Morgunblaðið - 03.03.2006, Síða 55

Morgunblaðið - 03.03.2006, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006 55 MENNING Smám saman hefur verið að op-inberast hvaða lystisemdir Listahátíð býður upp á í vor, og fyrr í vikunni hófst miðasala með kynningu á viðburðum hátíð- arinnar. Eins og oft áður skipar tónlist- in veglegan sess, en af fyrstu kynningum má ráða að meiri áhersla verði í ár á íslenska tón- listarmenn en oft áður, og að sama skapi virðast færri erlendar stórstjörnur væntanlegar. Allir sem eitthvað hafa fylgst með músík ættu þó að þekkja nafn Miriam Makeba, sem um árabil hefur skinið skært í tón- listarheimum. Áherslurnar eru nýjar í ár, og þeir sem kunna sakna þess að fá ekki einhverja heimsfræga söng- stjörnu geta glaðst við það að þrjár óperur verða sýndar í sam- vinnu við hátíðina, commedia dell’arte óperan L’Amfiparnaso eftir ítalska tónskáldið Vecchi, Galdraskyttan, sem líka er oft kölluð Töfraskyttan, eftir Weber, og franska óperan Le pays, eftir Joseph-Guy Ropartz. Sú síðast- nefnda er byggð á sögu af frönskum skútusjómanni sem lifir af sjóslys úti fyrir ströndum landsins og verður ástfanginn af íslenskri stúlku, en efni óp- erunnar er byggt á sönnum at- burðum sem áttu sér stað við strendur Íslands árið 1873. Að því er best er vitað er þetta eina erlenda óperan sem vitað er um að gerist á Íslandi. Gabriel Fauré, tónskáldið kunna sagði um þetta verk kollega síns: „Þetta verk, fullt af einlægni og ljóðrænum innblæstri, er ekki einungis tónskáldinu til sóma heldur einnig vegsauki fyrir franska tónlist“. Að fá hingað að auki ekta commedia dell’arte óp- eru eru auðvitað stórtíðindi. Um Galdraskyttuna má segja að ótrú- legt sé í rauninni að hún hafi ekki verið sett upp hér áður. Það er ekki bara að músíkin er falleg, með einni flottustu sópranaríu óperubókmenntanna, heldur er sagan byggð á þjóðlegum ger- mönskum arfi sem á sér sterkar hliðstæður í íslenskri menningu, þjóðtrú og ævintýrum. Já, kannski að Listahátíðar í ár verði minnst sem óperulistahátíð- arinnar.    En annað atriði vekur líka eft-irtekt mína, og það er nokk- uð sem vera má að fólki þyki ekkert sérstaklega spennandi í fljótu bragði. Þetta er heim- sókn Garr- isons Keillors hingað til lands. Garrison Keillor er fjöl- miðlamaður, skáld, mús- íkant, húm- oristi og rithöfundur – og afar snjall. Hann er höfundur eins vin- sælasta skemmtiþáttar í banda- rísku útvarpi, A Prairie Home Companion, í bandaríska rík- isútvarpinu National Public Ra- dio, en þátturinn er sendur út einu sinni í viku, snemma á laug- ardagskvöldum. Þetta er skemmtiþáttur af gamla skól- anum; listamenn koma í heim- sókn, alls konar gamanmál eru höfð uppi, og menning í sinni allra víðustu og fjölbreytilegustu merkingu á borð borin fyrir áheyrendur í sal. Tónlistin er jafnan margvísleg og úr ýmsum áttum. Sjálfur er Garrison Keillor höfundur einnar uppáhaldsplötu minnar, þar sem hann syngur bráðfyndnar gamanvísur – allar um ketti – með einni mestu óp- erusöngkonu Bandaríkjamanna, Fredericu von Stade. Garrison Keillor kemur á Listahátíð til þess að senda þátt sinn úr Þjóðleikhúsinu, og um þessar mundir vinnur hann að því með samstarfsmönnum sínum að velja þá Íslendinga sem fram koma í þættinum.    Það er verður ekki bara gamanað fá tækifæri til að sjá og heyra þessa amerísku útvarps- goðsögn í verki, heldur er sýnt að með því er Listahátíð að leggja drög að landvinningum í tvennum skilningi. A Prairie Home Companion hefur kannski ekki mikla hlustun, þegar horft er til þess hve marg- ir byggja Bandaríkin, en áheyr- endur þáttarins vikulega skipta þó milljónum. Kannanir hafa sýnt að á þáttinn hlustar helst vel menntað og meðvitað fólk með talsverð auraráð, og í þeim hópi eru að öllum líkindum hlustendur sem gætu fengið áhuga á að sækja Ísland heim í kjölfarið og jafnvel Listahátíð í Reykjavík. Á hinn bóginn verður þátturinn öfl- ug kynning á þeim íslensku lista- mönnum sem þar koma fram, og hugsanlegt að eitthvað geti vaxið úr henni. Það er lofsvert hvað Listahátíð hefur rækt það kröft- uglega að skapa tengsl í báðar áttir, og að íslenskir listamenn geti notið athygli erlendis eins og þeir erlendu gera á hátíðinni hér. Það eru jafnan langir biðlistar vestra eftir miðum til að komast í upptökusal þáttarins. Það má því búast við því að A Prairie Home Companion sendur út frá Íslandi eigi eftir að vekja talsverða at- hygli. Óperuþrenna og Garrison Keillor ’Það verður ekki bara gaman að fá tæki- færi til að sjá og heyra þessa amerísku útvarps- goðsögn í verki, heldur er sýnt að með því er Listahátíð að leggja drög að landvinningum í tvennum skilningi.‘ begga@mbl.is AF LISTUM Bergþóra Jónsdóttir Garrison Keillor TRÍÓIÐ Tompetería hefur síðan 1993 aðallega leikið á „Hátíðarhljómum við áramót“ sem eru löngu orðnir að fastri hefð, eins og Hörður Hallgrímskantor hermdi í fróð- legum og gagnorðum kynningum sínum á vel sóttum tón- leikum hópsins á sunnudag. Sú er að sönnu glansmikil áhöfn við hæfi konunga, og vantaði í rauninni aðeins ket- ilbumbur til að uppfylla forn höfðingjasérréttindi. Dag- skráin var að sama skapi bráðskemmtileg og minnti sis- nöggvast á vinsæla plöturöð brezka snillingsins Christophers Herricks, „Organ Fireworks“. Stórmelódisti ítalska miðbarokksins, Alessandro Scar- latti, var efstur á blaði með Tokkötu í D-dúr; tvo hraða þætti fulla viðhafnargleði utan um hægsöngvan miðþátt. Eftir brezkættaðan atgervisnýbúa okkar til 16 ára, Mal- colm Holloway, var síðan leikið aðgengilegt en samt furðubitastætt Pastorale fyrir tvö mjúklát flygilhorn og orgel, helgað sálnahirði (pastor) Hvergerðinga, sr. Tómasi Guðmundssyni, þá hann lét af brauðinu 1995. Að lokinni tærri trómetakynnningu á tveimur íslenzkum sálmalögum í tvísöngsgerð var flutt ósungin útgáfa Jóns Hlöðvers Ás- kelssonar á verki hans frá 2005, Da pacem Domine, er byggist á fornum andsöng úr kaþólskum tíðasöng í ýms- um gerðum síðari tíma. Ekki ýkja spennandi áheyrnar í mínum eyrum, en þó vandað í útfærslu jafnt höfundar sem flytjenda. Úr hinni heimskunnu 5. orgelsinfóníu Parísarorganist- ans Charles Marie Widor (1846–1937) voru leiknir tveir þættir. Fyrst hið líðandi mjúka Adagio, er Hörður skilaði af næmri stílkennd og smekkvísu raddvali, en að lokinni Suite brève eftir Pierre Max Dubois hin fræga dansandi Tokkata. Hana hef ég að vísu oft heyrt skýrar af hljóm- plötum (þá ugglaust með hljóðnema öllu nær pípuverkinu en mannseyranu gafst kostur á hér a.m.k. 15 metrum frá), en „sat“ þó furðuvel – sérstaklega miðað við óvægnar út- haldskröfur til hægri handar. Stutta þríþætta Dubois- svítan frá 1976 var feikna áheyrilegt verk; nútímasinnað án þess að rembast um of við móderníska framúrtízku, og með forkunnarfagra Aríu á milli rytmískt seiðandi keðjuskot- inna útþátta er voru frábærlega vel blásnir og lyklaðir af þeim félögum. Virtúósasta tækifæri blásaranna birtist í síðasta atriði dagsins, einleikshlutverkum þeirra í Konsert Vivaldis fyrir tvo trompeta og hljómsveit er var í höndum orgelleikarans (án fetilleiks). Þeir Ásgeir og Eiríkur tóku hér á honum stóra sínum með leiftrandi liprum blæstri og skýrri berg- málsdýnamík í viðeigandi stíl, enda var meiriháttar upplyft- ing að samstilltri spilagleði tríósins. Tjölduðu Ásgeir og Ei- ríkur heilum sex mismunandi lúðrum (B, C, D, Es og piccolo auk flygilhorns) þessa dagstund og komust ásamt aðskiljanlegum dempurum þannig langt með að mæta óendanlegum litbrigðum orgelsins á kannski glampakát- ustu tónleikum þessarar Vetrarhátíðar í Reykjavík. Glampakátir lúðrar og pípur TÓNLIST Hallgrímskirkja Verk eftir A. Scarlatti, Malcolm Holloway, Jón Hlöðver Áskels- son, Widor, Dubois og Vivaldi. Trompetería-tríóið (Ásgeir H. Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson trompet, Hörður Áskels- son orgel). Sunnudaginn 26. febrúar kl. 17. Vetrarhátíð Ríkarður Ö. Pálsson Morgunblaðið/Kristinn Trompetería: Ásgeir H. Steingrímsson, Eiríkur Örn Pálsson og Hörður Áskelsson. SJÁLFSTÆÐU LEIKHÚSIN Sýningar á vegum aðildarfélaga Sjálfstæðu leikhúsanna vikuna 3.-10 mars: Hafnafjarðarleikhúsið S: 555 2222: Himnaríki Föst. 3. mars / Föst. 10. mars Hvað ef Mán. 6. mars / Þrið. 7. mars / Mið. 8. mars Viðtalið Lau. 4. mars / Sun. 5. mars Iðnó S: 562 9700 Ég er mín eigin kona Föst. 3. mars /Lau. 4. mars Föst. 10. mars Möguleikhúsið S: 562 5060 Landið Vifra Sun. 5. mars Austurbær S: 551 4700 Hafið bláa Sun. 5. mars Borgarleikhúsið S: 568 8000 Alveg brilljant skilnaður Föst. 3. mars / Fim. 9. mars Naglinn Föst. 3. mars Hungur Lau. 4. mars / Mið. 8. mars / Föst. 10. mars Broadway S: 511 3300 Nína og Geiri Lau. 4. mars Le´sing Lau. 4. mars Farandsýningar Dimmalimm Föst. 3. mars, Suðureyri. / Mán. 6. mars, Flateyri. / Mið. 8. mars. Bolungarvík. /Föst. 10. mars, Ísafjörður. Gísli Súrsson Föst. 10. mars, Ísafjörður. Egla í nýjum spegli Mán. 6. mars, Breiðdalsvík / Þrið. 7. mars, Seyðisfirði / Mið. 8. mars, Egilsstöðum / Fim. 9. mars, Vopnafirði / Föst. 10. mars, Höfn Hornafirði. Landið vifra 6. mars, Áslandsskóla / 7. mars, Njarðvíkurskóla / 8. mars, Engidalsskóla. Selurinn Snorri Sun 5. mars, Hjallakirkju. Númi á ferð og flugi Föst. 10. mars, Foldakoti. Hattur og Fattur Fim. 9. mars, Mýrarhúsaskóla. Emma og Ófeigur Mán. 6. mars / Mið. 8. mars. Sigga og Skessan í fjallinu Föst. 3. mars / Föst. 10 mars. Hrafnkelssaga Freysgoða Fim. 9. mars. Samkvæmt áhorfendatölum frá Hagstofunni fyrir leikárið 2003-2004 var hver miði sem seldur var í Þjóðleikhúsinu niðurgreiddur af opinberu fé um 7484 krónur, hjá Leikfélagi Reykjavíkur um 2139 krónur en um 204 krónur hjá aðildarfélögum Sjálfstæðu leikhúsanna (SL). Þrátt fyrir þessa misskiptingu bauð SL sama miðaverð og aðrar leiklistastofnanir. www.leikhopar.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.