Morgunblaðið - 09.02.2006, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Egilsstaðir | T.A.K., Tengslanet
austfirskra kvenna, verður stofnað
formlega á Hótel Héraði, Egilsstöð-
um, kl. 18 í dag.
„Í upphafi hóaði Þróunarfélag
Austurlands nokkrum konum saman
til að kanna hvað hægt væri að gera
fyrir konur á
Austurlandi“ seg-
ir Katla Steins-
son, talsmaður
T.A.K. og fram-
kvæmdastjóri
Markaðsstofu
Austurlands. „Til
fundarins mættu
tíu konur úr ýms-
um geirum sam-
félagsins og á
óformlegum nótum kom hver þeirra
með sýn á hvað nýst gæti konum al-
mennt í fjórðungnum. Út úr því kom
m.a. að konur mættu vera duglegri
við að taka að sér ábyrgðarstöður í
samfélaginu, koma sér á framfæri,
taka forystu í stjórnmálum og fé-
lagsstarfi og taka þátt í atvinnulífinu.
Þá kom fram að konur þyrftu að vera
sýnilegri í samfélaginu, gefa kost á
sér í stjórnir, bæta þyrfti stöðu
kvenna á atvinnumarkaði og aðgengi
að verkefnatengdum styrkjum. Í
kringum þetta þróuðust hugmyndir
um að koma af stað námskeiðum,
fundum og ráðstefnum sem gætu
gagnast konum. Þá var spurt hvern-
ig næðist til kvenna og hópurinn var
á því að stofna tengslanet á faglegan
hátt. Fljótlega var ekki einvörðungu
horft til kvenna í atvinnulífinu, held-
ur þess að samtökin skyldu ná til
allra kvenna á Austurlandi.“
Netsamskipti lykilatriði
Katla segir að þegar sé búið að
sækja um veffang og netfang og ver-
ið sé að leita tilboða í vefsíðu. „Hún á
að vera öflug með góðum gagna-
grunni um konur, spjallvef og upp-
lýsingagjöf ýmiss konar.“
Reiknað er með að konur í sam-
tökunum geti flokkað sig eftir áhuga-
sviðum og/eða viðfangsefnum og
skapað þannig nánari tengsl. Þá er
ætlunin að vefurinn sé markaðstæki
í þá veru að utanaðkomandi aðilar
geti leitað þar eftir t.d. konum með
sérþekkingu eða til stjórnarsetu, svo
eitthvað sé nefnt. T.A.K. ætlar beita
sér fyrir áhugaverðum ráðstefnum,
fyrirlestrum og námskeiðum sem
nýst geta konum á Austurlandi til
menntunar og upplýsinga. „Samtök-
in vilja stuðla að námskeiðum eins og
t.d. Mætti kvenna, sem Viðskiptahá-
skólinn á Bifröst hefur nú auglýst
hér á Austurlandi og snýst um fyr-
irtækjarekstur og hagnýta þekkingu
á fjármálaumhverfi,“ heldur Katla
áfram. „Hugsa má sér stjórnmála-
námskeið, fjölmiðlanámskeið, ræð-
unámskeið, sjálfsefli og alls kyns
þjálfun.“
Stefnt er að reglulegu fundahaldi
yfir vetrarmánuðina, bæði á vett-
vangi og í fjarfundaverum, en meg-
inþungi samskipta á að vera á netinu
og verður slóðin www.tengslanet.is.“
„Tengslanet skiptir miklu máli í
daglegu lífi, fólk kemst ekkert áfram
nema eiga góða að. Sé maður nýliði
einhvers staðar, svo dæmi sé tekið,
er mikilvægt að hafa aðgang að fólki
með þekkingu og reynslu og geta
leitað eftir ráðgjöf og stuðningi.
Konur á hvaða vettvangi sem er geta
nýtt sér T.A.K. og ég geri ráð fyrir
að konur almennt fylgist með sam-
félaginu og því sem er að gerast.
Þetta er tækifæri til að vera í sam-
skiptum við aðrar konur og nýta sér
tækifæri sem bjóðast. T.A.K. er ætl-
að að leiða konur með mismunandi
reynslu, þekkingu og skoðanir sam-
an og koma á samstarfi þeirra á
milli.“
Katla býst við fjölmennum stofn-
fundi og að í framhaldinu taki ný
stjórn til við að koma vefnum í gagn-
ið, fá fleiri konur til þátttöku með
markvissum kynningum úti í sveit-
arfélögunum, vinna með Fræðslu-
neti Austurlands að námskeiðahaldi
og fá upplýsingar hjá konum um
hvað þær vilji varðandi námskeiða-
og ráðstefnuhald. „Þetta á eftir að
taka sinn tíma að þróast og við ætl-
um að líta á T.A.K. sem átaksverk-
efni til þriggja ára, taka stöðuna að
þeim tíma loknum og sjá hvað hefur
áunnist. Við getum horft til verkefnis
eins og Auðs í krafti kvenna, sem
skilaði af sér mörgum nýjum fyrir-
tækjum og kraftmiklum konum, sem
tóku þar þátt og halda enn tengslum
í dag. Ég hef trú á að T.A.K. verði
öflugur samstarfsvettvangur kvenna
á Austurlandi og hlakka til að starfa
með þeim“ segir Katla Steinsson.
Konur á Austurlandi stofna tengslanet til að styrkja hagsmuni sína
Leiða saman reynslu,
þekkingu og skoðanir
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Hagsmunir kvenna Tengslanet austfirskra kvenna verður stofnað í dag.
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
austurland@mbl.is
Katla Steinsson
Stjórnsýslu-
kæra vegna
gjalds á
ferjuflug
Egilsstaðir | Benedikt Vil-
hjálmsson, starfsmaður Flug-
málastjórnar á Egilsstaða-
flugvelli, hefur lagt fram
stjórnsýslukæru vegna gjald-
töku af ferjuflugi sem nýtir
flugvöllinn. Hann segir toll-
embættið á Seyðisfirði inn-
heimta miklu hærri gjöld en
vaninn sé vegna ferju- og
einkaflugs á öðrum flugvöll-
um landsins.
Hann kærir auk gjaldtök-
unnar brot á jafnræðisreglu
stjórnarskrárinnar og það
verklag sýslumannsembættis-
ins á Seyðisfirði að svara ekki
formlegum fyrirspurnum
kæranda vegna málsins.
Benedikt sagði í samtali við
Morgunblaðið að hin háa
gjaldtaka skipti verulegu
máli, fljótt væri að fréttast af
slíku okri innan fluggeirans
og hefði það áhrif á markaðs-
stöðu og samkeppnishæfni
Egilsstaðaflugvallar.
Greiðslur í sjúkrasjóð | Á þriðju-
dag fóru fram í Héraðsdómi Reykja-
víkur skýrslutökur vegna máls Afls,
starfsgreinafélags Austurlands,
gegn Impregilo og starfsmannaleig-
unni NETT. Í málshöfðuninni krefst
Afl þess að Impregilo greiði eitt pró-
sent af launum starfsmanna í
sjúkrasjóð, sem er sambærilegt við
það sem íslensk fyrirtæki gera.
Gætu slíkar greiðslur verið tugir
milljóna króna á framkvæmdatíma
Kárahnjúkavirkjunar.
Impregilo telur starfsmennina
vera á vegum NETT, sem er portú-
gölsk leiga og því sé ekki skylt að
greiða í íslenska samtrygging-
arsjóði. Starfsmennirnir hafi E-101
skírteini eins og starfsmenn frá
þjóðum innan Evrópska efnahags-
svæðisins. Verkalýðshreyfingin tel-
ur túlkun Impregilo ranga og gangi
hún eftir skerði það samkeppn-
isstöðu innlendra fyrirtækja.
AUSTURLAND
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Höfuðborgarsvæðið | Tæpum sex
þúsund krónum munar á lægsta og
hæsta verði á leikskólaplássum á
höfuðborgarsvæðinu. Þá er afar
ólíkt háttað með systkinaafslátt í
sveitarfélögum höfuðborgarsvæð-
isins. Reykjavík er langódýrasti
kosturinn í leikskólavistun, Álfta-
nes kemur á hæla Reykjavíkur, en
Garðabær kemur dýrastur út í
könnuninni.
Skólaskrifstofa Seltjarnarnes-
bæjar hefur gert athugasemd
vegna samantektar DV um dag-
vistargjöld nokkurra sveitarfélaga
þriðjudaginn 7. febrúar sl. Í um-
ræddri samantekt var gjald fyrir 8
tíma dvöl á leikskólum bæjarins
sagt nema 30.510 krónum á mánuði
og því hið hæsta í samanburðinum.
Hrafnhildur Sigurðardóttir, leik-
skólafulltrúi Seltjarnarnesbæjar,
segir hið rétta vera að kostnaður
foreldra vegna 8 tíma dvalar á leik-
skólum bæjarins sé 28.590 krónur
á mánuði eins og m.a. komi fram á
vefsíðu bæjarins. „Leikskólagjöld á
Seltjarnarnesi eru með þeim
lægstu á höfuðborgarsvæðinu og
því fyllilega samkeppnisfær við það
sem annars staðar gerist,“ segir
Hrafnhildur.
„DV fer rétt með þegar fjallað er
um niðurgreiðslur vegna barna hjá
dagforeldrum,“ segir Hrafnhildur,
en eftir nýlegar breytingar í
nokkrum sveitarfélögum er niður-
greiðsla Seltjarnarnesbæjar til for-
eldra nokkuð lægri en annars stað-
ar eða um 13.500 krónur á mánuði
með hverju barni. „Á hinn bóginn
liggur fyrir samþykkt félagsmála-
ráðs bæjarins um umtalsverða
hækkun umræddrar fjárhæðar
með hverju barni. Þetta á eftir að
fara fyrir fjárhags- og launanefnd,
en verði hækkunin samþykkt verð-
ur Seltjarnarnes í hópi þeirra
sveitarfélaga sem hvað mest styðja
foreldra með börn hjá dagmæðr-
um.“
Við könnun blaðamanns á gjald-
skrám leikskóla á höfuðborgar-
svæðinu reyndist ákveðið misræmi
milli þeirra talna sem gefnar voru
upp á vefsíðum sveitarfélaganna og
þeirra talna sem fengust á skóla-
skrifstofum. Ekki munaði miklu og
var það almennt reglan að afslátt-
urinn var ríflegri í samtölum við
starfsmenn bæjarins en vefsíður
gáfu til kynna. Ákveðið var að taka
orð bæjarstarfsmanna trúanleg.
Kostnaður vegna vistunar leikskólabarna á höfuðborgarsvæðinu
Reykjavíkurborg ódýrust
en Garðabær dýrastur
Morgunblaðið/Kristján
Blessuð börnin Nokkuð jafnt virðist á með sveitarfélögum á höfuðborg-
arsvæðinu, þótt munað geti nokkrum þúsundköllum milli bæja.
A
!"
#$% &"
B !
4
C'('"!)D
5
C) '"D
*
A
#$% &"
!"
B !
*