Morgunblaðið - 03.03.2006, Page 27

Morgunblaðið - 03.03.2006, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006 27 MINNSTAÐUR Verð fyrir Verð fyrir einrétta þrírétta Okkar rómaða humarsúpa . . . . . . . 990 Steiktur skötuselur með hvítvínssósu . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 3.390 4.390 Kjúklingabringa „a la Italiana“ . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 2.950 3.890 Lambafillet með sherrybættri sveppasósu . . . . . . . . . . 3.390 4.390 Nautalundir með chateaubriandsósu . . . . . . . . . . . . . . . . . . 3.700 4.690 Súkkulaðifrauð . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 790 Einnig úrval annarra rétta á „a la cart“ seðli Borðapantanir eru í síma 562 1988. Veitingahúsið Madonna, Rauðarárstíg 27-29. Þriggja rétta matseðill  Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn Blaðbera vantar á Akureyri í eftirtalin hverfi: Akurgerði og Innbæ. Upplýsingar í síma 461 1600 Göngutúr sem borgar sig.  Egilsstaðir | Sveinn Sigurbjarnar- son á Eskifirði hefur til margra ára rekið fyrirtækið Tanna ferðaþjón- ustu ehf. og ekið hundruð þúsunda kílómetra innanlands og utan með farþega af ýmsum toga í langferða- bifreiðum Tanna. Morgunblaðið hitti Svein inni í miðju Valþjófsstaðarfjalli, þar sem hann beið boðsgesta sem brugðið höfðu sér í skoðunarferð um stöðv- arhússhelli Kárahnjúkavirkjunar. „Það er alveg makalaust að fylgj- ast með framkvæmdunum hérna“ segir Sveinn og reiknar í fljótheit- um út að hann hafi farið með fólk inn í fjallið allt frá því að ökufær göng voru sæmilega tilbúin, eina til þrjár ferðir í hverjum mánuði síð- ustu tvö árin eða svo. „Fyrst þegar maður var að koma var allt hrátt og undirlagt í ryki og hávaða. Núna er flest á sínum stað og málað í hólf og gólf í stöðvarhúsinu.“ Ekur starfsmönnum Bechtel Sveinn hefur ekki aðeins ekið í tengslum við virkjunarfram- kvæmdir, auk hefðbundinna ferða- mannaflutninga og sérverkefna, heldur þjónustar Tanni einnig Bechtel sem byggir álverið á Reyð- arfirði fyrir Alcoa Fjarðaál. „Við sjáum um allan starfs- mannaakstur í tengslum við álverið. Erum núna með átta bíla og 1500 sæti til reiðu kvölds og morgna og þurfum að auka við fjórum rútum vegna vaxandi starfsmannafjölda fram á sumarið.“ Svenni er hálfgerð goðsögn í rútubílaheiminum, menn þekkja hann sem brosmildan og úrræða- góðan ekil sem ekki vílar fátt fyrir sér og tekst á við flest verkefni með uppbrettar ermar og jafnlyndi þess sem margan sjóinn hefur sopið. Tanni í fjöllum og fjörðum Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Kúnst að keyra í fjalli Sveinn Sigurbjarnarson á einni Tannarútunni í Val- þjófsstaðarfjalli og bíður þar farþega úr skoðunarferð um stöðvarhússhelli. Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is LANDIÐ AUSTURLAND Breytingar hjá KHB | Ákveðið hefur verið að sameina rekstur byggingarvörusviðs Húsasmiðj- unnar og Kaupfélags Héraðsbúa, undir nafni Húsasmiðjunnar. Til stendur að Húsasmiðjan flytji starfsemi sína í núverandi húsnæði byggingarvörudeildar KHB í miðbæ Egilsstaða og verði þar uns KHB hefur byggt nýtt 2.500 fermetra verslunarhús skammt frá sem mun svo hýsa Húsasmiðjuna, Blómaval og versl- un Ískrafts. Reiknað er með að byggingin verði tilbúin um nk. ára- mót. KHB gekk til samstarfs við Sindra með sömu hugmynd fyrir nokkrum misserum, en þau áform gengu ekki eftir. Byggingar- vöruverslun KHB á Reyðarfirði verður einnig rekin undir merkjum Húsasmiðjunnar. Hulda Hákon myndlistarkona hefurundanfarnar vikur dvalið í Skvísu-sundi í Vestmannaeyjum við und-irbúning tveggja sýninga sem hún opnar í Reykjavík í dag. Húsið sem hún og Jón Óskar, maður hennar, keyptu og eru að gera upp er ein af krónum sem setja svo skemmti- legan svip á götuna. Það gat verið líflegt í krónum í Vest- mannaeyjum en svo kallast útgerðarhús í Eyj- um. En með nýjum eigendum hefur króin fengið nýtt hlutverk og um leið öðlast nýtt líf. Það hefur ekki farið mikið fyrir þeim þarna en þau kunna því vel að komast frá sínu daglega amstri og fá tækifæri til að vinna að list sinni ótrufluð. Þau hjónin hafa komið sér upp svefnaðstöðu í krónni en hennar stærsta hlutverk er vinnu- stofa fjarri heimsins glaumi. En hvernig kom það til að þau ákváðu að kaupa sér kró við Skvísusund í Vestmannaeyjum? „Páll Stein- grímsson hafði sagt okkur frá þessum húsum nokkrum árum áður en við létum verða af því að kaupa. Niðurstaðan varð sú að við keyptum hús af Eddu Tegeder og hér höfum við unnið hörðum höndum að því að koma okkur upp að- stöðu síðan,“ segir Hulda um króna þar sem Haraldur Traustason á Sjöstjörnunni, Svenni á Krissunni og Sighvatur í Ási réðu áður ríkj- um. Góður andi „Þetta er búið að taka langan tíma og enn er mikið verk fyrir höndum. Við erum búin að setja nýtt þak og koma á hita þannig að við getum sofið hérna. Við erum mjög ánægð og okkur Jóni finnst húsið passa okkur.“ Hulda og Jón Óskar hafa tengsl við Vest- mannaeyjar, hann í gegnum afa sinn og ömmu, Þórunni Friðriksdóttur og Ingvar Þórólfsson frá Birtingarholti við Vestmannabraut, og sjálf segist hún hafa nostalgískar hugmyndir um Vestmannaeyjar í gegnum ömmubræður sína. Í listsköpun sinni er Hulda ef til vill fyrst og fremst handverksmaður sem mótar hug- myndir sínar í varanleg efni og vinnustofan gæti verið verkstæði hvaða iðnaðarmanns sem er. Og það finnst strax að það er góður andi í húsinu sem hlýtur að fagna því að hafa yfirleitt hlutverk. Þetta framtak þeirra hefur vakið talsverða athygli í Eyjum en hvernig hefur samfélagið tekið þeim? „Við þekkjum fáa og ég veit ekki hvort fólk er svo mikið að fylgjast með því sem við erum að gera en allir sem við höfum kynnst og við haft samband við hafa tekið okkur mjög vel. Ég fékk tvo unga stráka í heimsókn um daginn en samskiptaþröskuldurinn er svo lág- ur hjá krökkum. Strákarnir, Valur Fannar og Sigdór Yngvi, voru ófeimnir við að segja álit sitt á því sem ég er að gera og sögðu mér líka frá bæjarlífinu. Meðal annars þrettándanum þar sem þeir fengu að leika tröll sem hlýtur að vera mikilvægt fyrir börn, að fá tækifæri til að taka þátt í því sem er að gerast. Svona eiga hlutirnir að vera, tveir strákar að skottast saman og kynnast heiminum af eigin reynslu,“ sagði Hulda og bætti við að það væri örugg- lega gott að vera barn í Vestmannaeyjum. Tvær sýningar sömu helgina Þegar Hulda er spurð að því hvort dvölin hér hafi haft áhrif á listsköpun þeirra sagðist hún ekki gera sér grein fyrir því. „Aðalatriðið er að hér get ég einbeitt mér. Og þó, ég hef gert myndir af Faxaskeri og Sigurði VE, þannig að þetta er að síast inn.“Hulda stendur í stórræðum, hún opnar tvær sýningar í dag, föstudag, í 101 Gallery við Hverfisgötuna og í Galleríi Banananas á Barónsstígnum. „101 Gallery er á bak við mig þannig að það er stutt að fara. Þar verð ég með texta úr bronsi á veggjum og stórt bronsverk á gólfinu og verkin sem ég hef verið að vinna hér úti í Eyjum. Þau eru úr hydrocal, efni sem um margt er líkt gifsi en miklu sterkara. Í Galleríi Banananas verð ég með 350 myndir og texta og heitir sýningin Munaskrá.“ EBITA er hálfgert skrímsli sem liggur á miðju gólfinu á vinnustofunni. Þegar hún er spurð um þetta sérstæða verk sagðist hún ekki mikið vilja ræða um eigin verk en var þó tilbú- in að segja hvað liggur að baki. „Ég hef gaman af að fylgjast með viðskiptafréttum, ég veit ekki hvers vegna, því ég hef lítið vit á þessum málum. Ég hegg eftir því að þegar verið er að ræða við framkvæmdastjóra fyrirtækja að þeir nota oft EBITA sem stikkorð. Ég sneri mér að einum af gestum mínum á Gráa kett- inum og spurði hann hvað þetta þýddi og hann sagði að EBITA stæði fyrir verðmæti fyr- irtækis þegar búið væri að draga allar skuldir og kvaðir frá. Þá fór ég að hugsa hvort ekki mætti heimfæra þetta upp á fólk og í raun allt í lífinu. Ég ræddi þetta við annan gest sem sagði mér að hann hefði unnið hjá tveimur fyr- irtækjum sem fóru á hausinn. Það var eitt- hvert mynstur í þessu því að bæði skiptin varð hann var við að stjórnendurnir voru farnir að nota þetta orð í tíma og ótíma og svo var sjopp- unni lokað. Hann er með það á hreinu að þegar stjórnendur fara að nota orðið EBITA er rétt að taka pokann sinn.“ Lengra komumst við ekki í spjalli um verk hennar. „Listamenn drepa oft verkin sín með því að lýsa þeim út í hörgul. Þetta á að vera eintal hans við áhorfandann í gegnum verkið og fólk á að fá að draga sínar eigin ályktanir,“ segir Hulda. Króin í Skvísusundi fær nýtt hlutverk Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Vinnustofa Hulda Hákon í Skvísusundi. Þar undirbjó hún sýningar sem opnaðar verða í dag. Hulda Hákon undirbýr tvær myndlistarsýningar Eftir Ómar Garðarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.