Morgunblaðið - 03.03.2006, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 03.03.2006, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Hættum að reykja í samfélagi á vefnum þar sem allir fá styrk hver frá öðrum og enginn þarf að standa einn í baráttunni. Með sameiginlegu átaki drepum við í fyrir fullt og allt. Skráðu þig í átakið á vidbuin.is Þar er auk þess hægt að finna allar upplýsingar um málið. viðbúin tilbúin stopp www.vidbuin.is ÍS LE N S K A A U G LÝ S IN G A S TO FA N /S ÍA LY F 3 1 5 2 4 0 3 /2 0 0 6 GEORGE W. Bush, forseti Bandaríkjanna, og Manmohan Singh, forsætisráðherra Indlands, inn- sigluðu í gær tímamótasamning á sviði kjarnorku- mála. „Þetta sögulega afrek mun gera þjóðum okkar kleift að færast nær sameiginlegu markmiði okkar um fulla samvinnu á sviði kjarnorku til borgara- legra nota,“ sögðu Bush og Singh í sameiginlegri yf- irlýsingu. Samningurinn, sem er hápunkturinn á þriggja daga heimsókn Bush til Indlands, afléttir áratuga banni á því að Bandaríkjamenn veiti Indverjum tæknilegar upplýsingar um kjarnorkuvinnslu. Í staðinn þurfa Indverjar að opna kjarnorkuver sem skilgreind eru til borgaralegra nota fyrir alþjóð- legum eftirlitsmönnum. Er samkomulagið fram- hald af samningi um kjarnorkumál sem þjóðirnar undirrituðu í Washington í júlí sl., sem heimilaði Indverjum að kaupa kjarnorkueldsneyti gegn því að þeir aðgreindu kjarnorkuvinnslu sína. Segja má að samningurinn breyti fyrrum ágrein- ingsefni í tilefni til nánari samvinnu, en um átta ár eru frá því að tilraunir Indverja með kjarnavopn komu bandarísku leyniþjónustunni í opna skjöldu. Komu Bush víða mótmælt Samningurinn, sem er talinn upphafið að frekari samvinnu þjóðanna á sviði hermála, er þó umdeild- ur og í gær var gríðarleg öryggisgæsla í Nýju-Delí, þar sem tugir þúsunda komu saman til að mótmæla heimsókn Bush til landsins. Komu Bush var einnig mótmælt í Kasmír, þar sem níu slösuðust í aðgerðum lögreglu. Ástandið í Pakistan var öllu alvarlegra, en í gær lést banda- rískur sendimaður þegar fjórir féllu í sprengjuárás á ræðisskrifstofu Bandaríkjanna í Karachi. Er talið að árásin hafi verið gerð í mótmælaskyni við fyrirhugaða heimsókn Bush til Pakistan í dag. „Hryðjuverkamenn og morðingjar munu ekki koma í veg fyrir ferð mína til Pakistan,“ sagði Bush. Þá var fallið frá fyrirhugaðri heimsókn Bush í ind- verska þingið eftir að þingmenn úr röðum vinstri- manna höfðu boðað mótmæli gegn honum. Kínverjar fylgjast vel með Enn fremur krefst samkomulagið samþykkis bandaríska þingsins, en ýmsir þingmenn hafa lýst sig mótfallna því að Indverjar fái aukinn stuðning á sviði kjarnorkuvinnslu, þrátt fyrir að hafa ekki und- irritað alþjóðlegan samning um bann við útbreiðslu kjarnavopna. Þá telja andstæðingar samningsins, úr röðum bæði demókrata og repúblikana, að það sé merkingarlaust að heimila eftirlit með kjarnorku- verum sem framleiða orku til borgaralegra nota, á meðan framleiðslu kjarnorku til hernaðarlegra nota verður haldið áfram eftirlitslaust. En samkvæmt The New York Times telja gagnrýnendur að samn- ingurinn geti jafnvel hraðað framleiðslu Indverja á kjarnavopnum. Kínversk yfirvöld hafa fylgst grannt með fram- vindu mála, en talið er að samkomulaginu sé m.a. ætlað að stuðla að einangrun stjórnarinnar í Pek- ing. „Samstarfið verður að vera í samræmi við kröf- ur um alþjóðlegt bann við útbreiðslu kjarnavopna,“ sagði Qin Gang, talsmaður kínverska utanríkis- ráðuneytisins. Boða aukin viðskipti þjóðanna Viðræður Bush og Singhs eru taldar marka upp- hafið að margvíslegri samvinnu þjóðanna, svo sem á sviði öryggismála og geimferða. Við sama tækifæri verða felld niður ýmis höft á viðskiptum ríkjanna, en alls nam verðmæti vöru- skipta þjóðanna í fyrra um 1.800 milljörðum króna og telja sérfræðingar að viðskipti þeirra geti aukist. Tímamótasamkomulag um kjarnorkumál Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is Bandaríkjamenn og Ind- verjar fagna nýjum kafla í samskiptum ríkjanna AP Þúsundir mótmælenda komu saman í Nýju-Delí í gær til að mótmæla opinberri heimsókn George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, til landsins. Maidstone. AFP. | Þrjár manneskjur komu fyrir rétt í Maidstone í Kent í gær ákærðar fyrir aðild að mesta ráni í sögu Bretlands. Var ránsfeng- urinn 53,1 millj. punda, rúmlega sex milljarðar ísl. kr., en fénu var rænt í miðstöð Securitas-öryggisþjónustu- fyrirtækisins í Kent á Englandi. Þau þrjú, sem komu fyrir dómara í gær, eru John Fowler, 57 ára, en hann er ákærður fyrir ránið í Sec- uritas-miðstöðinni og fyrir að hafa rænt eiginkonu og ungum syni fram- kvæmdastjóra stöðvarinnar. Hin eru Stuart Royle, 47 ára, ákærður fyrir sömu sakir, og Kim Shackelton, 39 ára, en hún er ákærð fyrir að hafa haft þýfi undir höndum. Þykja ákærurnar mikill áfangi í því að upplýsa málið en Adrian Lepp- ard, aðstoðarlögreglustjóri í Kent og sá sem stýrir rannsókninni, sagði í gær, að leitin að öllum ræningjunum og öllu fénu gæti hugsanlega tekið marga mánuði og jafnvel einhver ár. Talið er, að sex menn hafi tekið þátt í ráninu. Leitað á búgarði Síðastliðinn sunnudag girti lög- reglan í Kent af búgarð í Staplehurst, Elderden Farm, en hann er í eigu eins hinna ákærðu, John Fowlers, en hann er annars bílasali að atvinnu. Í fyrrakvöld kvaðst Sky-sjónvarpið hafa fyrir því heimildir, að þar hefði fundist „verulega mikið fé“ en lög- reglan hefur ekki staðfest það. Hún hefur hins vegar upplýst, að í Ford- sendibíl, sem fannst síðastliðinn föstudag, hafi verið 1,3 millj. punda, rúmlega 147 millj. ísl. kr. Auk þeirra, sem hafa verið ákærð, var lögreglan með tvo menn aðra í haldi í gær og hafði hún daginn til að sýna fram á, að þeir tengdust málinu. Þrjú ákærð fyrir stórránið Reuters Lögreglumenn á verði við flutningabíl, sem er talinn hafa verið notaður við að flytja burt ránsfenginn, rúmlega sex milljarða íslenskra króna. Podgorica. AFP. | Þingið í Svartfjalla- landi samþykkti í gær einróma tillögu forseta landsins, Filips Vujanovic, þess efnis að þjóðaratkvæðagreiðsla yrði haldin 21. maí nk. um sjálfstæði frá Serbíu. Þingheimur fagnaði innilega þegar Ratko Krivokapic, forseti þingsins, hafði lesið úrslit atkvæðagreiðslu um tillöguna, en allir 68 þingmennirnir sem viðstaddir voru greiddu atkvæði með henni. Serbía og Svartfjallaland hafa ver- ið í ríkjasambandi frá árinu 2003 en tilheyrðu bæði áður sambandslýð- veldinu Júgóslavíu. Náðist samkomu- lag um áframhaldandi samband 2003 m.a. fyrir tilstilli Evrópusambands- ins, en þar vildu menn ekki að til yrðu fleiri ný ríki á Balkanskaga eða frek- ara umrót; eftir blóðug átök áratug- arins á undan. 55% þurfa að samþykkja Samkomulag náðist í fyrradag milli stjórnar og stjórnarandstöðu um fyr- irkomulag þjóðaratkvæðisins. Fyrr í vikunni samþykktu stjórn og stjórnarandstaða með semingi ein- dregin tilmæli Evrópusambandsins þess efnis að a.m.k. 55% kjósenda þurfi að samþykkja að Svartfjallaland segi skilið við ríkjasambandið við Serbíu og þá verður einnig sú kvöð gerð, til að niðurstaðan teljist gild, að kjörsókn verði meira en 50%. Um 660.000 manns búa í Svartfjallalandi. Þjóðaratkvæðagreiðslan verður haldin á viðkvæmum tíma fyrir stjórnvöld í Serbíu, sem eiga um þess- ar mundir aðild að viðræðum um framtíð Kosovo; en albanski meiri- hlutinn þar er mjög áfram um að Kos- ovo verði sjálfstætt ríki. Kjósa um sjálfstæði HUGSANLEGT er að svarti dauði hafi hrint af stað Litlu ísöldinni í Evrópu, en það var kuldaskeið sem hófst um 1500 og stóð í ein 300 ár. Það er hópur vísindamanna við Utrecht-háskólann í Hollandi, sem leggur fram þessa tilgátu, en hún er byggð á rannsóknum á frjókornum og laufi í setlögum í vatni í Suð- austur-Hollandi. Ljóst er af þeim, að á tímabilinu 1000 til 1500 urðu mikl- ar sveiflur á fjölda og samsetningu frjókornanna og þær endurspegla svo aftur þær breytingar, sem urðu á landnýtingu á þessum tíma. Kom þetta fram á fréttavef BBC, breska ríkisútvarpsins. Eftir aldamótin 1200 fjölgar mjög frjókornum ýmissa korntegunda, til dæmis bókhveitis, en um 1347 fækk- ar þeim skyndilega mikið. Það var einmitt þá, sem svarti dauði kemur til sögunnar, en talið er, að hann hafi lagt að velli um þriðjung allra Evr- ópumanna. Upp úr þessu fjölgar hins vegar mikið frjókornum ýmissa trjátegunda, til dæmis birkis og eik- ar. Tilgáta vísindamannanna er sem sagt sú, að ræktarland hafi minnkað verulega vegna plágunnar og þá hafi trén eða skógurinn lagt það undir sig á ný. Um leið hafi upptaka koltví- sýrings í andrúmsloftinu aukist. Þau gróðurhúsaáhrif, sem þá hafi verið til staðar, hafi því minnkað og þá hafi kólnað í veðri. Breytingar á fjölda loftaugna Dr. Thomas van Hoof og sam- starfsmenn hans könnuðu einnig fjölda loftaugna á gömlu eikarlaufi og sáu þá, að þeim fækkaði á ár- unum 1200 til 1300 samfara vaxandi koltvísýringsmagni í andrúmsloft- inu. Þetta snerist hins vegar eftir 1350 og þykir það benda til, að þá hafi koltvísýringsmagnið farið minnkandi. Það er um loftaugun, sem koltvísýringsupptakan fer fram. Olli svarti dauði Litlu ísöldinni?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.