Morgunblaðið - 03.03.2006, Qupperneq 56
56 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
FLESTIR þekkja Pétur Gaut, þetta
öndvegisverk leikhúsbókmenntanna
eftir frumkvöðulinn Henrik Ibsen
sem frumsýnt var fyrir réttum 130
árum, en í ár er ennfremur 100. ártíð
leikskáldsins fræga. Leikritið hefur
oftsinnis verið sett upp hér á landi
gegnum tíðina, jafnt á fjölum stóru
atvinnuleikhúsanna sem í smærri
sölum áhugaleikhúsanna og nú tekur
Þjóðleikhúsið verkið enn á ný til sýn-
inga, en í glænýrri þýðingu og í glæ-
nýju rými. Víst er að leikstjórinn
Baltasar Kormákur ætlar sér ekki
að feta troðnar slóðir, en hann hefur
veg og vanda af sýningunni sem
verður frumsýnd annað kvöld kl. 20.
Verk í handraðanum
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Baltasar Kormákur spreytir sig á
Pétri Gauti, því hann tók þátt í síð-
ustu uppfærslu Þjóðleikhússins á
leikritinu, árið 1991. „Það var fyrsta
sýningin sem ég tók þátt í í Þjóðleik-
húsinu,“ segir hann í samtali við
Morgunblaðið. Sú sýning hafði þó
nokkur áhrif á Baltasar, því það var
hún sem hann stakk upp á við þjóð-
leikhússtjóra, eftir að hún fór þess á
leit við hann að setja upp sýningu í
húsinu í vetur. „Ég var búinn að vera
með þetta verk í handraðanum í
nokkurn tíma og ræða það við fleiri
aðila. Verkið snerti við mér á sínum
tíma og vakti mig til umhugsunar.
Þegar ég fór að skoða það nánar fór
mig að langa meira og meira að tak-
ast á við það.“
Hann segist hafa farið í gegnum
nokkra sjálfsskoðun við lestur verks-
ins og undirbúning sýningarinnar,
og telji raunar að hið sama gildi um
aðra þátttakendur í sýningunni. „Ég
held að það geti allir upplifað það; að
skoða sjálfa sig í samhengi við sitt
eigið lífshlaup og siðferði, út frá
verkinu,“ segir Baltasar.
Það er Björn Hlynur Haraldsson
sem valinn hefur verið í hlutverk
Péturs sjálfs, en eins og kunnugt er
er hlutverk Péturs Gauts eitt viða-
mesta karlhlutverk leikhúsbók-
menntanna. Baltasar velktist ekki í
vafa um hvern hann vildi sjá í hlut-
verkinu og segir Björn Hlyn hafa
verið lykilinn að þeim nútímamanni
sem hann kaus að gera Pétur Gaut
að. „Mig langaði að skoða Pétur
Gaut í samtímanum,“ segir hann en
bætir þó við að enga gsm-síma eða
aðra póstmóderníska hluti sé að
finna í sýningunni. „Við erum sem
sagt að skoða sýninguna í hlut-
lausum samtíma, þannig að við erum
ekki í sokkabuxum að höggva við.
Norsku barrtrén hafa verið felld í
burtu.“
En hvað kemur þá í staðinn fyrir
barrtrén? „Vonandi verður sagan
hreinni og einfaldari, og stendur
okkur nær í tíma og rúmi. Svo er
þetta líka leikur að leikhúsinu.“
Ný þýðing í nýju rými
Í því samhengi er Baltasar spurð-
ur aðeins út í sýningarrýmið, en Pét-
ur Gautur er vígslusýning Kassans,
sem er nýtt sýningarrými Þjóðleik-
hússins og hefur aðsetur í leikfimi-
salnum í Húsi Jóns Þorsteinssonar
við Lindargötu, húsinu þar sem Litla
sviðið var áður til húsa. Um er að
ræða svokallaðan svartan kassa,
„black box-theatre“ eins og það
nefnist á fagmáli, þar sem svið og
sæti eru ekki föst og lúta þar af leið-
andi ákvörðun leikstjóra hverju
sinni. „Þetta er mjög skemmtilegt
rými, og heppilegt fyrir minni sýn-
ingar þar sem verið er að fram-
kvæma ákveðnar tilraunir,“ segir
hann. „Eins og núna þegar við erum
að setja upp Pétur Gaut á nýstár-
legan hátt, er ákveðið frelsi að setja
sýninguna ekki upp á stóra sviðinu.
Svo er líka alltaf gaman að setja upp
sýningu í nýju rými.“
Auk rýmisins nýja er textinn einn-
ig nýr, því hann er glæný þýðing
Karls Ágústs Úlfssonar á leiktexta
Ibsens. Frægar eru tvær eldri þýð-
ingar á verkinu, fyrst þýðing Einars
Benediktssonar og síðar Helga Hálf-
danarsonar. Hvers vegna kaus Balt-
asar að láta gera nýja þýðingu? „Það
er kannski bara hluti af þessari nálg-
un; mér finnst eðlilegt að nýjar sýn-
ingar komi með nýjar hugmyndir og
nýjan tón. Raunar finnst mér helst
að það ætti að þýða verk upp á nýtt í
hvert skipti sem það er gert. Á Ís-
landi vill það brenna við að leik-
húsþýðingar séu taldar bókmennta-
verk og mér finnst það ekki endilega
heppilegt. Þetta er bara þýðing fyrir
leikhús og í hverri slíkri liggur
ákveðin túlkun. Það er sama hvað
þýðendur reyna að bera það af sér;
það er alltaf túlkun í þýðingu,“ segir
Baltasar af áherslu. Hann segir
meginmarkmiðið að gera sýninguna
aðgengilega fyrir áhorfendur dags-
ins í dag, á skiljanlegu og skemmti-
legu máli. „Karl Ágúst þýddi fyrir
mig Skækjuna á sínum tíma og ég
var mjög ánægður með vinnu hans
þar. Það var því aldrei nein spurn-
ing.“
Karl Ágúst er ekki eini aðstand-
andi Péturs Gauts sem Baltasar hef-
ur unnið með á sömu forsendum og
áður. Þannig gerir til að mynda
Gretar Reynisson leikmyndina, en
þeir unnu saman að gerð leiksýning-
arinnar Þetta er allt að koma árið
2003 og hlutu báðir Grímuna fyrir.
„Ég held að ég hafi unnið með nán-
ast öllum í sýningunni áður nema
Birni Hlyni,“ segir Baltasar. „Og
raunar hef ég ekki unnið nema lítið
með Ólafi Egils og Ólafi Darra. En
ég hef til dæmis unnið með öllum
þessum leikkonum, töluvert.“
Leiksmiðjuvinna
Baltasar segist hafa lagt áherslu á
leiksmiðjuvinnu í sýningunni, þar
sem með slíkri vinnu sé hægt að
reyna leikgerðina, breyta og bæta
hana með aðstoð leikhópsins. „Svo-
leiðis vinnubrögð, þegar leikarinn
finnur meira til sín sem hluti af sköp-
unarvinnunni, eru yfirleitt til góðs.
Því á endanum þarf leikarinn sjálfur
að standa og flytja verkið, þannig að
því stærri hluti sem sýningin er af
honum, því meiri ánægju fær hann
út úr starfi sínu.“
Engin norsk barrtré og ný þýðing
í nýju rými; – við hverju á fólk að bú-
ast og hvað á það að koma með í far-
teskinu á Pétur Gaut?
„Það á bara að koma „blanco“.
Fólk sem ekki hefur séð verkið þarf
ekki að hafa neinar áhyggjur, en mér
þætti vænt um ef þeir sem hafa séð
það væru til í að skilja fordómana
eftir heima. Leggja fyrirframgefnar
hugmyndir til hliðar og dæma sýn-
inguna út frá þeirri leið sem er farin.
Ef fólk ætlar sér að upplifa eitthvað
sem það hefur séð áður eða telur
vera rétt, bendi ég því á að taka bara
Einar Ben. og lesa hann,“ segir Balt-
asar Kormákur, leikstjóri nýrrar
uppfærslu á Pétri Gaut, að lokum.
Leikhús | Baltasar Kormákur er leikstjóri Péturs Gauts eftir Ibsen sem sýndur er í Kassanum
Nútímamaðurinn Pétur Gautur
Björn Hlynur Haraldsson fer með hlutverk Péturs Gauts.
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is
eftir Henrik Ibsen í þýðingu
Karls Ágústs Úlfssonar.
Leikarar: Björn Hlynur Har-
aldsson, Brynhildur Guðjóns-
dóttir, Edda Arnljótsdóttir,
Guðrún S. Gísladóttir, Ingvar
E. Sigurðsson, Ólafía Hrönn
Jónsdóttir, Ólafur Egill Eg-
ilsson og Ólafur Darri Ólafs-
son.
Lýsing: Páll Ragnarsson.
Búningar: Helga I. Stef-
ánsdóttir.
Leikmynd: Gretar Reynisson.
Leikstjóri og höfundur leik-
gerðar: Baltasar Kormákur.
Pétur Gautur
MAÐUR tengir ekki beint pípulagn-
ingar við túbuleik. En Timothy
Buzbee, sem gegnir starfi túbuleik-
ara við Sinfóníuhljómsveit Íslands,
sagði á tónleikum í Norræna húsinu
á sunnudaginn var að allir túbuleik-
arar þyrftu að læra pípulagningar.
Túban er ógnarstórt hljóðfæri með
rörum þvers og kruss, og ekki á
hvers manns færi að stilla þannig
tól.
Auðvitað var Buzbee bara að grín-
ast. Eða það held ég! En hafi hann
þurft að læra pípulagningar, þá hef-
ur hann náð góðum tökum á þeirri
starfsgrein, því túban hljómaði und-
urfallega í meðförum hans.
Á tónleikunum voru verk eftir lítt
þekkt tónskáld, þar á meðal James
Grant, en músíkin hans var afburða-
vel leikin af Buzbee. Einnig verður
að nefna tónsmíð eftir John Stevens,
sem hét því skáldlega nafni Salve
Venus, salve Mars. Túbuleikarinn
upplýsti að hún væri byggð upp eins
og hryllingsmynd þar sem hið illa
sækir stöðugt í sig veðrið. Víst er að
fjandsamlegar tónhendingar urðu
sífellt meira áberandi, og út úr
dimmraddaðri túbunni lá við að þær
glefsuðu í tónleikagesti undir það
síðasta. Það var sko skemmtilegt!
Buzbee spilaði snilldarlega; hann
hafði auðheyrilega fullkomið vald á
hljóðfæri sínu, a.m.k. var hver ein-
asti tónn vandvirknislega mótaður.
Háskalegustu nótnahlaup þeyttust
hvað eftir annað út úr lúðrinum og
hittu alltaf í mark.
Með Buzbee kom fram eiginkona
hans, Jessica Wiklund, en hún lék á
básúnu. Það gerði hún með slíkum
yfirburðum að ég hef sjaldan heyrt
annað eins. Hljómurinn í básúnunni
var svo unaðslega mjúkur og tær, en
einnig kraftmikill og breiður, að dá-
semd var á að hlýða. Hin tormelta
Impróvisasjón nr. 1 eftir Enrique
Crespo var meistaralega flutt, og
var enn skemmtilegri fyrir þær sak-
ir að Wiklund sagðist einu sinni hafa
bölvað verkinu í sand og ösku við
ókunnan mann, er síðar kynnti sig
sem Crespo.
Gregórskur söngur frá Kloster-
neuburg var líka mótaður af smekk-
vísi af Wiklund og þrír miðalda-
dansar eftir óþekkt tónskáld voru
fjörlegir og dillandi, en jafnframt yf-
irmáta fágaðir.
Þau Wiklund og Buzbee spiluðu
fjórar tónsmíðar saman og bar þar
hæst Reciprocity eftir James
Meador, sem einkenndist af aðdáun-
arverðu samræmi og þvílíkum
kynngikrafti að lengi verður í minn-
um haft. Ljóst er að þeir sem heima
sátu misstu af miklu.
Lúðrar hins illa
TÓNLIST
Norræna húsið
Verk eftir Guillement, Hindemith, Stev-
ens, Crespo, Grant, Meador og fleiri.
Jessica Wiklund (básúna) og Timothy
Buzbee (túba). Sunnudagur 26. febrúar.
Kammertónleikar
Jónas Sen
SKÁLDSKAPUR hefur þá eig-
inleika að mála þann veruleika sem
hann er sprottinn úr. Það er sama
hversu huglægur hann er. Ljóðið
lýsir alltaf upp næsta umhverfi.
Þetta sést býsna glöggt í ljóðasafni
sem Þór Stefánsson hefur þýtt úr
kanadískri frönsku og hann nefnir
Québecskáld. Í hinu frönskumæl-
andi Kanada var við að búast sér-
kennilegri blöndu amerísks og
frönskumælandi veruleika. Ljóðin
sem Þór þýðir að þessu sinni eru
fengin úr bókinni Poètes québécois –
Anthologie eftir Louis Blouin og
Bernard Pozier. Elstu kvæðin eru
eftir skáld fædd í byrjun 20. aldar og
yngstu ljóðin eru ort í lok seinustu
aldar.
Hér er því um fjölbreytt ljóðasafn
að ræða og höfundarnir margir. Á
vissan hátt kallast ljóðin á við
franskan skáldskap, s. s. symból-
isma og súrrealisma. Ég veit ekki til
þess að skáld frönskumælandi Kan-
adaskálda hafi áður verið þýdd í
nokkrum mæli og sannast sagna
segja nöfn Québecskáldanna mér
ekki mikið. Á hinn bóginn er hér víða
vel ort. Í sumum kvæðum gætir ein-
semdar og framandleika en í öðrum
einhvers konar munúðar sem ein-
kennir einnig sum frönsk skáld. Hjá
sumum skáldum er ljóðmálið súr-
realísk ljóðræna eins og sjá má í
ljóðum Gatien Lapointe: ,,Orð
springur í hnefum okkar eins og
fuglaspor, / eins og stjörnustígar
hefjast villtar vonir.“ Eitthvað við
þetta kvæði minnir mig á ljóð höf-
unda á borð við Paul Eluard og
Louis Aragon.
Í öðrum ljóðum birtist allt annars
konar sýn á tilveruna, amerísk til-
vera undir áhrifum bandarískrar
ljóðlistar og fjöldamenningar.
Kvæðið New York eftir skáldið
Jean-Paul Daoust kallast á við
bítnikkana og hefst á þessum orðum:
Himinninn er rannsakaður
New York og geðklofaklínikkin þar
Buroughs and Mick Jagger hand in hand
Tom Waits grætur í augum Marlyn
Hún er fryst í spegil á Broadway
the Chorus Lines teygja úr sér að egypsk-
um hætti
HAPPY BIRTHDAY MICKEY you save
the Fifth
Síðasta Andrew’s systirin öll úr plasti...
Almennt má segja um þýðingar
Þórs að þær séu mikilvægt framtak.
Þær eru settar fram á ágætu máli og
mér sýnist hann ná að túlka sér-
kenni margra höfunda þó að vita-
skuld segi fáein ljóð hvers og eins
skálds varla mikið skáldskaparheim
þeirra. Með ljóðaþýðingunum fylgir
stutt ágrip af skáldskaparsögu
Québec, sem er nokkuð upplýsandi
og raunar mjög þarflegt og auk þess
fáein orð um skáldin. Hér er því á
ferðinni fræðandi bók. Það for-
vitnilegasta við kvæðin er hins vegar
sú ferska blanda evrópskra og þá
einkum franskrar ljóðsýnar og am-
erískrar sem einkennir skáldskap
margra skáldanna.
Orð springur í hnefum
BÆKUR
Ljóðaþýðingar
Ýmsir höfundar, Þór Stefánsson þýddi.
140 bls. Valdimar Tómasson. 2005
QUÉBECSKÁLD
Skafti Þ. Halldórsson
Á RITÞINGI Gerðubergs 21. janúar
sl. sat hinn þjóðþekkti rithöfundur
Thor Vilhjálmsson fyrir svörum um
líf sitt og listamannsferil. Um leið
var opnuð vegleg sýning á mynd-
verkum hans sem og verkum sem
hann hefur unnið í samstarfi við
listamennina Pál á Húsafelli, Örn
Þorsteinsson og Ivano Bolondi.
Thor hefur teiknað og gert mynd-
verk alla tíð og oftar en ekki er
náttúran og landið sá hug-
myndagjafi sem hann leitar í. Þenn-
an hluta af sköpunarverki Thors
þekkja ekki margir. Þess vegna
hefur verið sérstaklega ánægjulegt
að kynna þennan þátt höfund-
arverka Thors, en nú eru síðustu
forvöð til að sjá myndlistarsýn-
inguna – síðasta sýningarhelgi er
framundan.
Dagar mannsins
í Gerðubergi
♦♦♦