Morgunblaðið - 03.03.2006, Side 50
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
GRETTIR!
ÉG HEF SVO
GAMAN AF NÝ-
LÍMDU VEGGFÓÐRI
ÞAÐ ER
ÖRUGGLEGA
ALLT FULT
AF
KANÍNUM
ÞÚ VEIST HVAÐ VIÐ
ÞURFUM AÐ GERA Í ÞVÍ?
HVERNIG
ER VATNIÐ? ÞAÐ ERÍSKALT. VILTU
RÉTTA MÉR
HANDKLÆÐIÐ
MITT?
ÞETTA ER
ÖMURLEG ÚTILEGA
ÉG ER AÐ SAFNA TIL
STYRKTAR ÞEIM SEM
ÞJÁST AF KVEFI
VÆRIRÐU TIL Í AÐ GEFA
EITTHVAÐ LÍTILRÆÐI
ÞEIM TIL HJÁLPAR?
HELGA, EIGUM VIÐ EIN-
HVERJA GAMLA VASAKLÚTA?
VEISTU
HVAÐ HANN
BRAGI
VINNUR VIÐ?
ÞÚ ÞEFAR
UPPI
SPRENGJUR,
EKKI SATT?
JÚ,
MIKIÐ
RÉTT
ÉG VAR LÍKA
FYRSTUR TIL AÐ SPÁ
FYRIR UM ÞAÐ AÐ
„KATTARKONAN“
YRÐI ALVEG
ÖMURLEG MYND
ÞÚ GETUR EKKI SIGRAÐ
TARANTÚLUN Í ÞESSU ÁSTANDI!
KANNSKI EKKI,
EN HANN GETUR
REYNT!
EF ÞIÐ VILDUÐ
SLAKA AÐEINS Á...
HANN
BJARGAÐI LÍFI
ÞÍNU!
MIG LANGAR SVO AÐ
LEN VITI HVERSU MIKILS
ÉG MET HANN
EN ÞAÐ AÐ HRINGJA Í
HANN ÚR VINNUNNI GERÐI
HANN BARA
ÁHYGGJUFULLAN
KANNSKI HJÁLPAR AÐ
GEFA HONUM GJÖF
ELSKAN,
ÉG KEYPTI
HANDA ÞÉR
GEISLA
DISK
NÚ ER
EITTHVAÐ
MIKIÐ AÐ
Dagbók
Í dag er föstudagur 3. mars, 62. dagur ársins 2006
Víkverji fylgist ekkimikið með íþrótt-
um. Hann frétti þó að
íslenzka landsliðið í
fótbolta hefði tapað
leik í útlöndum. Vík-
verja fannst ekki
skrýtið, þegar honum
voru sagðir helztu
málavextir, að Ísland
hefði farið halloka.
Strákarnir okkar öttu
kappi við landslið
Trínidad og Tóbagó.
Ætli það sé algengt í
fótboltanum að bolta-
menn frá pínulitlu
landi verði að kljást við
tvö landslið í einu? Hefði ekki verið
nóg að spila annaðhvort við Trínidad
eða Tóbagó? Víkverja finnst að svona
eigi nú bara varla að teljast með.
x x x
Víkverji er líka alveg steinhissa áþessum Tjörnesingum. Þeir eru
víst eitthvað flæktir yfir því að bónd-
inn á Héðinshöfða geti þurft að
bregða búi, rætist draumar Þing-
eyinga og álver verði byggt í næsta
nágrenni, á Bakka við Húsavík.
Skilja mennirnir ekki að það er
hvergi meira viðeigandi að byggð
leggist af vegna stóriðju en einmitt á
Héðinshöfða? Þar eru æskuslóðir
Einars Benedikts-
sonar, skálds og at-
hafnamanns. Eins víst
að þar hafi Einar byrj-
að að hugsa um það
hvernig mætti beizla
orkuna í iðrum lands-
ins, virkja Jökulsá á
Fjöllum, leggja járn-
braut til Húsavíkur og
byggja álverksmiðju í
Þingeyjarsýslu, en allt
var þetta á meðal stór-
iðjudrauma Einars –
og lifa þeir enn góðu
lífi meðal þjóðarinnar,
nema kannski þessi um
járnbrautina til Húsa-
víkur. Enginn hefði skilið það betur
en Einar Benediktsson, að slíkum
stórframkvæmdum fylgir alltaf ein-
hver fórnarkostnaður.
x x x
Víkverja sýnist að fyrirbærið, semeinkenndi öskudaginn í hans
ungdæmi, þ.e. öskupokinn, sé á
hröðu undanhaldi. Í stað þess koma
útlendir búningar og söngur í verzl-
unarmiðstöðvum. Börnin hans Vík-
verja komu ekki heim úr skólanum á
öskudaginn með öskupoka í aftur-
endanum. Þau voru nefnilega einu
börnin, sem komu með öskupoka að
heiman.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Víðidalur | Árleg vorsýning Hundaræktarfélags Íslands verður haldin um
helgina í reiðhöll Fáks í Víðidal. Sýningin hefst í fyrramálið kl. 8.30 með
keppni ungra sýnenda þar sem yfir 50 börn og unglingar sýna hunda sína.
Fjölmargir kynningarbásar eru á staðnum þar sem veittar eru upplýsingar
um hinar fjölmörgu ólíku hundategundir sem ræktaðar eru innan HRFÍ. Á
sunnudag hefst sýningin kl. 9 árdegis. Fjórir erlendir dómarar koma til
landsins til að meta gæði hundanna og dæma þá. Sýningin stendur til kl. 16
báða dagana.
Yfir 600 hundar á sýningu
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100.
Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Því að ekki er Guðs ríki matur og drykkur, heldur réttlæti,
friður og fögnuður í heilögum anda. (Róm. 15, 14, 17.)