Morgunblaðið - 03.03.2006, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006 51
DAGBÓK
Leikmannaskóli þjóðkirkjunnar og Kjal-arnesprófastsdæmi standa fyrir nám-skeiðinu „Hin trúuðu og trúarbrögðin– samskipti trúarbragða og menning-
arheima“. Námskeiðið fer fram dagana 6. og 7.
mars í safnaðarheimili Grensáskirkju.
„Samskipti trúarbragðanna eru viðvarandi
viðfangsefni guðfræðinga og þeirra sem vinna í
kirkjunni. Aðstæður á Íslandi einkennast af auk-
inni fjölbreytni og litríkara landslagi í trúmálum
en var fyrir ekki svo löngu,“ segir Kristín Þór-
unn Tómasdóttir héraðsprestur, sem kennir á
námskeiðinu ásamt Steinunni Arnþrúði Björns-
dóttur guðfræðingi.
„Áríðandi er að kristnir menn fræðist um önn-
ur trúarbrögð – og sín eigin – ekki síst til að þeir
skilji þær manneskjur sem þeir mæta í lífinu og
iðka önnur trúarbrögð. Þaðan kemur heiti nám-
skeiðsins, því í raun eru það aldrei tvenn trúar-
brögð sem mætast, heldur fólk sem játar ólíka
trú. Það er ekki ólík hugmyndafræði sem er að
kljást, heldur manneskjur, og brýnt að skilja
þessi átök nú sem aldrei fyrr, því öll eigum við
vini, skólafélaga eða samstarfsmenn, og jafnvel
fjölskyldumeðlimi sem hafa allt annan trúar-
legan bakgrunn en flestir Íslendingar. Hver og
ein trúarbrögð boða um leið ákveðinn sannleika
um sína sérstöðu og sitt hlutverk í heiminum,
sem vekur áhugaverðar guðfræðilegar spurn-
ingar.“
Kristín minnist á danska myndbirtingarmálið
sem nýlegt dæmi um samstuð trúarbragða sem
öllum virðist hafa komið í opna skjöldu: „Í
kennslunni ætlum við að gera fjölmiðlum góð
skil, enda orðnir stór hluti af umhverfi okkar og
skoðanamyndun. Fyrsta kvöldið skoðum við
hvernig trúarbrögðum og trú mannsins er miðl-
að af fjölmiðlunum, og áhugavert að skoða
hvernig fjölmiðlar standa sig í að ýmist upplýsa
almenning eða ýta undir fordóma og staðal-
myndir. Mjög mikilvægt er að reyna að gera sér
grein fyrir hvaða hlutverki fjölmiðlar gegna í
samskiptum trúarbragðanna.“
Á námskeiðinu verður meðal annars fjallað
lauslega um íslamska hugmyndafræði: „Slíkur
skilningur er nauðsynleg forsenda til að geta
fjallað um viðkvæm mál, eins og myndbirtinga-
málið, og hvers vegna viðbrögðin geta verið
jafnsterk og raun ber vitni, og taka á sig þá
mynd sem meðal annars hefur sést undanfarið.“
Nánari upplýsingar má fá hjá Biskupsstofu,
s. 535 1500, en þar fer jafnframt fram skráning á
námskeiðið.
Trúarbrögð | Námskeið Leikmannaskóla þjóðkirkjunnar um samspil trúarbragðanna
Hinir trúuðu og trúarbrögðin
Kristín Þórunn
Tómasdóttir fæddist í
Neskaupstað 1970.
Hún lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð 1990,
embættisprófi frá guð-
fræðideild Háskóla Ís-
lands 1996 og magist-
ersgráðu í trúarbragða-
fræðum frá Indiana-
háskóla 1998.
Frá 1998 hefur Kristín verið héraðsprestur í
Kjalarnesprófastsdæmi.
Kristín Þórunn á tvö börn, Unni og Jakob.
Endurtekningin.
Norður
♠532
♥G97 V/AV
♦954
♣G982
Vestur Austur
♠10864 ♠KDG9
♥K43 ♥862
♦108 ♦ÁG7
♣D753 ♣1064
Suður
♠Á7
♥ÁD105
♦KD632
♣ÁK
Fjórir tíglar er sjaldgæfur samn-
ingur í tvímenningi og ekki vinsæll,
enda hálfgert einskismannsland – of
hár bútur og láglitur í þokkabót. Þessi
vafasami samningur reyndist þó sigur-
vegurum tvímennings Bridshátíðar
happadrjúgur. Í gær sáum við spil þar
sem Þorlákur Jónsson vann fjóra tígla
doblaða gegn sænsku landsliðspari.
Skömmu síðar lentu þeir Jón Baldurs-
son og Þorlákur í sama samningi
(reyndar ódobluðum) gegn bandarísku
landsliðsmönnunum Brad Moss og
Fred Gitelman:
Vestur Norður Austur Suður
Moss Þorlákur Gitelman Jón
Pass Pass 1 spaði Dobl
3 spaðar Pass Pass
Dobl
Pass 4 lauf Pass 4 tíglar
Pass Pass Pass
AV eru komnir út á hálan ís í þremur
spöðum, en það er erfitt fyrir Þorlák í
norður að passa niður síðara doblið,
enda býst hann við einspili hjá makker
í spaða. Moss og Gitleman unnu því
sigur í sögnum að neyða NS upp á
fjórða þrep.
En úrspilið var eftir. Út kom spaði
og Jón tók strax á ás og spilaði litlu
hjarta. Vestur dúkkaði og nían í borði
átti slaginn. Jón spilaði svo tígli á kóng
og síðan hjartadrottningu að heiman!
Moss tók með kóng og spaða. Jón
trompaði þriðja spaðann, fór inn á
blindan á hjartagosa og spilaði tígli að
drottningunni.
Þetta skilaði tíu slögum og 82% skor.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 Rf6 3. Rc3 dxc4 4. e4 e6
5. Bxc4 Rc6 6. Rf3 Bb4 7. Bg5 Bxc3+
8. bxc3 Re7 9. Bxf6 gxf6 10. O-O Dd6
11. Db3 b6 12. e5 fxe5 13. dxe5 Dc5
14. Had1 Rc6 15. Da4 Bd7
Staðan kom upp á Meistaramóti
Taflfélagsins Hellis sem lauk fyrir
skömmu. Svanberg Pálsson (1720)
hafði hvítt gegn Geir Guðbrandssyni.
16. Hxd7! Kxd7 17. Bb5 hvítur fær nú
óhjákvæmilega tvo létta menn fyrir
hrók og við það verður eftirleikurinn
auðveldur. 17...Ke7 18. Bxc6 Hac8
19. Rd4 Dxc3 20. Bd7 Hcd8 21. Rc6+
Kxd7 22. Hd1+ Kc8 og svartur gafst
upp um leið enda verður hann mát
eftir 23. Da6#.
Síðari hluti Íslandsmóts skákfélaga
hefst í dag, 3. mars, kl. 20.00 í húsa-
kynnum Menntaskólans v/ Hamra-
hlíð.
Skákáhugamenn eru hvattir til að
fjölmenna á skákstað og fylgjast með
flóru íslensks skáklífs.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Góður sjónvarpsþáttur
ÉG vil þakka ríkissjónvarpinu fyrir
þátt Jónasar Ingimundarsonar og
Sigrúnar Hjálmtýsdóttur. Þetta er
besti þáttur sem sýndur hefur verið í
sjónvarpi það sem af er þessu ári.
Það var stórkostlegt að heyra Jónas
bæði lögin og textana. Þá var ekki
verra að heyra Sigrúnu syngja af
slíkri snilld sem raun bar vitni.
Ég vil bara þakkar fyrir það sem
þarna fór fram. Þetta er nokkuð sem
skilur eftir. Sjónvarpsþættir eða bíó-
myndir sem skilja eitthvað eftir er
það sem bæði ég og fleiri vilja sjá og
heyra. Kærar þakkir Jónas og Sig-
rún!
Ég vil líka þakka RÚV fyrir margt
gott, sem stofnunin hefur á boð-
stólnum en vil bæta þessu við til
þeirra og annarra sjónvarpsstöðva:
Hættið að sýna morð og ofbeldis-
þætti. Þetta er það sem við viljum
ekki sjá. Við viljum sjá það sem skil-
ur eitthvað eftir. Annars kærar
þakkir.
Kristín Gestsdóttir.
GamanSaman.is gjörbreytti
ásýnd stefnumótavefja
Í KJÖLFAR fréttaþáttarins Komp-
áss 19/2 síðastliðinn, og þeirrar um-
fjöllunar sem varð á NFS í framhald-
inu, vil ég endilega koma eftirfarandi
á framfæri: Það er hræðilegt til þess
að vita fullorðnir karlmenn komi sér
í samband við stúlkur undir lögaldri
á stefnumótavefjum landsins og á
auðvitað að reyna að koma í veg fyrir
það með öllum hætti. Gaman-
Saman.is gjörbreytti ásýnd íslenskra
stefnumótavefja fyrir um einu og
hálfu ári þegar það kom ferskt inn á
þann markað.
Það var í fyrsta skipti sem aðgang-
ur að slíkri vefsíðu var bannaður inn-
an 18 ára og enn fremur fer þar eng-
in skráning inn nema yfirfarin og
samþykkt af einhverjum stjórnanda
GamanSaman.is. Þannig höldum við
öllum augljósum auglýsingum um
vændi eða eitthvað óviðeigandi frá
okkar vef. Einnig vistum við IP-tölu
hvers og eins okkar notenda, til þess
eins geta upplýst viðkomandi yfir-
völd um ef viðkomandi yrði uppvís að
einhverju misjöfnu á vef okkar.
Það hefur verið mér hulin ráðgáta
að sumir stefnumótavefir hér á landi
skuli fá að starfa með þeim hætti
sem þeir gera í dag, algjörlega eftir-
litslaust, og hvet ég fólk og auglýs-
endur til að sniðganga slíka eftirlits-
lausa vefi og hvet til að þeim verði
lokað af hálfu eigendanna eða þá þeir
bæti úr eftirliti með þeim.
Hjörtur Scheving.
Pennavinkona frá 1970
DÖNSK kona af íslenskum ættum,
Helle Vibeke Andersen, leitar að
pennavinkonu sinni frá um 1970. Er
vinkonan vinsamlegast beðin að hafa
samband við Guðmund K. Steinbach,
sími 557 4631, netfang: gkskg@sim-
net.is
Vona að þetta sé fullnægjandi. Það
er eins og verið hefur alla tíð:
Morgunblaðinu er best til alls treyst-
andi.
Kveðja,
Guðmundur.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
60 ÁRA afmæli. Í dag, 3. mars, ersextug Lilja Sigurgeirsdóttir,
Sólgötu 2, Ísafirði. Af því tilefni býður
hún vinum og vandamönnum að sam-
gleðjast með sér í sal Oddfellow á Ísa-
firði, laugardaginn 4. mars kl. 15.
50 ÁRA prestvígsluafmæli. SéraA. George, fyrrverandi skóla-
stjóri Landakotsskóla um margra ára
skeið og staðgengill biskups kaþólskra
á Íslandi, getur fagnað 50 ára prest-
vígsluafmæli sínu sunnudaginn 5.
mars. Sr. George vígðist prestur 11.
mars 1956 í Hollandi. Í nóvember sama
ár kom hann til Íslands og hér hefur
hann starfað sem prestur síðan.
Sunnudaginn 5. mars mun hann lesa
hátíðarmessu kl. 10.30 í Kristskirkju í
Landakoti og þakka Guði fyrir að hann
skyldi hafa verið valinn til þess að
gegna prestsstörfum á Íslandi. Að
messu lokinni verður móttaka í safn-
aðarheimilinu á Hávallagötu 16 svo að
kirkjugestir geta notað tækifærið og
fært sr. George þakkir og vottað hon-
um virðingu sína og viðurkenningu.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
95 ÁRA afmæli. Í gær, 2. mars,varð níutíu og fimm ára
Jóhanna Kristjánsdóttir, Ólafsvík.
FRÍMÚRARAKÓRINN heldur árlega tónleika sína 4. mars 2006 í hátíðarsal
Frímúrarareglunnar á Íslandi að Skúlagötu 55. Tónleikarnir hefjast klukkan
16. Verð aðgöngumiða er 1.500 kr. og verða þeir seldir við innganginn.
Efnisskráin er fjölbreytt og er þar að finna þekkt íslensk og erlend lög úr
ýmsum áttum. Meðal tónskálda eru Atli Heimir Sveinsson, Árni Thorsteins-
son, Jón Nordal, Jóhann Ó. Haraldsson, Páll Halldórsson, Karl O. Runólfs-
son, Sigvaldi Kaldalóns, Þórarinn Guðmundsson, W. A. Mozart og fleiri.
Einsöngvari á tónleikunum er Eiríkur Hreinn Helgason. Við píanóið er
Jónas Þórir. Stjórnandi er Jón Kristinn Cortez en undir hans stjórn hefur
kórinn dafnað vel síðustu árin. Á tónleikum Frímúrarakórsins hefur skapast
sú hefð að kynna unga tónlistarmenn sem eru um það bil að ljúka tónlistar-
námi. Að þessu sinni koma fram tveir ungir söngvarar, þau Thelma Hrönn
Sigurdórsdóttir og Ásgeir Páll Ágústsson, og munu þau m.a. flytja dúett úr
Töfraflautunni eftir Mozart. Með þeim leikur á píanó Iwona Ösp Jagla.
Þá munu Árni Scheving, Carl Möller, Guðmundur Steingrímsson og Bjarni
Sveinbjörnsson leika nokkur ljúf djasslög.
„Snert hörpu mína …“
Sérhæð við Ægisíðu óskast
- staðgreiðsla
Sérhæð við Ægisíðu óskast - staðgreiðsla
Óskum eftir 120-150 fm hæð við Ægisíðu, stað-
greiðsla í boði.
Íbúðin þarf ekki losna fyrr en á seinni hluta ársins.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Extra sterkt
GÓÐ HEILSA
GULLI BETRI
Lið-a-mót
FRÁ
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR