aðstæðna á mörkuðum. Hér
hampar Daníel Jónsson fallgri grásleppu.
Veiðiþjóðirnar samþykkja
að takmarka veiðar
annað árið í röð
Hvammstangi | Sjávarút-
vegsráðuneytið og For-
svar á Hvammstanga
hafa gert með sér tvo
samninga um smíði
Gagnaveitu hafsins. Áður
hafði Forsvar tekið að
sér þarfagreiningu
gagnagrunnsins. Mikil
undirbúningsvinna er að
baki, samráð og fundir
með fjölmörgum fag-
stofnunum og hagsmuna-
félögum sem koma að
nýtingu hafsins.
Fyrri samningurinn
lýtur að smíði grunnkerf-
is gagnaveitunnar og skal verkinu
lokið í maílok 2006. Síðari samning-
urinn er um innfærslu gagna í
grunninn og tengingu við aðra
gagnagrunna. Nær sá samningur til
ársloka 2006. Texti ritmáls verður
bæði á íslensku og ensku.
Í tilefni þessa var móttaka í hús-
næði Forsvars á Hvammstanga nú í
byrjun febrúar. Einar Kristinn Guð-
finnsson ráðherra, Gunnar Halldór
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Forsvars, og Elín R. Líndal, mark-
aðsstjóri Forsvars, undirrituðu
samningana. Í máli ráðherra komu
fram miklar væntingar til notagildis
Gagnaveitunnar. Aðgengilegur verð-
ur mikill fróðleikur um vistkerfi og
náttúru hafsins við Ísland, einnig
hagrænar almennar upplýsingar um
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Undirritun samninga Elín R. Líndal, Einar Kr.
Guðfinnsson og Gunnar Halldór Gunnarsson.
Samið um
Gagnaveitu hafsins
sjávarútveg á Íslandi, þar geta m.a.
erlendir kaupendur sjávarfangs sótt
sér mikinn fróðleik um auðlindina og
nýtingu hennar. Þá lýsti ráðherra
mikilli ánægju með að geta samið um
slíkt verkefni við fyrirtæki á þessum
landshluta, þar sem almennt væri
talið að atvinnulífið stæði þar fremur
höllum fæti. Gunnar Halldór fagnaði
þessum samningi og lýstu yfir mik-
ilvægi hans fyrir Forsvar. Tölvunar-
deild Forsvars hefur starfað frá árs-
byrjun 2003 og hafa þar verið unnin
fjölbreytt verkefni, m.a. fyrir stjórn-
sýsluna. Í deildinni eru nú fjórir
starfsmenn. Elín R. Líndal fagnaði
einnig samningsgerðinni og þakkaði
Vilhjálmi Egilssyni ráðuneytisstjóra
sérstaklega fyrir góða aðkomu að
samningunum.