Morgunblaðið - 03.03.2006, Síða 64
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alladaga
í Lágmúla og Smáratorgi
GAMLA ratsjárstöðin Rockville á Miðnesheiði hefur verið jöfnuð við jörðu
en nú er unnið að því að tæta síðustu timburhlutana úr byggingunum. Öll
hús eru horfin og eftir standa aðeins grunnflekar og tré sem voru ræktuð á
svæðinu. Stöðin var reist um miðja síðustu öld á vegum varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli. Þegar stöðin var í fullum rekstri bjuggu þar hundruð
manna. Fyrirtækin Hringrás og Rekan hafa unnið verkið.
Morgunblaðið/RAX
Rockville jöfnuð við jörðu
ÁGÚSTSON ehf., áður Sigurður Ágústsson ehf.,
hefur ákveðið að flytja kavíarvinnslu Noru til Dan-
merkur. Húsnæði kavíarvinnslunnar Noru í
Stykkishólmi verður í sumar breytt og í haust
hefst þar vinnsla á saltfiski.
Að sögn Sigurðar Ágústssonar, framkvæmda-
stjóra Ágústson ehf., er ástæðan fyrir þessum
breytingum fyrst og fremst sú að rekstrarfor-
sendur fyrir kavíarvinnslu á Íslandi eru ekki leng-
ur fyrir hendi. „Það er erfitt að réttlæta lengur
slíkan rekstur hér á landi. Við erum í harðri sam-
keppni á erlendum mörkuðum við stóra aðila sem
fá hráefni frá Grænlandi og Kanada. Til að taka
þátt í samkeppninni verðum við að ráðast í þessar
breytingar, annars verðum við undir og þá er
sjálfhætt,“ segir Sigurður Ágústsson.
Ágústson ehf. keypti í fyrra fyrirtæki í Vejle á
Jótlandi sem sérhæfir sig í niðursuðu sjávaraf-
urða. Þar er fyrir ónotað húsnæði sem ætlunin er
að nýta fyrir kavíarvinnsluna. „Við verðum að
bregðast við breyttum aðstæðum. Kavíariðnaður-
inn er að flytjast til meginlandsins og framleiðslan
fellur vel að þeim rekstri sem við stundum í Dan-
mörku. Það hjálpar verulega til við þessa ákvörð-
unartöku,“ segir Sigurður. Í lok maí hættir Nora
framleiðslu í Stykkishólmi og verða tæki og tól
tekin niður og flutt á nýja staðinn og reiknað með
að framleiðslan hefjist aftur á ný í haust. Á sama
tíma verður ráðist í miklar breytingar á húsnæði
Noru og þar komið upp tækjum til vinnslu á salt-
fiski. Húsnæðið er 1.600 fermetrar og býður upp á
góða möguleika til bolfisksvinnslu. Ráðgert er að
saltfisksvinnslan fari af stað með haustinu.
Fleiri störf skapast þegar
fiskvinnslan fer í gang
Að sögn Sigurðar verður aðalstoðin í hráefn-
isöflun skipið Gullhólmi SH 201, sem er línubeit-
ingarskip í eigu fyrirtækisns. Áætlað er að taka á
móti 3.000–4.000 tonnum af fiski árlega til vinnslu,
en reynslan mun síðan segja til um hvernig geng-
ur.
Hjá Noru starfa nú um 10 manns að meðaltali
og fleiri störf skapast þegar saltfisksvinnslan fer í
gang.
Kavíarvinnslan Nora á
leiðinni til Danmerkur
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Karvel Jóhannesson og Páll Margeir Sverrisson,
starfsmenn Noru, hætta fljótlega að setja kavíar
í glösin og í haust fara þeir að salta fisk.
Eftir Gunnlaug Árnason
garnason@simnet.is
NÝGENGINN febrúarmánuður er
sá hlýjasti í Reykjavík síðan 1965.
Meðalhitinn í höfuðborginni mæld-
ist þannig 3,3 gráður sem er 2,9
gráðum ofan meðallags. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Veðurstofu
Íslands er þetta fjórði heitasti febr-
úarmánuður síðan veðurmælingar
hófust árið 1866, talsvert hlýrra
var bæði 1932 og 1965, lítillega
hlýrra varð 1964 og ámóta hlýtt
1929.
Á Akureyri mældist meðalhitinn
1,9 gráður sem er 3,4 gráðum yfir
meðallagi, en lítið eitt hlýtta var
þar árið 2003. Er nýliðinn mánuður
sjöundi hlýjasti frá upphafi mæl-
inga þar. Í Akurnesi var meðalhiti
3,1 stig, nánast sami og 2003. Á
Hveravöllum var meðalhitinn -2,0
stig og hefur meðalhiti ekki mælst
hærri þar í febrúar, en þar hófust
mælingar 1965.
Sé litið til úrkomu má segja að af-
ar úrkomusamt hafi verið sunnan-
og vestanlands á sama tíma og
fremur þurrt hafi verið á norðaust-
anverðu landinu. Þannig mældist
úrkoman í borginni 87 mm, sem er
20% umfram meðallag, en á Ak-
ureyri mældist úrkoman aðeins 21
mm sem er það helmingur með-
alúrkomu. Af þessum 21 mm féllu
13 á einum degi (þ.e. 16-17. febr-
úar). Aðeins var alhvítt í þrjá daga
á Akureyri í mánuðinum eins og í
fyrra.
Sólskinsstundir voru alls 58 í
Reykjavík sem er 6 stundum meira
en í meðalári og á Akureyri mæld-
ust þær 43 sem er 7 stundum meira
en í meðalári. Lægsti hiti í mán-
uðinum mældist á Brúarjökli -25,8
stig, en hæstur á Seyðisfirði 16,2
stig að kvöldi 21. febrúar.
Hlýjasti febrúar í Reykjavík síðan 1965
Morgunblaðið/Ómar
Höfuðborgarbúar gátu notið veðurblíðunnar í nýgengnum febrúarmánuði
sem er sá fjórði hlýjasti síðan mælingar hófust árið 1866.
BRYNJA Davíðsdóttir hamskeri
hefur ákveðið að taka ekki við fugl-
um til uppstoppunar, eftir lok þess-
arar viku. Brynja ákvað þetta í kjöl-
far þess að fuglaflensa hefur greinst
í Vestur-Evrópu. Hún sagði í samtali
við Morgunblaðið að sér þætti ákaf-
lega leiðinlegt að taka þessa ákvörð-
un en sökum óvissunnar sem væri
um útbreiðslu veirunnar fyndist
henni óhjákvæmilegt að taka þessa
ákvörðun. Spurð um hvort að hún
teldi þetta ekki vera fremur róttæka
ákvörðun taldi hún svo ekki vera.
Flensan smitaðist við meðhöndlun
fugla og hún væri mikið að vinna
með fugla sem fundist hafa dauðir.
Hún hafi því ákveðið að hætta að
taka á móti fuglum a.m.k. þangað til
að þetta ástand gangi yfir. Hún
ítrekaði þó að með þessu vildi hún
ekki vera með hræðsluáróður.
Spurð um hvort aðrir hamskerar
hér á landi og í nágrannalöndum hafi
tekið slíka ákvörðun kvaðst hún ekki
hafa heyrt um neitt slíkt hérlendis.
Erlendis væru þó menn með varann
á en biðu eftir ákvörðun yfirvalda.
Brynja vildi koma því á framfæri til
fólks sem væri með fugla í frysti að
hún tæki enn á móti þeim til upp-
stoppunar út þessa viku.
Hættir að taka á móti
fuglum til uppstoppunar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
BJÖRN Stefánsson, trommuleikari
hljómsveitarinnar Mínuss, var ný-
lega valinn fjórði
besti trommu-
leikari heims af
lesendum breska
tónlistartímarits-
ins Metal Hamm-
er. Björn skipar
sér þar með á
bekk með þekkt-
ustu trommuleik-
urum heims, svo
sem Lars Ulrich,
trommuleikara Metallica, sem
hafnaði í þriðja sæti. Björn segir
þetta vera mikinn heiður, en honum
brá töluvert við fréttirnar. „Maður
fer líka að velta því fyrir sér hvort
maður eigi þetta skilið, það fara
ýmsar hugsanir í gang,“ sagði hann
m.a. í viðtali við Morgunblaðið. | 60
Í hópi þeirra
allra bestu
Björn Stefánsson
FUNDI fulltrúa Landssam-
bands slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamanna (LSS) og rík-
issáttasemjara, sem hófst
klukkan 13 í gærdag, var frest-
að um klukkan 23 í gærkvöldi,
að sögn Vernharðs Guðnason-
ar, formanns Landssambands
slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna. Hann sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi að
ákveðið hefði verið að hefja við-
ræðufundinn að nýju klukkan
13 í dag. Spurður um gang
samningaviðræðnanna sagði
Vernharð að þeim miðaði
áfram, en hann vildi þó ekki
fara nánar út í efnisatriði
þeirra.
Atkvæðagreiðslu meðal fé-
laga í LSS um hvort ganga eigi
til verkfalls 21. og 22. mars lýk-
ur á hádegi í dag. Munu nið-
urstöður liggja fyrir fljótlega
eftir að henni lýkur.
Langur
fundur í
kjaradeilu
LSS