Morgunblaðið - 09.02.2006, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006 23
MINNSTAÐUR
Jónas ráðinn | Jónas Vigfússon
hefur verið ráðinn í starf deild-
arstjóra framkvæmdadeildar Ak-
ureyrarbæjar. Það var gert að til-
lögu sviðsstjóra tækni- og
umhverfissviðs bæjarins og í sam-
ræmi við 8. grein samþykktar fram-
kvæmdaráðs. Á fundi fram-
kvæmdaráðs lagði Marsbil Fjóla
Snæbjarnardóttir, L-lista fram bók-
un þar sem segir að hún telji að aug-
lýsa eigi stöðuna og því geti hún ekki
greitt atkvæði með ráðningunni.
„Hins vegar tel ég viðkomandi
fullkomlega hæfan í starf deild-
arstjóra framkvæmdadeildar
Akureyrarbæjar.“
AKUREYRI
Fundur | Sigríður Jónsdóttir hjúkr-
unarfræðingur gerir grein fyrir
nýrri rannsókn sinni: „Líðan for-
eldra samkynhneigðra: Af hverju er
ekki hægt að viðurkenna barnið
mitt?“ á fundi hjá FAS, foreldrum
og aðstandendum samkynhneigðra á
Norðurlandi í kvöld, fimmtudags-
kvöldið 9. febrúar kl. 20. Þetta er
rannsóknarverkefni sem hún hefur
unnið við Háskólann á Akureyri.
Verði í Brekkuskóla | Skólanefnd
hefur samþykkt tillögu um að börn
sem búa í Naustahverfi á næsta
skólaári, 2006 til 2007, tilheyra
skólahverfi Brekkuskóla en eigi
einnig kost á því að vera áfram í
þeim grunnskóla sem þau hafa verið
í. Til þess að slíkt sé raunhæfur val-
kostur fyrir foreldra, er lagt til að
skólaakstur verði í alla grunn-
skólana á Akureyri úr Naustahverfi
á næsta skólaári. Skólanefnd sam-
þykkir tillöguna.
Fleiri leiðir | Margrét Pála Ólafs-
dóttir, leikskólastjóri og formaður
samtaka sjálfstæðra skóla, verður
frummælandi á opnum fundi Fram-
farafélagsins, í Dalvíkurskóla, í
kvöld fimmtudaginn 9. febrúar n.k.
kl. 20 30.
Margrét Pála mun einkum fjalla
um sjálfstæða skóla og mikilvægi
þeirra sem þátt í skólastarfi. Aðrir
frummælendur verða Ágúst Þór
Árnason, verkefnisstjóri hjá fé-
lagsvísinda og lagadeild Háskólans á
Akureyri, sem fjallar um sjálfstæða
skóla út frá sjónarmiði löggjafans og
Kolbrún Reynisdóttir, kerfisfræð-
ingur, Árgerði, mun fjalla um for-
eldrasamstarf í skólarekstri.
VILJAYFIRLÝSING um samstarf í
orkumálum á milli Eyjafjarðarsveit-
ar og Norðurorku hefur verið sam-
þykkt. „Við munum taka upp við-
ræður á grundvelli yfirlýsingar-
innar, þær eru raunar ekki hafnar en
eru fram undan,“ segir Bjarni Krist-
jánsson, sveitarstjóri í Eyjafjarðar-
sveit.
Markmiðið er að komast að sam-
komulagi fyrir lok þessa mánaðar.
Vilji er til samstarfs á sviði orku-
mála, fyrst og fremst um rekstur
hitaveitu í Eyjafjarðarsveit. Til-
gangurinn er að vinna að frekari
uppbyggingu hitaveitu í sveitarfé-
laginu og kanna fýsileika þess að
sameina hitaveitu Eyjafjarðarsveit-
ar í Reykárhverfi og Norðurorku og
verður á næstu dögum og vikum
unnið að framgangi þess verkefnis.
Meðal annars verður kannað um
frekari lagningu hitaveitu frá
Hrafnagili að Grund, en að sögn
Bjarna liggur fyrir úttekt frá árinu
2004 þar um. Miðað er við að fram-
kvæmdir gætu hafist nú í sumar.
„Við munum líka skoða hugsan-
legt samstarf við könnun á því hvort
hagkvæmt er að leggja hitaveitu víð-
ar í sveitarfélaginu og þá jafnvel að
leita að vatni annars staðar hér í
sveitinni. Það er líklega sá valkostur
sem horft verður til,“ segir Bjarni.
Hann segir að vitað sé um heitt
vatn við Hólsgerði, „en þar þarf að
bora meira til að unnt sé að nýta
það.“ Einnig er að sögn sveitarstjóra
vitað um volgrur uppi í Djúpadal, en
þær hafa ekki verið rannsakaðar.
Helsti vandinn er sá að byggð er
mjög gisin í kringum Hólsgerði,
„þannig að þar þarf að nást mikið
vatn og heitt til að það borgi sig að
nýta það á öllu svæðinu.“ Hugsan-
legt er að sögn Bjarna að nýta vatnið
í næsta nágrenni.
Þá er samkvæmt viljayfirlýsingu
fyrirhugað að hefja á næstunni við-
ræður um samruna hitaveitu Eyja-
fjarðarsveitar í Reykárhverfi, í
kringum Hrafnagil og Norðurorku
og kemur þá hvort tveggja til greina
að Eyjafjarðarsveit komi inn í Norð-
urorku sem hluthafi eða síðarnefnda
fyrirtækið kaupi hitaveitu Eyja-
fjarðarsveitar í hverfinu. Á sömu
forsendum verður rætt um stöðu
kaldavatnsveitu úr Grísarárdal, sem
þjónar Reykárhverfi og næsta ná-
grenni.
Eyjafjarðarsveit og Norðurorka hyggja á töluvert samstarf í orkumálum
Unnið að
uppbyggingu
hitaveitu
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
KRISTÍN Sigfúsdóttir, umhverfis-
fræðingur og kennari við Mennta-
skólann á Akureyri verður í öðru
sæti á framboðslista VG vegna bæj-
arstjórnarkosninga á Akureyri í vor.
Þetta er niðurstaða úr forvali VG
sem efnt var til á dögunum, eftir að
tekið hafi verið tillit til kynja og at-
kvæðafjölda á bak við hvert sæti.
Kristín varð í fjórða sæti í forval-
inu en Valgerður H. Bjarnadóttir,
núverandi bæjarfulltrúi VG í bæjar-
stjórn Akureyrar, lenti í öðru sæti og
ákvað að þiggja það ekki.
Baldvin H. Sigurðsson matreiðslu-
meistari verður í fyrsta sæti, en í því
þriðja Dýrleif Skjóldal Ingimars-
dóttir, nemi í kennaradeild HA og
sundþjálfari. Jón Erlendsson, starfs-
maður á hönnunardeild Vegagerðar-
innar á Akureyri og varabæjar-
fulltrúi verður í fjórða sæti, Baldvin
Esra Einarsson, nemi í viðskipta-
deild HA í því fimmta og í sjötta sæti
verður Lilja Guðmundsdóttir, öryrki
og nemi í Verkmenntaskólanum á
Akureyri.
Boðað verður til félagsfundar VG
á Akureyri fljótlega þar sem listi fyr-
ir komandi kosningar verður lagður
fram og borinn upp til samþykktar.
Kristín verð-
ur í öðru sæti
MAMMÚTAR fóru með sigur af
hólmi í árlegu minningarmóti um
Marjo Kristinsson, sem um árabil
starfaði fyrir Skautafélag Akureyr-
ar, en um er að ræða krullumót í
Skautahöllinni. Keppt var í tveimur
riðlum, alls tólf lið með hátt í 60
leikmenn innanborðs.
Lið Mammúta sigraði lið Kúst-
anna í framlengdum úrslitaleik og
Víkingar lögðu svo Bragðarefi í
leik um bronsið.
Iðkendum sem þátt taka í mótum
á vegum krulludeildar SA hefur
fjölgað jafnt og þétt undanfarin
misseri. Krullubrautum hefur verið
fjölgað í Skautahöllinni úr fjórum í
sex.
Sigurvegarar Arnar Sigurðsson, Björgvin Guðjónsson, Jón Ingi Sigurðs-
son og Ólafur Númason.
Mammútar unnu
minningarmótið
KEA-tígullinn, örugglega frægasta merki í sögu Akur-
eyrar og ef til vill frægasta merki Íslands alls, verður
fjarlægt af gafli stórhýsins á mótum Hafnarstrætis og
Kaupvangsstrætis á Akureyri í dag í hinsta sinn. Hlut-
verk Kaupfélags Eyfirðinga er nú annað en áður var og
þess vegna ákváðu forráðamenn þess að láta hanna
nýtt merki. Því verður komið fyrir á sama stað í dag en
reyndar ekki afhjúpað fyrr en á morgun, föstudag.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
KEA-tígullinn hverfur í dag